Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 19
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FIMMTUDAGUR1. JULI1982.
19
Menning Menning Menning Menning
Kjarval á Kiarvalsstöðum
Af trönum Kjarvals nefnist ein af
listahátíðarsýningum Kjarvalsstaða,
þar sem leitast er viö aö útbúa
„fræðandi” sýningu sem sýni þróunar-
feril listamannsins.
Góð hugmynd
Þessi sýning er verulega snjöll hug-
mynd og sannarlega var kominn tími
til að umbreyta hinu hefðbundna
sýningarformi, þar sem listaverkum
er oft aðeins raðað upp á smekklegan
hátt. Hér er gerö tilraun til að stokka
upp og búa til eitthvað umhverfis verk
meistarans. Sléttur veggflötur
sýningarsalarins er brotinn upp í
harmóníkuvegg og ljósmyndir af
málverkum listamannsins klipptar út
úr listaverkabókum og raðaö haglega
innan sameiginlegs ramma. Innan
hvers ramma eru því nokkrar myndir
af myndum Kjarvals sem eiga að vera
einkennandi fyrir ákveðin tímabil í
ferli listamannsins. Lestrarstefnan er
síðan gefin aðallega með tilvitnunum í
ágætan texta Bjöms Th. Björnssonar.
Jú, þetta er góð og skemmtileg hug-
mynd, svo langt sem hún nær. En því
miður vantar nokkur atriði: engin ná-
kvæm ártöl, engar stærðir, engin skil-
merkileg innbyrðis tengsl milli
mynda, ekkert er gert til að aðgreina
skissu frá fullunnu verki, ekkert er
gert til að sýna breytingar frá skissu
til fullgerðrar myndar eða á milli
STENSILL
ÓÐINSGÖTU 4 -REYKJAVÍK - SIMIZ4250
FJÖLRITUN
LJÓSRITUN
VÉLRITUN
verka. Áhorfandinn stendur því hálf-
ruglaður framan viö ,,hiö listræna
ferli” meistarans. Verkunum hefur að-
eins verið raöað upp í nokkuö sam-
fellda tímaröö eins og reyndar er gert
þegar um hefðbundnar yfirlitssýning-
ar er að ræða. Flott hugmynd, en hér
vantar þó augljóslega nákvæmari
vinnubrögð.
Ráðstöfun
I hinum enda salarins em síðan mál-
verk eftir Kjarval í eigu Kjarvals-
staða, sem faglega er stráð á veggina
— portrettin sér. Satt að segja er erfitt
aö finna nokkum þráð í þessari
Myndlist
Gunnar B. Kvaran
sýningu. Allt virðist þetta fremur til-
viljunarkennt, og maöur fær það á til-
finninguna að sýningin hafi ekki veriö
„byggð upp”, heldur hafi spumingin
aðeins verið að ráöstafa því sem til er.
Meö ögn fræðilegum aðferðum hefði
ömgglega mátt gera góða hluti. I raun
hefi sýningamefndin mátt ganga enn
lengra í því aö umbreyta hinu hefð-
bundna sýningarformi og búa til eins-
konar „Kjarvals smiðju”, þar sem all-
ar upplýsingar varðandi verkin kæmu
fram. Þá hefði einnig verið hægt að
setja inn blaðaúrklippur og ljósmyndir
um listamanninn og tíma hans. Þá
hefði einnig verið hægt að setja í gang
slætukassa eða videcnsjónvarp, þar
sem rætt væri viö samtímamenn lista-
mannsins eða að boðið væri upp á
fræðilega úttekt á verkum Kjarvals.
Og þá hefði kannski verið hægt að gefa
sýningargestum tækifæri til að fletta
og rýna í blöð, tímarit og bækur sem
komiö hafa út og fjalla um listamann-
inn, — þannig hefði kannski mátt gæða
harmóníkuvegginn örlitlu lífi.
Kjarval er
Kjarval
En þrátt fyrir allt er Kjarval ávallt
Kjarval, einn af fáum íslenskum lista-
mönnum með ákveðinn og skýran
listpersónuleika. En þessi listpersónu-
leiki hefur ekki mótast átakalaust, við
sjáum að listamaðurinn á fjölbreyti-
legan feril, hann hefur leitað víða,
reynt margt áður en hann fann sinn
persónulega stíl, sem er í raun ekki
fyrr en á síöari hluta 4. áratugarins og
í byrjun 5. áratugarins, þegar lista-
maðurinn byrjar að sundurgreina
náttúrunna í smæstu eindir og lætur
síðan auga áhorfandans um að bianda
myndyfirborðið í eina sjónræna heild. I
myndum frá þessum árum nær lista-
maöurinn af mikilli snilli aö tjá og
túlka íslenska náttúru og draga fram
fíngerðan og smávaxinn gróður lands-
ins, einnig sem landslagið getur verið
hlaðið kynjaverum.
Víst er að enginn er svikinn af þess-
ari sýningu, myndimar standa fylli-
lega fyrir sínu og tala jafnt til allra.
GBK.
|H BETA MYNDBANDALEIGAN
| SgJ Barónsstíg 3, viö hliöina á Hafnarbíói.
Opnaö næstu daga. Geysilegt úrval af 1. flokks efni.
VHtþúverða þinneigin bíóstjórí?
^SAiMYOgggEl myndsegulbandstæki
Ótrú/egt verð. Kr. 14.900.- gegn staðgreiðs/u.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Sudurlandsbraut 16 Simi 9135200