Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Qupperneq 15
Blrgir Olafsson skrifstofustjóri ásamt starfsstúlkum á söluskrifstofu Flugleiða í Lækjargötu. Eins og sjá má hafa
oröiö verulegar breytingar á húsnæðinu. DV-mynd: Einar Olason.
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JULI1982.
Breytt söluskrif stofa Flugleiða
Breytingar hafa veriö gerðar á sölu-
skrifstofu Flugleiöa í Lækjargötu. Hún
hefur verið innréttuð á nýjan og
smekklegan hátt. 14 afgreiðsluborð eru
nú á skrifstofunni sem mun vera sú
stærsta hér á landi. Aðstaöa öll er mun
betri en áöur — bæði fyrir viðskipta-
viniog starfsfólk.
Blaðamönnum var boðið að skoða
söluskrifstofuna eftir að breytingum
var lokiö. Þar kom fram í máli Björns
Theodórssonar, framkvæmdastjóra
markaðssviös, að húsnæðiö í Lækjar-
götu væri mjög tengt sögu íslenzks
miililandaflugs. Hann gat þess aö Loft-
leiðir hefðu opnað skrifstofu þarna árið
1948. Flugfélag Islands hóf síðan rekst-
ur á húsnæðinu árið 1962. Frá því að
fyrmefnd félög voru sameinuð hafa
Flugleiöir haft þama aðsetur.
Nýju innréttingarnar em hannaöar
af vinnustofunni Klöpp.
-GSG
Ný skýrsla um vinnuslys:
Frumhlaup í túlkun og
engar nýjar niðurstöður
—segir forstjóri Vinnuef tirlits ríkisins
15
BIFREIÐAVARAHLUTIR: .
Eigum fyrirliggjandi á hagstæðu verði í
eftirtaldar tegundir:
FRAMBRETTI GRILL STUÐARAR
Citroen GS, GSA Citroen GS, GSA. Citroén GSA
Datsun 120Y, 160J, Datsun 120Y, 160J Datsun 120Y, 140,160J
220C, Pick-up, 230 C 220C, 180B 220C, Pick-up
Escort’75 —up Ford Cortina ’77 — up Ford Cortina
Honda Civic ’76—'79 Ford Granada, Taunus Ford Taunus
Toyota Celica ’77 Honda Civic Ford Escort ’75
Toyota Hilux. Peugeot 305,504,505 Honda Civic
Toyota Hilux
HÚDD
Citrocn GS, GSA
Datsun 120Y, 160J Stefnuljós, DRIFÖXLAR
Pick-up Toyota Hilux afturljós FRAMHJÓLADRIFS
númeraljós Citroén GS, CX.
SVUNTUR Citroén GS, GSA VW Golf
Citroen GSA Datsun 120Y, 220C VW Passat
Datsun 120Y Ford Cortina Austin Mini
Toyota Hilux Ford Taunus 850/1000
C ÖSKARIIOn.
SKEIFUNNI 5 - SÍffll 33510 OG 34504 REYKJflVÍK
LÉTTAR HANDHÆGAR
STEYPUHRÆRIVÉLAR
Verð aðeins kr. 3.955.-
„Til að takast á við rætur þess vanda
sem mikil streita, atvinnusjúkdómar
og vinnuslys eru, virðist nærtækast að
bæta ástand vinnustaða, vinna að úr-
bótum í öryggismálum vinnustaða og
stytta vinnutímann. Urbætur á þessum
sviðum krefjast vafalaust mikils
átaks, en það mun væntanlega leiða til
betri andlegrar og líkamlegrar liöanar
verkafólks.”
Þessi orð eru meðal þess sem fram
kemur í niðurlagi nýrrar skýrslu um
vinnuslys. Hún er byggð á niðurstöðum
vinnuverndarrannsóknar iðnaðar-
mannafélaganna árið 1981. Að rann-
sóknum þessum vann sérstök nefnd
sem kostuð var að mestu af verkalýðs-
félögum, en undir skýrsluna skrifa
fjórir einstaklingar, þau Heiðbrá Jóns-
dóttir, Jónas Gústafsson, Einar Bald-
vin Baldursson og Gylfi Páll Hersir.
