Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 13
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982.
13
Kosningamar ÍEI Salvador:
UDUR í ÚTRÝMINGAR-
STRfeM AFTURHALDSINS
Alla slðustu viku hlýddum við á
kosningatölur frá E1 Salvador, í
sumum dagblaðanna og útvarpi. Það
var eins og koma ætti íslendingum í
kosningaham: Fyrst fengum við
prósentutölur, þegar 1/10 atkvæða
hafði verið talinn, svo 1/4 o.s.frv.,
svona rétt eins og verið væri að kjósa
norður á Akureyri.
Allt var þetta eftir uppskrift
bandariskra stjórnvalda. Fólk átti að
beina huga sínum að þessari áróðurs-
sýningu þeirra í stað þess að vera allt-
af með þessa gagnrýni.
Framkvœmd
kosninganna
Ég spyr þig, lesandi þessarar
klausu: Er hægt að meta vilja þjóðar
eftir kosningum sem fram fara við
eftirfarandi aðstæður?
1. Kosningunum er stjórnað af ógn-
arstjórn, sem miskunnarlaust læt-
ur drepa hvern þann sem hún nær
'til hafi hann andæft meginmark-
miðum hennar.
2. í landi þar sem rúmlega tvær
milljónir manna eru á kosninga-
aldri var ekki haft fyrir að útbúa
nema 800 þúsund kjörseðla.
3. 400 þúsund íbúanna eru flótta-
menn innanlands eða erlendis.
4. Hefðu einhver andstöðuöfl þjóð-
félagslegs óréttlætis vogað sér að
bjóða fram og taka þátt 1 kosn-
ingabaráttu með eðlilegum hætti,
hefði það jafngilt því að leggja
höfuð sitt á höggstokk ógnar-
stjórnarinnar.
Auðvitað er þessi spurning óþörf.
Kosningar við slíkar aðstæður geta
ekki sýnt vilja þjóðarinnar.
Að kjósa ekki
var tilraun til sjálfsmorös
En í eyrum okkar hefur dunið, að
kosningaþátttakan á svæðum sem
ógnarstjórninn ræður hafi verið
mikil, þrátt fyrir að skæruliðar
reyndu allt til að koma í veg fyrir að
fólk kysi. Þessar fréttir eiga að sanna
okkur, að skæruliðar njóti nú lítils
stuðnings þar.
Það var öllum ljóst, að þeir sem
ekki kysu á þessum svæðum yrðu
hundeltir sem stuðningsmenn frelsis-
aflanna, yrðu settir á dauðalistann,
allir þeir, sem ekki ættu stimplað
kosningakort og hefðu ekki fengið
kosningastimpil á putta.
Meira að segja í New York Times,
sem ekki hleypir nú öllu inn á sínar
síður, les ég eftirfarandi: Blaða-
maðurinn ræðir við konu 1 San Ant-
onio Abad. Hún segir honum að fólk
'í nágrenni hennar hafi kosið af ótta.
Hún hefði skilað ógildu, sett X yfir
allan kjörseðilinn.
En það þurfti mikla dirfsku jafnvel
til að skila ógildu. Kjörkassarnir voru
nefnilega úr gegnsæju plasti, þannig
að mikil hætta var á að ekki færi
fram hjá vökulum augum böðlanna,
hvernigkosiðværi.
Skæruliðar reyndu ekki að
hindra fólk í að kjósa
Það er uppspuni, að skæruliðar
hafi reynt að hindra fólk 1 að fara á
kjörstað. Sjálfir lýstu þeir þvi yfir, að
þeir myndu á engan hátt reyna að
trufla það. Fjölmargar frásagnir
benda til að þeir hafi staðið við þetta
fyrirheit. Ég læt hér nægja frásögn
blaðamannsins Richard Meislin líka
hjá New York Times. hann fór
sjálfur gegnum vegartálma skæruliða
á „Pan American” þjóðveginum rétt
utan við borgina Santa Domingo á
kosningadag. Blaðamaðurinn viður-
kennir, að skæruliðar hafi hleypt
fólki sem sagðist vera að fara inn i
borgina til að kjósa fyrirstöðulaust
þarna f gegn.
