Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1982, Page 17
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Leikir erlendis í beinni útsend- ingu V.S.P. skrifar: Mér datt svona í hug aö skrifa lesendadálki Daglaðsins og Vísis vegna greina sem hafa birtzt í því blaði og dagblaðinu Tímanum. Þar voru birt viðtöl við ýmsa áhrifamenn hjá útvarpi og sjönvarpi um bikarúrslitaleikinn á Wembley og heimsmeistarakeppnina á Spáni í sumar. Gaman er að lcsa um af- stöðu þeirra til þessara atburða. Ég er alveg handviss um það að ef bikarleik- urinn, sem sýndur var um daginn, leiddi af sér hagnað þá gera leikirnir frá heimsmeistarakeppninni það líka og ekkisíður. Allavega er gífurlegur áhugi fyrir hendi að sjá leikina senda beint út. Utan dagskrár langar mig til að stinga upp á því að breyta nafninu á Dagblaðinu og Vísi í Dagvis í stað DV eins og það hefur verið nefnt. Andúð á skrif um Svart- höfða — „órökstuddar dylgjurummenn ogmálefni” 4489—4181 skrifar: Um það bil sem þessi ágætu blöð Dagblaðið og Vísir, sameinuðust í einni sæng, hugleiddi ég að gerast fastur kaupandi að hinu sameinaða blaði. Mér sýndist þetta geta orðið gott frétta- blað og á ýmsan hátt athyglisvert en þegar ég komst að raun um að þetta sameinaða blað losnaði ekki við fyrir- bæri þaðsem nefnist „Svarthöfði”, sló ég þeirri hugsun alveg frá mér. Ég hefi ef til vill verið óheppinn, þegar ég hefr öðru hvoru gluggað í þennan pistil, en þar hef ég oftast rekið mig á órök- studdar dylgjur um menn og málefni og alveg sérstaklega sjúklegt hatur á allri vinstri stefnu sem þesssi höfundur nefnir einu nafni „kommúnisma”. Mér finnst það ekki koma heim og saman að frjálst og óháð blað skuli geta birt slíkar ritsmíðar, sbr. grein „Svart- höfða” þessa í 70. tbl. frá 25. marz, þar sem ráðizt er að einum samstarfs- flokknum í ríkisstjórninni með ógeðs- legum aðdróttunum og hann borinn sök- um sem ekki eiga sér stað nema í hug- skoti þessa svarthöfðaða óskapnaðar, svo manni býður í grun að það sé ekki einungis höfuðið sem sé svart heldur sálin líka. Þar að auki hefi ég rótgróna andstyggð á nafnleynd og finnst hún litilmannleg. „Ég er oftast sammála Svarthöfða,” segir Indriði G., og er það ekki að undra ef hann er einn af höfundum hans. Einhvern veginn get ég ekki hugsað mér nafn Indriða í sambandi við áðurnefnda grein, en ég verð að segja gagnstætt honum. Ég er sjaldnast sammála Svarthöfða. Útkoman hjá mér verður því sú að ég verð enn um sinn að láta mér nægja að vera kaup- andi að Tímanum, þó að frá mínum bæjardyrum séð sé Ólafur okkar Jóhannesson komirmhálfur inní banda- ríska sjóherinn. Verst að hann er orðinn það gamall að hann getur ekki hlotið þar aömlrálstign að launum. Enda er ’Tíminn eina blaöið sem hefur léð máls á því að gefa afslátt á áskrift til lífeyris- þega og þykir mér það hlýða áári aldr- aðra. Ég vil svo láta á það reyna, hvort frjálst og óháð dagblaö vill birta þessa ritsmíði mfna, en ég geri enga kröfu til þess, enda á ég enga heimtingu á þvi, en skrifa þetta aðeins til að veita útrás inn- byrgðri andúð á skrifum Svarthöfða. K: ÍS&mémá MITSUBISHI MOTORS Mjög sparneytin og þýógeng Veltistýri 1600 cc eóa 2000 cc vél. Aóalljós meó innbyggóum þokuljósum. Stillanleg fram- og aftursæti og reynsluakið / Mé’■>* ■mm ~ m Tlik & ~Z^P~ •r WStLÐffiöSIXlO l ————■— mlZlLlímWm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.