Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JtJNl 1982.
SNAPPER,
18,5 feta sportbátur, með 75 ha. Chrysler utanborðsvél, keyrð ca 60 klst., og vagni. Toppstand. Upplýsingar í BARCO, Garðabæ, sími 53322.
Húsbyggjendur - leiga - tilboð -
steypumót - loftmót
Tökum að okkur alls konar verk í uppslátt og steypu á veggj-
um og loftum, grunnum o.fl. Einnig gerum við tilboð í jarð-
vegsskipti og útvegum fylliefni. Gerum tilboö samkvæmt
teikningum.
Fljót og vönduð vinna, unnin af fagmönnum.
Framtíðarhús hf. Símar: 11614 og 11616.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Hrafnhólum 8, þingl. eign Guðmundar 0.
Hallgrímssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á
eigninni sjálfri miðvikudag 30. júní 1982 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Rauðalæk 67, þingl. eign Sólrúnar Þorgeirs-
dóttur, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar hdl., Sigurmars K. Al-
bertssonar hdl. og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri þriðju-
dag 29. júní 1982 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á B-Tröð 8 Víðidal, þingl. eign Odds H. Oddssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðju-
dag29. júní 1982 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Hraunbæ 60, þingl. eign Jóns S. Pálssonar,
fer fram ef.Ir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Lífeyrissj.
verzlunarmanna á eigninni sjálfri þriðjudag 29. júní 1982 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Skeggjagötu 23, þingl. eign Guðmundar
Hólm o.fl., fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar hdl., Guðmundar
Jónssonar hdl. og Gests Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudag 28.
júní 1982 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Miðtúni 15, tal. eign Valdimars Thorarensen,
fer fram eftir kröfu Þorsteins Eggertss. hdl., Ólafs Thoroddsen hdl. og
Landsbanka Íslands á eigninni sjálfri miðvikudag 30. júní 1982 kl.
11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 25.. 30. og 35. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Völvufelli
26, tal. eign Jóns S. Guðnasonar, fer fram eftir kröfu Sigurðar H. Guð-
jónssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudag 30. júní 1982 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 15., 17. og 19. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Haðalandi
11, þingl. eign Bergs Guðnasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudag 30. júní 1982 kl. 11.00.
. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 34. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Hverfisgötu 82, þingl. eign Jóns Péturssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudag 28. júní 1982
kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 34. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Hraunbæ 102 þingl. eign Verzl. Halla Þórarins hf., fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 29. júní 1982
kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Hmir fifldjörfu ökuþórar Hell Drivers hafa skemmt landanum með akstri viða um land að undanförnu.
Þeir verða með sýningar i Reykjavik um helglna. Í dag kl. 16 sýna þeir á Melavellinum og aftur á morgun.
sunnudag, kl. 16og20. Aðgangseyrir er 60 krónur. DV-mynd Ólafur Guðmundsson.
Vegir um óbyggðir
landsins að opnast
Fjallvegir landsins, sem ekki teljast
til aðalleiða, eru nú flestir að verða
jeppafærir. Nokkrir eru þegar orðnir
færir öllum bílum en óvíst er hvenær
aðrir opnast.
DV leitaöi upplýsinga um ástand
hinna ýmsu fjallvega hjá Vegagerð
ríkisins. Fyrir svörum varð Sigurður
Hauksson, starfsmaður Vegaeftirlits-
ins.
Greiðfært er orðið um Uxahryggi.
Kaldidalur er lokaður en áætlað er aö
hefla hann eftir helgi. Nokkur bleyta er
enn á Tröllatunguheiði en hún er þó
orðin fær jeppum. Steingrímsfjarðar-
heiöi er ófær vegna sn jóa.
Leiðir um miðhálendi landsins eru í
misjöfnu ásigkomulagi. Kjalvegur er
fær jeppum en verður lagfærður í
næstu viku. Sprengisandur er enn ófær
en sú leiö veröur athuguð eftir viku til
tíu daga. Jeppafært er í Veiðivötn
en ófært í Landmannalaugar. Fært er
jeppum inn í Herðubreiðarlindir,
sömuleiðis inn í Drekagil en ófært er í
öskjuhrauni. Ofært er í Kverkfjöll.
Báðar Fjallabaksleiðirnar eru ófærar
en verða athugaðar eftir viku til tíu
daga.