Markmiðið með
kosningasýningunni
Kosningarnar eru fyrst og fremst
liður í áróðursherferð Bandaríkja-
stjórnar og ógnarstjórnar E1
Salvador. Áróðursherferð til að
reyna að sýna fram á, að i E1
Salvador séu þeir fulltrúar lýðræðis,
en andstæðingarnir fuUtrúar ógnar-
afla og einræðis.
í Mið-Ameríku sannfæra þeir eng-
an með þessu. Hins vegar vonast þeir
til þess að með þessu geti bandarisk
stjórnvöld bætt stöðu sína heima
fyrir, svo að þeim verði kleift að auka
inngrip sitt og helst til að geta farið
með mikinn her inn í landið tU hjálp-
ar ógnarstjóminni.
Innrás Bandaríkjanna hefur
raunar lengi verið yfirvofandi, ekki
Ragnar Stefansson
bara í E1 Salvador, heldur lika í
Nicaragua.
Það sem komið hefur í veg fyrir
þetta er andstaða meðal almennings í
Bandaríkjunum sjálfum og ótti stjóm-
valda við, að svipuð mótmælaaída
risi eins og á dögum Víetnamstríðs-
ins, og vó þungt í að Bandaríkin urðu
að hrökklast burt þaðan.
Sömu aðferðum
var beitt í Vietnam
í Víetnam voru líka gerðar svokall-
aðar umbótaáætlanir og efnt var til
falskosninga eins og nú er gert í E1
Salvador. Sérfræðingarnir Richard
Scammon og Howard Penniman sem
höfðu sérlega umsjón með falskosn-
ingunum í Suður-Víetnam 1967 voru
nú einmitt sendir til E1 Salvador til að
hafa umsjón með kosningasýning-
unni þar.
Samt munu þjóð-
frelsisöflin sigra
Þrátt fyrir falskosningar og ógnar-
lega hernaðarvél töpuðu Bandaríkin í
Vietnam, ekki síst vegna þess, að
almenningur í Bandarikjunum sagði
stopp. Daginn fyrir kosningarnar í E1
Salvador nú gengu 40 þúsund manns
um götur Washington og lýstu fullum
stuðningi við þjóðfrelsisöflin í E1
Salvador.
Bandaríkjastjórn grunar, að þetta
sé aðeins forleikur þess sem ske kynni
ef þeir gengju miklu lengra í
inngripum sinum 1 E1 Salvador en
þeir gera nú.
Slikar áminningar þarf Banda-
rikjastjórn að fá hvaðanæva að og í
vaxandi mæli, lika frá íslandi.
Krafan þarf að vera, að Banda-
rikjastjórn hætti stuðningi sínum við
ógnarstjórnina í E1 Salvador. Því um
leið og hún gerir það hrökklast
ógnarstjórnin frá völdum.
3. apríl, 1982
Ragnar Stefánsson.
„í Víetnam voru líka gerðar svokallaðar
umbótaáætlanir og efnt var til falskosn-
inga eins og nú er gert í E1 Salvador,” segir
Ragnar Stefánsson í grein sinni þar sem hann
fjallar um kosningarnar í E1 Salvador.
„Kosningarnar eru fyrst og fremst liður í áróðursherferð Bandaríkjastjórnar og ógnarstjórnar El Salvador. iviynoin er ira
E1 Salvador.
Krafa um ritskoðun f ram sett
í borgarstjóm Reykjavíkur
Þótt borgarfulltrúar séu ýmsu
vanir hefur þeim sennilega sjaldan
brugðið meir i brún en þegar
Davíð Oddsson, borgarstjóraefni
Morgunblaðsliðsins, kvaddi sér
hljóðs á síðasta borgarstjórnarfundi
til þess að krefjast þess að liðsmenn
hans fengju sérstakt tækifæri til þess
að framkvæma ritskoðun á hlutlausu
kynningarblaði um skipulagsmál i
Reykjavík, er samþykkt hafði verið á
sínum tíma, bæði í borgarráði og
borgarstjórn, að fela borgarskipulagi
og borgarstjóra að annast um útgáfu
á. Vitaskuld hafði á sínum tíma
staðið ágreiningur um skipulagsmálin
milli meirihluta og minnihluta
borgarstjórnar en hann var útkljáður
með lögbundnum lýðræðislegum
hætti og niðurstöðurnar eru sú
stefna, sem framkvæmd verður. Þaö
er þess vegna algjörlega eðlilegt að
hún sé ásamt öðrum þáttum skipu-
lagsmálanna, kynnt borgarbúum.