I niðurstöðunum kemur fram aö
mikil fylgni sé milli langs vinnutíma,
afkastahvetjandi launakerfa og slæms
aöbúnaöar annars vegar og tíðni
vinnuslysa hins vegar. Tölur eru
nefndar um að rúmlega fimmti hver
iðnaðarmaður á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og á Akureyri hafi orðið fyrir
vinnuslysi á tólf mánaða tímabili. Þar
af hafi helmingur þeirra verið frá
vinnu í viku eða meira vegna vinnu-
slysa. Þá er í skýrslunni tafla sem sýn-
ir að tæp 9% þeirra sem vinna minna
en 40 stundir á viku lendi í slysum, en
af þeim sem vinna 59 stundir eða
meira er hlutfallið 28,3%.
„Þessi skýrsla er okkur algjörlega
óviðkomandi og kemur í raun spánskt
fyrir sjónir sumt af því sem þar er sett
fram,” sagði Eyjólfur Sæmundsson for-
stjóri Vinnueftirlits ríkisins, í samtali
við DV. „I henni er til dæmis ekkert
fjallað um þaö umfangsmikla starf
sem okkar stofnun hefur með höndum
og þær aðgerðir sem stöðugt er unnið
að til að fyrirbyggja vinnuslys.”
Eyjólfur nefndi sem dæmi að vitnað
væri í skýrslu frá öryggiseftirliti ríkis-
ins frá árinu 1978 og mikið klifað á, að
þar væru um 80% vinnuslysa rakin til
yfirsjóna í starfi eða nánar tiltekið
mistaka hins slasaöa. Kvað hann hér
vera um algera rangtúlkun að ræða,
því að undir þessa tölu væru flokkuð öll
þau slys sem rekja mætti til mann-
legra þátta. Þar mætti nefna mistök í
skipulagningu, stjómun og fræöslu,
mistök af hálfu innflytjenda eða fram-
leiðenda vél og fleira í þeim dúr. Sagö-
ist hann álíta það mikiö frumhlaup
þeirra sem skýrsluna unnu að mis-
skilja svo þessar forsendur.
„Skýrslan er unnin af ákveðnum
hópi, sem gefur sér ákveðnar forsend-
ur, en sleppir veigamiklum þáttum.
Viö sendum hér frá okkur áriega um
3000 beiðnir um aukiö öryggi og bættan
aðbúnaö á vinnustöðum og á ári hverju
eru hér rannsökuð ofan í kjölinn 150 til
200 vinnuslys. Samkvæmt þessum
rannsóknum er svo unniö áfram aö
fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta hefur
alveggleymzt.”
„Ég vil ekki tjá mig um einstaka
tölulega liöi sem þama koma fram, því
að við höfum ekki enn fengið endanleg-
ar niðurstöður á rannsóknum iðnaðar-
mannafélaganna til athugunar. Eg get
þó ekki séð í fljótu bragði að í þessari
umræddu skýrslu sé neitt nýtt á ferð-
inni. Þessar niðurstöður hafa verið
mönnum ljósar lengi. En ef við rekum
augun í eitthvað, sem kæmi okkur til
góða hér, munum viö að sjálfsögðu
nýta okkur það,” sagði Eyjólfur.
Hann bætti við að ekki væri vitað til
þess aö heildartíðni vinnuslysa hefði
aukizt á síðustu árum, þrátt fyrir
mikla byltingu í vélvæðingu og breyt-
ingar á vinnuháttum. Hins vegar virt-
ist sem alvarlegri slysum hefði fjölg-
að. Afleiðingar slysa í dag væru alvar-
legri en verið heföi áður og mætti með-
al annars rekja það til þess að þjálfun,
fræðsla og aðbúnaður við vinnu hefði
ekkifylgt eftiraukinni tækniþróun.
-JB.
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
simar 81722 og 38125
/
VERÐLÆKKUIM!
Ktmball verksmiðjumar í Bandaríkjunum halda upp á 125
ára afmæli sitt um þessar mundir.
Við bjóðum þesst fallegu og vönduðu píanó á sérlega hag-
stceðu verði. 10 ára ábyrgð á p||U
hljómbotni og bekkur í stíl
fylgir öllum píanóum.
Allar nánari upplýsingar
FRAKKASTÍG 16 - SÍM117692