Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JOLl 1982. MMMumMmm ——b——— fijálst, áhúð dagblað Útgófufólag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Höröur Eínarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. Aöstoöarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjóri: Jónas Haraldsson. Auglýsingastjórar: Páll Stefánsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritstjórn: Síðumúla 12—14. Auglýsingar: Slðumúla 8. Afgreiðsla, áskriftir, smóauglýsingar, skrifstofa: Þvorholti 11. Sími 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Sföumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skerfunni 10. 'Áskríftarverð é ménuöi 120 kr. Verö i lausasölu 9 kr. Helgarblað 11 kr. Togari með tapi Þá er sá frægi Þórshafnartogari kominn til heimahafn- ar. Undir blaktandi fánum og hátíðarræðum gengu þing- menn kjördæmisins um borð og skoðuðu gripinn. Það hafa þeir eflaust gert með velþóknun. Sjaldan hafa jafn hatrammar deilur staðið um nokkur skipakaup, aldrei hefur nokkur togari átt jafn mikið undir högg að sækja og hið nýja skip þeirra Þórshafnarbúa. En þingmennirnir höfðu sitt fram, og hér er togarinn kominn, glæsilegt togskip með fullkomnum búnaði. Sjálf- sagt er að óska byggðarlögunum nyrðra til hamingju með skipið. Vonandi verður það fengsælt á miðum og atvinnu- skapandi í landi. Fólkið á Þórshö&i og Raufarhöfn er ekki ofhaldið í velsæld og lífskjörum þótt ekki séu hafðar uppi hrakspár um nýtt og velbúið atvinnutæki. Það er ekki fólksins sök þótt borðliggjandi sé að út- gerðin mun aldrei standa undir sjálfri sér. Það er ekki fólkinu að kenna að þorskaflinn sé ekki til skiptanna, og það er heldur ekki við Þórshafnarbúa að sakast þótt kerf- ið bjóði upp á þá möguleika að nýr togari sé fjármagnað- ur með 95% lánafyrirgreiðslu úr opinberum sjóðum. Það er jafnvel ósanngjarnt að einblína svo mjög á þenn- an eina togara, því hann er aðeins eitt af mýmörgum dæmum um fáránleikann í fjárfestingu hérlendis. Um allt land, á flestum sviðum, má benda á hliðstæður sem felast í því að ráðist er í óarðbærar fjárfestingar og fram- kvæmdir af ábyrgðarleysi og óráðsíu. Allt á þetta sínar orsakir í óeðlilegum afskiptum stjóm- málamanna og embættismanna, sem starfa í anda póli- tískra hagsmuna; atkvæðaveiðum, fyrirgreiðslu í nafni atvinnubóta. í þeim efnum er sjaldnast spurt um markað, arðsemi, skynsemi. Hver um sig beitir þrýstingi og aðstöðu, póli- tísku valdi, til að knýja fram misskilda aðstoð við um- bjóðendur sína. Gengið er í opinberasjóðisem einkaeign og örlætið réttlætist af hrossakaupum og samtryggingu hinnar ráðandi stéttar. Togari hér, verksmiðja þar og upp hlaðast steinullarverksmiðjur og taptogarar, sem skapa atvinnu í skamman tíma en botnlausan rekstrar- halla um aldur og ævi. Á sama tíma og álverksmiðjan er rekin með bullandi tapi eru uppi áform í iðnaðarráöuneytinu um að íslend- ingar kaupi verksmiðjuna. Á sama tíma og notkun stein- ullar fer minnkandi er samþykkt að leggja fé úr ríkissjóði til framleiðslu steinullar! Á sama tíma og þorskafli dregst saman eru sagðir átta nýir togarar á leið til lands- ins! Þessi þróun er ekkert gamanmál. Menn geta ekki falið sig á bak við þakkarávörp og kampavínsglös á hátíðleg- um stundum. Starf þingmannsins er ekki einasta fólgið í því að safna um sig atkvæðum í kosningum. Ábyrgðin er meiri og merkilegri. Meiin eru ekki kosnir til áhrifa til þess að misbeita þeim. Stjórnleysið og pólitíska fyrirgreiðslan er hættulegasta meinsemdin í þjóðfélaginu. Hún er að koma okkur á von- arvöl. Nýi togarinn