Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 8
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FIMMTUDAGUR1. JULI1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Tekst að komast hjá úrslitaorrustu í Beirút?:
ísraelsmenn veita
Habib aukinn tíma
—til að telja PLO-menn á að verða á brott f rá Beirút
Málamiðluní
ríkisstjórn
V-Þýzkalands
Málamiölun tókst ó milli
stjóramálaflokkanna tveggja í
ríkisstjóm V-Þýzkalands í gær
um gerð f járlagafrumvarps fyrir
næsta ár. Frjálslyndir höfðu hót-
að því að rifta stjóraarsamstarf-
inu við Jafnaöarmannaflokk
Helmut Schmidts kanslara ef
flokkarair næðu ekki samkomu-
lagi um f járlagafrumvarpiö.
írska stjórnin
aðfalla
Charles Haughey, forsætisráð-
herra trlands, tapaði í gær kosn-
ingum i irska þinginu um lokun á
verksmiðju þar sem 600 manns
starfa. Stjórnarandstaöan mun í
dag leggja fram formlegt van-
traust á ríkisstjómina og er útlit
fyrir að þriðju þingkosningarnar
þar i Iandi á einu ári séu á næsta
leiti.
Israelsstjórn skýröi í gær frá því að
hún hefði veitt Philip Habib, sérlegum
sendimanni Bandaríkjastjómar í
Miðausturlöndum, aukinn tíma til að
telja Frelsissamtök Palestínumanna,
PLO, á að láta af hendi hin þyngri vopn
sín og verða á brott friðsamlega.
„Ríkisstjórnin telur enn að mögu-
leiki sé á aö fá skæruliðana friösam-
lega á brott og hefur veitt Bandaríkja-
mönnum aukinn tima til að koma því í
kring,” sagði talsmaður ríkisstjómar-
innar. Jafnframt varaði hann skæru-
liða við að tíminn væri senn á þrotum.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði á
fundi með fréttamönnum í gær að
Bandaríkjamenn stefndu að því að allt
útlent herlið yrði á brott f rá Líbanon og
að endi yrði bundinn á starfsemi
hryðjuverkamanna þaöan gegn Israel.
Hann neitaöi því að ráðamenn í
Washington hefðu vitaö um innrás
Israels áöur en hún var gerð eða sam-
þykkt hana fyrirfram.
Hann lét í ljós samúð með markmiöi
Israelsmanna með árásinni en ítrekaði
að nú vildu Bandarikjamenn að endi
yrði bundinn á blóöbaðið. Jafnframt
sagði Reagan að afsögn Alexanders
Haigs úr embætti utanríkisráðherra
myndi ekki hafa í för með sér að breyt-
ing yrði á utanríkisstefnu
Bandarikjanna.
PLO-menn pyntaðir
af ísraelsmönnum?
„Við sáum hvemig ísraelskir her-
menn slógu fanga, sem voru með
hendur bundnar fyrir aftan bak, í
andlitið og spörkuðu einnig framan i
þá, í maga þeirra og klof. Á einum og
hálfum sólarhring, sem okkur var
haldið föngnum meö þeim, dóu um tíu
fangar af völdum þorsta, hungurs og
hita.”
Þannig segist norska uppeldis-
fræðingnum öjvind Möller frá. Hann
er einn þeirra norsku hjúkrunar-
Israelskir hermenn með palestínska fanga. Undanfarið hafa ásakanir á hendur
ísraelsmönnum fyrir illa meðferð á palestínskum föngum orðið sifellt háværari.
manna, sem um hríð var fangi
ísraelskra hermanna í Líbanon en nú
eru komnir heim til Noregs.
Hann var handtekinn ásamt
lækninum Steinar Berge þegar
ísraelski herinn réðst inn í Sídon í
Suður-Líbanon. Þeir tveir störfuðu í
liöi hjúkrunarmanna, sem sent var til
Líbanon af norsku samtökunum Pal-
estínufylkingunni.
Enginn vissi hvað orðiö hafði um þá.
Það var ekki fyrr en vika var liöin frá
því að þeirra var saknað að norska
utanríkisráðuneytið fékk staðfestingu
frá Israel um að þeir hefðu verið hand-
teknir og yfirheyrðir. Þeir hafa sjálfir
ekki fengið neina skýringu á því hverrs
vegna þeir voru handteknir. Skýringin
kann að vera fólgin í því aö nærri
sjúkrahúsinu sem þeir störfuðu við
fundu Israelsmenn mikið vopnabúr
PLO-skæruliða.
