Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.
# Húsnæðisstofnun ríkisins
SÍMI 28500 ■ LAUGAVEC.I 77 101 REVKJAVÍK
Ábending tii launagreiðenda
Skv. lögum nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun
ríkisins er öllum einstaklingum á aldrinum 16—
25 ára skylt að leggja til hliðar 15% af launum
sínum, enda hafi þeir ekki formlega undanþágu.
Atvinnurekendum og öörum launagreiðendum
er skylt að halda þessum skyldusparnaði eftir af
launum starfsmanna sinna.
Skv. 76. gr. þessara laga getur skattyfirvald
ákveðiö sérstakt gjald á hendur þeim atvinnu-
rekanda sem vanrækir skyldu sína í þessu efni.
Húsnæðisstofnun ríkisins beinir þeirri áskorun
til atvinnurekanda og annarra launagreiðenda
að gæta þessara lagaákvæða.
Húsnæðisstofnun ríkisins.
0G NÝJA
ÁHðFNIN MÍN
UMBOÐSMAÐUR
GUÐJÓN
JÓNSSON
SIMI
9671861
— Út um hvippinn og hvappinn — Út um hvippinn og
,,Er aö hlaða I
batteríin” I
— seg’ir Laddi sem er nýkominn heim frá námi
Hann Þórhallur Sigurösson eða
Laddi eins og flestir kalla hann er
nýkominn heim frá Ameríkunni
þar sem hann er að læra leiklist.
Þórhallur hefur hreiörað um sig
í Los Angeles og stundar þar nám
við U.C.L.A. háskólann.
„Ég mátti ekki til þess hugsa aö
missa af Þórskabarettinum svo
þess vegna kom ég heim,” sagði
hann um leiö og hann fékk sér
kaffisopa með blm.
Lærírá
sjálfan sig
— Hvernig kanntu svo við þig í
L.A.?
„Vel. Þarna er allt svo nýtt fyrir
manni Maður lærir ekki bara ein-
göngu leiktækni heldur líka ýmis-
legt um sjálfan sig. Þarna er allt
annar lífsmáti en maður á að venj-
ast.”
— Eins og hvernig?
„Þama eru svo margir og
maöur er algerlega einn og enginn
þekkir mann. Vera mín þama hef-
ur fengið mig tU aö sjá sjálfan mig
ínýju ljósi.”
— Er þetta ekki rándýrt fyrir-
tæki?
„Nei, ég læt það allt vera. Skól-
inn er ekkert svo svakalega dýr.
Það er aðaUega mikUl ferðakostn-
aður. Það er alveg ofboöslega dýrt
að ferðast á mUU íslands og
Bandaríkjanna. En ég Ufi mjög
ódýrt þarna, bý í einu herbergi og
lifi á grænmeti. Þarna úti er græn-
metið svo svakalega gott að ég
boröa næstum ekkert annað. Ég
ætla að vera ár í viðbót ef ég fæ
námslán.
„Smástöðnun...
— Hvað lærir þú þama?
„Bara almenna leiklist og svo
hef ég líka verið á söngleikjanám-
skeiöi.”
— Þú ert ekkert hræddur við að
vera orðinn fastur í hlutverki grín-
arans Ladda?
„Það er nú einmitt þess vegna
sem ég ákvað að fara út. Það get-
ur vel veriö aö fólk taki mann út úr
grínarahlutverkinu ef maöur læt-
ur sig hverfa af sjónarsviðinu um
tíma.”
— Varstu orðinn leiöur á því að
segja brandara?
„Nei, ekki leiður, en ég fann fyr-
ir smástöðnun. Ég fór út fyrst og
fremst til þess aö hlaða betteríin
upp á nýtt og svo auövitað til þess
að ná lengra í leiklistinni. Þetta
tvennt fylgist alltaf að. ”
Teknámið
föstum tökum
— Hvernig hagar þú svo þínu
námi þarna?
„Ég tek það eins föstum tökum
og ég get. Ég les, læri, og æfi senur
meö öðrum nemendum aUan dag-
inn. Svo leikum við stykkin fyrir
kennarann sem síðan segir okkur
hvernig til hefur tekizt. Nú stund-
um lætur hann mann æfa allt upp
á nýtt eða þá að hann er ánægður
með árangurinn og lætur mann fá
nýjar æfingar.”
— En hvemig gekk þér að ná
valdiá enskunni?
„Það gekk andskoti stirðlega
fyrst. Ég gleymi því aldrei þegar
ég stóð á sviðinu í fyrsta skipti. Ég
bögglaði enskunni út úr mér og
fannst ég vera alveg ömurlegur.
Það er allt annað að tala ensku við
kunningja sína en að eiga að fara
að leika hlutverk á ensku. En ég er
í enskunámi samhUða leiklistar-
náminu svo þetta gengur allt hjá
mér.”
Örírtið brot
afsöngleik
— Kemur þú meö eitthvað nýtt
inn í Þórskabarettinn frá dvöl
þinni í Ameríku?
„Já, égtók með mér örlítið brot
af söngleik sem verið er að sýna
þama úti. En sá söngleikur heitir
Chorus Line.”
— Hvað gerir þú svo í frístund-
umþínum úti?
„Égfer íbíó.”
— Hver er þinn uppáhaldsleik-
ari?
„Alveg tvímælalaust hann Ro-
bert De Niro. Hann er beztur.
TæknUega séð sá albezti. Hann Uf-
ir sig svo inn í hlutverkin sín.
Hann vann t.d. nokkra mánuði
sem leigubUstjóri áður en hann
lék í myndinni The Taxi Driver.”
— Hvað með hann Þórð, kemur
hann ekkert meira í Stundina
okkar?
„Nei, nú fer karlinn bara út á
land að heimsækja krakkana þar.
Við ætlum okkur að vera með
bamaskemmtanir þar sem viö
komumþví við.”
Börn eru
krítísk
— Er einhver munur á því aö
leika fyrir f ulloröna eða börn?
„Nei, þaö held ég ekki. Og þó,
börn em miklu krítískari. Ef þeim
líkar ekki láta þau óspart í sér
heyra. Þau em kannski beztu
dómararnir. ”
-E.g.
Leikaramynd afLadda