á Þórshöfn er keyptur fyrir opinbert fé. Hann safnar skuldum þótt fullfermi veiðist í hverjum túr. Hann dregur úr aflamagni annarra togara, rýrir kjör sjómanna, eykur á allsherjarvandann. Og áður en varir bætist hann í hóp togaraútgerðarinnar í landinu, sem krefst hærra fiskverðs, styrkja og fyrirgreiðslu með til- heyrandi hótunum um stöðvun og atvinnuleysi. Það er vit í þessu eða hitt þó heldur! ebs Sjálfsafgreiðsla menningarvita I okkar verðbólgusjúka þjóðfélagi er svo komiö að setja má jafnaðar- merki milli orðanna stjómmál og efnahagsmál, og það sem meira er: Orðið efnahagsmál þýöir nánast rifr- ildi um krónur og aura dagsins í dag, framtíðin er eitthvaö sem kemur fólki tæplega við. Auðvitað eru efnahagsmál í víðtækum skilningi einn þýðingarmesti þáttur stjórn- mála, en ekki getur þó hjá því fariö að fleiri mál séu þýðingarmikil. Þar má til nefna menningarmál hvers konar, bæði þau er lúta að almennri menntun og sérmenntun í landinu, og svo einnig hin er varða listir hvers konar og annað það er til almennra menningarmála telst. Er til menningar- málastefna? Forvitnilegt væri að fá að vita hvort til er almenn menningarmála- stefna á Islandi, annað hvort frá opinberum aöilum eöa stjórnmála- flokkum. Þá á ég ekki viö orða- gjálf urs-langlokur, eins og finna má í samþykktum stjómmálaflokkanna í hvert skipti er þeir halda meiri- háttar þing, sem ekkert segja annaö en það sem hver einasti maður getur tekið undir, heldur markaða stefnu, sem vísar leiðina fram á við. Slík stefna reynist annað hvort rétt eða röng, þegar reynsla er komin á, og þá er unnt að breyta henni og reyna nýja farvegi, en orðagjálfurssam- þykktimar eru þann veg smíðaðar aö aldrei verður hönd á því fest hvort þær f ái staðist eða ekki. Raunar held ég aö svarið liggi í augum uppi. Engin menningarmála- stefna er til í þessu landi og raunar hefur almenningur aldrei skilið hvert stefnt er síðan Jónas frá Hriflu var og hét. Hann hafði ákaflega ákveðnar skoðanir á hlutum og var ófeiminn við að setja þær fram og framfylgja þeim, þegar hann hafði afl til. Ég get þessa ekki vegna þess að ég sé sammála öllum þeim skoðunum sem hann lét í ljósi, svo sem viðhorfum hans til nýrra stefna í listum, heldur til þess að benda á að þá var til maður sem hafði völd, var ófeiminn viö að nota þau og ekki yfir það hafinn aö hafa ákveðnar skoðan- ir í menningarmálum. Umræður um skoöanir og gerðir Jónasar voru miklar og heitar, menn sáu til skiptis í honum allt að guölega forsjón þjóölegrar menningar og þann vorida sjálfan. Samhliða þessu urðu miklar hræringar í listum hvers konar. Menn lögðu sig alla fram um að sanna gildi sitt og þeirrar liststefnu er þeir fylgdu, ekki hvað síst ef ljóst var að hún var ekki í náðinni hjá stjórnvöldum. Á þessum árum full- mótuðust margir okkar fremstu listamanna, sem nú eru farnir að týna tölunni og skilja eftir sig ófyllt skörð. Góðir dagar og sterk bein Stjórnvöld eiga ekki að hafa af- skipti af menningu og listum er sagt, og vissulega er það aö mörgu leyti rétt. Mikil ríkisafskipti af þeim hafa leitt til stöönunar og úrkynjunar, það sýna okkur mörg dæmi utan úr hin- um stóra heimi. Ég á heldur ekki við þaö aö stjórnvöld eigi að fara að segja til um það hvað sé list og hvaö ekki. En mér er nær að halda aö hið algera stefnuleysi opinberra vald- hafa í menningarmálum svo áratug- um skiptir hafi ekki haft örvandi áhrif á listsköpun í landinu. I staö ríkisafskipta — óhóflegra á stundum — virðist hvers kyns klíkuskapur ráða ferðinni í mörgum listgreinum, þar sem bæði kunningsskapur og