öjvind Möller segir að oft hafi
margir hermenn ráðizt á sama
fangann. „Til dæmis réðust þeir á
mann á sextugsaldri, er hafði sparkaö
í einn hermannanna, líklega vegna
þess að hann var fullur örvæntingar
sökum þorsta. Fimm eöa sex hermenn
spörkuðu í hann og slógu þar til hann
lá meðvitundarlaus. Síðan voru
hendur hans bundnar aftur fyrir bak
og honum ýtt út í sólina þar sem hann
varlátinn liggja.
Meöal fanganna voru bæöi
palestínskir hermenn og óbreyttir
borgarar. Allir fengu jafnslæma
meðferð nema við sem fengum aðeins
smápústra.”
öjvind Möller og Steinar Berge voru
afhentir norska sendiráöinu í Israel
eftir mikinn þrýsting frá norska utan-
ríkisráðuneytinu.
FlugrániðfBangkok:
Kona ræningjans
bjargar gíslum
Frelsun 120 gísla um borð í ítalskri
Boeing 747 farþegaþotu á flugvellin-
um í Bangkok virtist trygg í morgun
þegar eiginkona flugræningjans hafði
komíð með fjögurra ára gamlan son
þeirra um borð í vélina að kröfu ræn-
fngjans. Farþegarair höfðu þá verið í
gíslingu flugræningjans í meira en
sólarhring.
Heimildir meðal öryggisvarða á
fiugvellinum sögðu aö Sepala Enana-
yaka, 33 ára gamaU Sri-Lankabúi,
hefði þá fallizt á að fjarlægja
sprengju þá sem hann sagðist hafa
limt við brjóst sér og leggja hana á
sæti í vélinni.
Opinber staðfesting hafði ekki
fengizt á þessu. Deilur Enanayaka
við konu sína um umráðarétt yfir
syni þeirra leiddu til þess að hann
rændi flugvélinni.
Sendimaður Menachems Begins:
„Staðhæfingarnar
ekki trúverðugar”
„Staðhæfingar um aö ísraelskir
hermenn hafi pyntaö palestinska
fanga eru ekki trúverðugar. Báðir
Norðmennirnir sem halda því fram,
eru sjálfir stuðningsmenn,” segir
Josef Rom, sem ísraelska ríkisstjómin
hefur sent til Noröurlanda til að kynna
sjónarmiö Israels í Líbanon-
styrjöldinni.
Rom á sæti á ísraelska þinginu
Knesset og er flokksbróðir Begins for-
sætisráðherra í Likudbandalaginu.
Rom segir aö Israelsmenn hafi tekið
nokkur þúsunda PLO-skæruliða til
fanga. Hann kveöst ekki geta gefið á-
kveðið svar um hvað verði um þessa
fanga og segir að aðstaðan sé erfið.
Hann heldur því fram að frásagnirnar
af eyðileggingunni í Suður-Líbanon séu
mjög ýktar.
„Einu staðimir sem hafa orðið fyrir
eyðileggingu em Týros og Saida,”
segir hann. „Inni í þessum bæjum
mættum við mótspyrnu. Stærstu hlutar
þeirra hafa þó ekki orðið fyrir
eyðileggingu,” segir Rom. Staðhæfing
hans stangast á við fullyrðingarfrétta-
manna er heimsótt hafa þessa staði
og tala um næstum algjöra
eyðilegginguþar.
Rom segir lika að tölur um mannfall
óbreyttra borgara séu fjarri öllum
sanni.
Hann segir að bara nokkrir tugir
óbreyttra hafi falliö í valinn. Talsvert
er hins vegar um liðið síðan Rauði
krossinn áætlaði að a.m.k. tíu þúsund
óbreyttir borgarar hefðu falliö og
örugglega hafa einhverjir bætzt í hóp
hinna föllnu eftir þaö.
Sú fullyrðing Roms að íbúar þeirra
borga, sem Israelsmenn hafi ráðizt inn
í, hafi áður verið hvattir til að forða
sér, hefur hins vegar hlotið staðfest-
ingufréttamanna. „Viðhöfumgertallt
sem við gátum til að vernda óbreytta
borgara’ segir Josef Rom.
FARPANTANIRog FARGJÖLD
innanlandsflug
millilandaflug
FLUGLEIÐIR
Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju númerin á bls. 78 í símaskránni. Gott fólk hjá traustu félagi
26622
25100