Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ & VISIR. FIMMTUDAGUR1. JULl 1982. SUMIR VERSLA DÝRT- AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Tómatar Agúrkur Paprika 29,s 29« 'ÍA.oo ^JXJpr.kg. NÝR LAX Ný egg AáZ DAGLEGA ^^ .00 pr.kg. AUSTURSTRÆTI 17 STARMÝRI 2 Höfum opnad nýtt og fullkomid verk- stœði, bjóðum: BLETTUN ALMÁLNINGU LAKKBÖKUN VÖNDUÐ VINNA UNNIN AF FAGMÖNNUM: Bílasprautun Hallgríms Jónssonar Drangahrauni 2. Sími 54940 Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur í júlímánuði 1982. Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriöjudagur Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur 1. júlí R-41001 til R-41200 2. júlí R-41201 til R-41400 5. júlí R-41401 til R-41600 6. júlí R-41601 til R-41800 7. júlí R-41801 til R-42000 8. júlí R-42001 til R-42200 R-42201 til R-42400 9. júlí Bifreiðaeigendum ber aö koma meö bifreiðar sínar til Bifreiöaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8 og veröur skoöun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08.00 til 16.00. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiöum til skoðunar. Við skoöun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því aö bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því aö skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald- mælir í leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tíma. Á leigubifreiðum til mannflutn- inga, allt aö 8 farþegum, skal vera sérstakt merki með bókstafnum L. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoð- unar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð og hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. I skráningarskírteini skal vera áritun um það að aðalljós bifreiðarinnar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1981. Athygli skal vakin á því að vegna sumarleyfa verður engin aðalskoðun auglýst frá 12. júlí til 6. ágúst. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 25. júní 1982. Neytendur Neytendur Neytendur Ragnheiður Bogadóttir húsmóðir með börnin sín tvö, Sigrúnu og Ivar Bjarka. Verdlaunahafi apríl- mánaðar heimsóttur austur á Selfoss „Það er ljómandi gott að búa hér og ég vil ekki hreyfa mig héðan,” segir Ragnheiður Bogadóttir húsmóðir á Selfossi. Við erum stödd að heimili hennar og eiginmannsins Magnúsar Kolbeinssonar lögreglu- þjóns að Laufhaga 3. Það er einn af þessum dögum, þegar sólin skín í heiði og maður tautar fyrir munni sér á ferð um þjóðveginn að hvergi sé nú fallegra um aö litast. Urð og grjót, sandar og melar sem sólar- geislarnir leika við, verða svo undar- lega lifandi í blóma sólarljóssins. Ragnheiður og Magnús búa í hlýlegu hverfi á Selfossi ásamt börnum sín- um tveimur, Sigrúnu sjö ára og Ivari Bjarka tveggja ára gömlum. Það er friðsæld og kyrrð yfir íbúum og húsum og vel skiljanlegt að Ragnheiður vilji sig ekki hreyfa. Tilgangur heimsóknarinnar að Laufhaga var að afhenda verölaun aprílmánaðar i heimilisbókhaldi DV og forvitnast um hagi verðlauna- hafa. „Ég hef haldið heimilisbókhald í mörg ár, fylgzt með ykkar bókhaldi frá byrjun og alltaf sent inn upplýsingaseðla mánaðarlega,” segir Ragnheiður. Erindi blaða- manna eru venjulega fólgin í því aö spyrja spuminga en nú megum við vart mæla því gómsætar kökur Ragnheiðar fylla munna og okkur vefst tunga um tönn. Við komumst þó á snoðir um að Ragnheiöur telur sig vera lukkunnar pamfíl, þetta er í annað sinn sem hún fær verðlaun í heimilisbókhaldinu. I september 1980 var hún verölaunahafi og notaöi þá peningana til að festa kaup á saumavél. I fyrra brá hún sér á skemmtun hjá Sumargleöinni og hélt þaöan með bingóvinning í vasanum. Nú eru það tvö þúsund krónumar, DV verðlaun aprílmánaðar sem hún fær í hendur. Það hefur orðið að samkomulagi aö þessu sinni að Ragnheiður velji einhvern hlut sjálf fyrir verðlauna- peningana. Kaf fitíminn er liðinn og viö höldum í verzlunarleiðangur á Selfossi. Ragnheiður leiðir okkur að verzlun við Eyrarveg 15, þar innan búðar em húsgögn í úrvali og kaupmaður- inn Sigurbjöm Einarsson tekur vel á móti okkur. I einu horni verzlunarinnar er forkunnarfallegur skápur sem greinilegt er að Ragnheiður hefur augastað á. Eftir örskamma stund hafa kaupin verið gerð, við afhend- um kaupmanni stóran hvítan seðil sem staðfestingu á úttekt fyrir tvö þúsund krónum. Danski skápurinn kostar reyndar meira en okkar seöill hljóðaði upp á en um afganginn sér Ragnheiður. Þá er erindi okkar lokið á Selfossi aö sinni, og við höldum í vesturátt meðsólinni. -ÞG Sigurbjöm Einarsson, kaupmaður í verzluninnl Kjörhúsgögn, verðlaunahafinn við danska eikarskápinn sem varð fyrir valinu. DV-myndir: Bj.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.