flokkspólitík virðast á stundum meira virði en gæðin. I staö baráttu við ríkisvald og þá einkum fjárveit- ingarvald er komin einhvers konar s jálfsafgreiðsla þar sem sömu þættir virðast gildastir til frama. Eru nýleg dæmi um rithöfunda þar ljósastur vottur. Sem betur fer þá gerum við yfir- leitt betur við listamenn okkar en fyrrum og sú trú er líklega loksins að verða útdauð að menn þurfi að svelta til þess að geta skapað listaverk. En máltækið sem segir að það þurfi sterk bein til þess að þola góða daga á líklega að nokkru við þama eins og víöar. Það er eðlilegt að menn velti því fyrir sér hvort hinir fjölmörgu starfsstyrkir, starfslaun og hvað það nú heitir allt saman, sem listamenn njóta hafi í raun haft örvandi áhrif á listsköpun. Ég get ekki að því gert að mér finnst enginn rithöfundur hafa komið fram hin síðari árin, sem sé líklegur til þess að feta í sumra fót- spor þeirra sem nú eru á efri árum. Ég veit að þetta er sleggjudómur sem byggist aöeins á persónulegu virðhorfi, en mér hefur hreinlega oft orðið óglatt við að lesa hástemmt lof eins blekbullarans um annan kh'ku- bróöur, sem aðeins sárafá menningarsnobb endast til að lesa, af skyldurækninni einni saman. Ég er ekki með þessu að amast við því að menn geri tilraunir til þess að skrifa bækur, fjarri því, en að þeir geti komist í hálaunaflokk fyrir það eitt að vera í réttri klíku, án þess að nokkur nenni að lesa verk þeirra, er of mikiö af því góða. Svipað gæti ég persónulega sagt um flestar hinna svokölluðu skap- andi listgreina. Ég segi svokölluðu, því aö auðvitað er öll góð list skap- andi, en ég held mig hér við gamal- gróna skilgreiningu. Ég verð ekki var við það að góðu dagarnir hafi leitt neina fjörfola fram á skeiðvöll- inn. Þvert á móti virðist listsköpun almennt vera að færast meira og meira í það form að listamenn fram- leiði hver fýrir annan, almenningi kemur máliö ekki við, honum er sagt að þetta sé harla gott og ef hann tekur því ekki þegjandi, þá er hann bara vitlaus. Hvernig stefna þá? Hvemig á þá stefna hins opinbera í menningarmálum að vera? Ég játa vanmátt minn við að svara þeirri spumingu. En hún á að vera til. Ég held að það sé betra aö hún sé slæm en engin. Það má rífast um slæma stefnu, það má breyta henni, en um stefnuleysi er erfitt að deila, þess HLUTVERKUM SNÚIÐ VIÐ Of mikil ríkisumsvif Staða og hlutverk ríkisins er gamaltágreiningsefnií stjórnmálum. Flestir munu þó sammála um að oddvitar þess eigi að setja þjóðfélagsþegnunum þær almennu reglur, sem við köllum lög, skera úr þrætum manna og framfylgja lögum að öðru leyti. Aörir vilja ganga lengra og fela því æ fleiri verkefni, unz það birtist þjóðfélagsþegnunum í allra kvikinda líki: sem löggjafi, dómari, framkvæmdavaldshafi, uppalandi, leiöbeinandi, atvinnuveit- andi, framfærandi o. fl. o. fl., unz enginn veit hvað þetta ríki eiginlega er. Og alltaf þenst þetta óskilgreinanlega fyrirbæri út, svo að ekki er um annaö meira talaö. Sam- vinnuhreyfingin notaði aldarafmæli Sigurður Líndal sitt tilaðlýsaáhyggjumútafsívax- andi umsvifum ríkisins í atvinnulífi ogákvaðaðsnúasttil vamar. Ónóg umsvrf rikisins En í allri þessari umræöu um ríkið minnist ég þess vart að hafa heyrt neinn láta í ljós að umsvif þess kunni að vera of lítil og athafnasemi odd- vita þess minni en skyldi. Enginn virðist hafa áhyggjur af því að svo kunni að vera, enda liggja dæmi um það ekki jafnvel í augum uppi og hin. I lögum nr. 55/1980 er þetta meinleysislega ákvæði (en það komst raunar í lög 1974): „Laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.