Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Side 37
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FIMMTUDAGUR1. JÚLl 1982.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
PA TREKSHREPPUR 75ÁRA
Sprett úrspori i viöa vangshlaupinu.
Patrekshreppur hélt upp á af-
mælið sitt 17. júní sl. og hófust
hátíðarhöldin með víðavangs-
hlaupi snemma um morguninn.
Síðan var farið í skrúögöngu að
„Ráðhúsinu” en það er skrif-
stofuhús hreppsins kallaö í dag-
legu tali. Hátíðarræðu hélt svo
oddvitinn, Hjörleifur Guð-
mundsson, og fjallkonan fór
meö ljóð. Að loknum kaffiveit-
ingum hófst bamaskemmtun,
leikið var úr leikritunum Karíus
og Baktus og Kardemommu-
bænum. Um kvöldið var síðan
söngskemmtun á vegum kirkju-
kórsins og má segja aö hún hafi
verið alþjóöleg, þar sem sungið
var á ýmsum tungumálum t.d.
grísku, hebresku, japönsku,
maorísku, sænsku, dönsku,
ensku og að sjálfsögðu íslenzku.
I tilefni afmælis hreppsins var
efnt til keppni' um merki fyrir
staðinn. Bárust nokkrar tillögur
frá þrem aðilum. Hlutskarpast
var merki eftir unga stúlku,
Dýrleifu Guðjónsdóttur, en það
er kross heilags Patreks í
ankeri.
Það var að Hnjóti í Örlygshöfn
15. júní 1907 að Patrekshreppur
var stofnaður. Afkoma fólks ix
Patrekshreppi byggist öll á sjón-
um. Nú virðist vera hér lægð því
fólki fækkar. Vonandi verður
það ekki lengi því aö það hafa
alltaf verið dugmiklir og bjart-
sýnir einstaklingar til á Patreks-
firði. Elín Oddsdóttir/EG
fíósa Bachmann flyturljóð Fjallkonunnar.
Hvar er húfan min? Hvar er hettan min? Hvar er. ... ? Syngja þeir
Jesper, Kasper og Jónatan i Kardemommubænum. Leikendur eru úr
ieikféiagi staðarins.
Alþjóðleg söngskemmtun kirkjukórsins. En þess má geta að stjórnandinn er sænsk kona, Kay að nafni,
og er maðurinn hennar þorpslæknirinn Chris Anderson. Hafa þau htásið hressum andvara í menningariif
Patreksfirðinga.