Meðan stefnumörkun í skipulags-
málum var til umræðu ráku báðir
aðilar áróður fyrir sjónarmiðum
sínum, eins og eðlilegt var. Eftir að
niðurstaða er fengin fer fram
kynning á þeirri stefnu sem ofan á
varð og mörkuð var með algjörlega
löglegum og lýðræðislegum hætti. En
Sigurður E.
Guðmundsson
slíkum starfsháttum vill Morgun-
blaðsUð Daviös Oddssonar ekki una.
Þeir treysta ekki embættismönnum
borgarinnar til að annast um slíka
kynningu upp á venjulegan hlut-
lausan máta og krefjast þess að þeir
fái að ritskoða textann áður en blaðið
kemur fyrir almenningssjónir.
Ritskoðunarkrafan er
alvarlegasta hliðin
á þessu máli
Þegar þessi orð eru rituð er
væntanlega verið að bera blaðið inn á
heimilin í borginni og því geta
borgarbúar sjálfir gengið úr skugga
um hvort það sé hlutlaust kynningar-
blað eða einlitað áróðursblað, eins og
borgarstjóri benti réttilega á á blaða-
mannafundi á dögunum. Enginn vafi
er á hver dómur almennings verður,
honum þurfa borgarfulltrúar meiri-
hlutans ekki að kvíða. En ef til vill er
það ekki lengur mikilvægasti
punkturinn í þessu máli, heldur hitt,
að það skuli nú hafa gerzt fyrsta sinni
í borgarstjórn Reykjavíkur að einn
flokkanna, sem þar eiga fulltrúa,
skuli hafa sett fram kröfu um rit-
skoðun. Það er athyglisvert, að eng-
inn borgarfulltrúa hafði, svo vitað sé,
séð kynningarblaðið er þeir Morgun-
blaðsmenn staðhæfðu á borgar-
stjórnarfundinum að það væri
áróðursblað. Jafnathyglisvert er, að
engir fulltrúar annarra flokka
kröfðust ritskoðunar sér til handa á
efni kynningarblaðsins.
Sókn öfgaaflanna
er alvarlegt
umhugsunarefni
Á síðustu árum hefur það vakið
mikla athygli hvernig öfgafull hægri-
öfl hafa sifellt meir sótt í sig veðrið
innan Sjálfstæðisflokksins. Það er
umhugsunarefni, að á ofangreindum
borgarstjórnarfundi voru gamal-
reyndir og hófsamir forystumenn
flokksins, þeir Birgir ísleifur
Gunnarsson og Ólafur Thors, víðs
fjarri, enda léku öfgaöflin lausum
hala með framangreindum hætti.
Hefðu þeir verið viðstaddir hefðu
þeir áreiðanlega tekið fram fyrir
hendurnar á Davíð Oddssyni og
komið í veg fyrir að borgarstjórnar-
flokkurinn gerði Sjálfstæðisflokkn-
um þessa einstæðu skömm. Nú er
skammt í að þeir láti báðir tveir af
störfum sem borgarfulltrúar og þá
verða öfgaöflin einráð í borgar-
stjórnarfiokknum. Hvernig sem allt
veltist er því augljóst, að á næsta
kjörtímabili munu Reykvíkingar fá
að kynnast því hvernig Sjálfstæðis-
flokkurinn hagar störfum sínum
þegar grímulaus öfgaöfl hafa náð þar
öllum völdum. Sú augljósa hætta
hlýtur að verða mörgum
frjálslyndum Reykvíkingum alvarlegt
umhugsunarfffni næstu vikurnar.
Sigurður E. Guðmundsson,
borgarfulltrúi.
• .. heldur hitt, aö þaö skuli nú hafa
gerzt fyrsta sinni í borgarstjórn Reykja-
víkur að einn flokkanna, sem þar eiga fulltrúa,
skuli hafa sett fram kröfu um ritskoðun,”
segir Sigurður E. Guðmundsson í grein sinni
þar sem hann fjallar um kynningareintak um
skipulagsmál og fjaðrafokið í kringum það.