Á Norðurlandi er orðið greiðfært um
Lágheiði. Þverárfjall er hins vegar
ófært. Axarfjaröarheiði er jeppafær
og veröur hefluð á næstunni.
Hellisheiöi eystri er enn ófær vegna
snjóa. Leiöin um öxi er einnig lokuð.
Enn er ófært inn i Landmannalaugar.
Kjalarnes:
FJÓRIR USTAR BOÐNIR FRAM
I Kjalameshreppi eru fjórir listar
boðnir fram í hreppsnefndarkosning-
unum sem fara fram í dag. Þeir eru:
D-listi Sjálfstæöisflokks og stuðnings-
manna, S-listi Samstööu, I-listi frjáls-
lyndra og H-listi óháðra.
„Við leggjum höfuöáherzluna á lagn-
ingu hitaveitu í hreppinn. Þaö er
meginskilyrði þess að við náum því
marki að lífskjör á Kjalamesi verði
þau sömu og á Reykjavíkursvæðinu.
Að því marki stefnum við sjálfstæðis-
menn,” sagði Jón Olafsson bóndi á
Brautarholti. Hann er efsti maður á
lista Sjálfstæöisflokks.
interRent
car rentai
Mesta úrvaliö. besta þjónustan
Við útvegum yður alslátt
á bílaleigubílum erlendls
Bílaleiga Akureyrar
AKureyri: Tryggvabr 14 - S. 21 715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S. 31015, 86915
Hann kvað sjálfstæðismenn vera
óánægða með hvernig andstæðingar
þeirra hafa rekið kosningabaráttuna.
Oháðir og frjálslyndir hafi ekki viljað
mæta á almennum hreppsfundi til að
ræöa málefni sveitarfélagsins. Boðað
var til kynningarfundar í hreppnum,
en einungis fulltrúar S-listans mættu
auk sjálfstæðismanna, að sögn Jóns.
Hann kvað fund þennan hafa veriö
málefnalegan og gagnlegan.
I ööru sæti á lista sjálfstæðismanna
er Jón Sverrir Jónsson verktaki.
BjamiÞorvarðsson eríþriðjasæti.
„Viö viljum halda við og auka sam-
band hreppsnefndar við hinn almenna
íbúa. Og að nefndir sveitarfélagsins
veröi gerðar virkari en nú er,” sagði
Stefán Tryggvason, efsti maöur á lista
Samstöðu.
Hann sagði aö reynt hefði veriö aö ná
saman einum lista gegn framboöi
óháðra. Það hefði ekki tekizt og því
hefðu þeir sem að lista Samstöðu
standa ákveðiö að bjóöa fram sér. Þeir
hafi ekki verið ánægðir með þá val-
kosti sem fyrir voru.
I öðra sæti á S-lista er Gunnar Finn-
bogason skógfræðingur. Ámi Snorra-
son bif reiðarstjóri er í þriðja sæti.
„Framboð óháöra hefur lagt fram
stefnuskrá í sjö liðum. Þar er mótuö
orkustefna sem felur í sér að hitaveita
verði logð í allan hreppinn og oliukynd-
ingu hætt og að úthlutað verði lóðum í
hreppnum. Við viljum fá aukiö fjár-
magn í hreppinn og þarf því aö byggja
upp atvinnulífið á Kjalamesi. Einnig
leggjum við áherzlu á dagvistunar-
mál,” sagði Oskar Harrý Jónsson, einn
af aðstandendumlista óháðra.
Hann sagði einnig að þeir sem að
framboðinu stæöu væra flestir íbúar
Grundarhverfis sem er þéttbýliskjami
á Kjalarnesi. Þó væri einnig á fram-
boðslistanum fólk úr sveitinni.
Björn Bjömsson framkvæmdastjóri
er í fyrsta sæti listans. Jónas Rúnar
Sigfússon er í öðra sæti og Hulda Ragn-
arsdóttir húsmóðir í þriöja sæti.
Anna Sigurðardóttir af lista frjáls-
lyndra kvaðst engu hafa við þaö að
bæta sem fram hefur komiö í blööum.
Allt sem þörf væri á hefði birzt þar.
Á kjörskrá á Kjalarnesi eru um 170
manns.
-GSG