Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Síða 2
2 DV. LAUG ARDAGUR 21. ÁGUST1982. f Eftir aö sjálfstæðismenn náöu aö nýju meiri- hluta í borgarstjórn við síöustu kosningar, var það eitt af fyrstu verkefnum þeirra aö hverfa frá byggð viö Rauðavatn. Þessi ákvörðun kom raunar fáum á óvart, svo hatrammlega höfðu sjálfstæðismenn deilt á þá áætlun vinstri meiri- hlutans aö næsta byggingarsvæði Reykvíkinga yrðistaðsett við vatniðrauða. Nú, þegar sjálfstæðismenn hafa tekið völdin, skal byggt í Grafarvoginum og meðfram ströndinni. Hefur nýr meirihluti undir stjórn Davíðs Oddssonar borgarstjóra, þegar hafiö skipulagsvinnu að þessum svæðum. Samkvæmt stefnu sjálfstæðismanna verða þar boðnar út sex til sjö hundruð lóðir á ári, sem að þeirra mati á að fullnægja þeirri eftirspurn sem er eftir nýjum íbúðum í Reykjavík. Eitt þeirra svæða sem nýi meirihlutinn hyggst byggja á er Keldnalandið. Til þess að svo megi verða, verður borgin þó fyrst að semja um kaup á þessu landi, en það er í eigu ríkisins. Samningar við menntamálaráðuneytið í þessa átt standa nú yfir. Og fyrsta spurningin sem lögð er fyrir Davíð Oddsson í viðtali um framtíð skipulagsmála í Reykjavík er hvernig þeim viðræðum miði. „Miðbærinn í Reykjavík hefur lengi verið til skammar.” • Eftir fimmtíu tii hundrað ár verð- um við kannski neydd til að byggja við Rauða- vatnl „Ég á von á því að þær skili fljótt árangri. Þaö er öllum ljóst að við vilj- um gera vel við Keldur sem sést bezt á því að við gerum ráð fyrir að þeir fái áfram aðgang að mjög stóru svæði sem er jafnstórt og svæöið sem af- markast af Hafnarstrætinu, Bræðra- borgarstígnum, Túngötunni og Lækjargötunni. Og þetta ætti að vera yfrið nóg svæði undir þá starfsemi sem nú er innt af hendi á Keldum.” — Hvenær verður þá hægt að hefja framkvæmdir á Keldnalandinu? „Viö vonumst til að byrjað verði að úthluta þar lóöum þegar á næsta vori. ” — Er það raunhæft miöað viö gang samninga viðræðna við ráöuneytið? „Já, égtelaðsvosé.” — Ef þið ætlið aö fylgja þeirri stefnu að byggja meöfram strandlengjunni, teygir þá byggðin sig alveg framundir Korpúlfsstaöi og enn lengra ? „Jú, það mun hún gera í náinni framtíð, ef viö fáum að ráða. Það verður byggt vestan Vesturlandsveg- ar, allt fram undir landamerki Mos- fellssveitar.” — Er ekki miklu hagkvæmara að byggja til dæmis í landi Fífuhvamms, ef litiö er til þess orkusparnaðar sem af því hlýzt að land liggur miösvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hitt, að þar nýtist sú þjónusta sem er þegar til staðar í grenndinni. Ekki byggt í landi Rfuhvamms á næstunni „Það eru vissulega sumar röksemd- ir sem mæla með því að byggja í suður. Og auðvitað væri mikill kostur ef sveitafélögin gætu sameinazt um nýt- ingu þessa landsvæðis, sem þú nefn- ir. En þetta landsvæði er ekki innan landamerk ja Reykjavíkur, og við þurf- um að sjá okkar íbúum fyrir lóðum. Viö getum ekki beint öllum þeim er byggja vilja suður í Kópavog. Okkur er ekkistættáþví.” — En er ekki til Samvinnunefnd um skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu? „Jú, vissulega er hún til, en hefur aldrei verið mjög virk, þannig að ég held að hún geti ekki miklu komið til leiðar um sameiginlega nýtingu á þessusvæði.” — Finnst þér s jálfum ekki hagkvæm- ari lausn á húsnæðisvandanum aö byggja í Fífuhvammslandinu í stað strandlengjunnar? „Eg er ekkert frá því að það sé heppilegra upp á alla þjónustu og um- ferð. En engu að síður sé ég fram á það að við þurfum að verða Reykvíkingum úti um byggingasvæði eins fljótt og unnt er. Viðræður milli sveitarfélag- anna tækju langan tíma og ekki víst aö fengist nein viöunandi lausn um sam- vinnu í þeim efnum.” — Verður ekki fyrr eöa síðar byggt á þessum stað? „Það verður gert en það mun senni- lega ganga hægar fyrir sig að byggja þar upp en meðfram strandlengjunni. ” — Verður byggt á Reykjavíkurflug- velli? ,,Ekki í bráð. Menn tala oft um Reykjavíkurflugvöll og segja að hann sé einskonar æxli í miðri borginni. Og það er vissulega mikiö til í því að farsælt væri aö byggja á þessu svæði. En þaö hefur jafnframt sina kosti að hafa flugvöll í miðri borginni. ” — Hverfa þeir ekki ef litið er á slysa- hættuna sem stafar af flugumferð yfir borginni? Hugmyndir um að byggja á Reykjavíkur- flugvelli óraunhæfar „Það má kannski segja þaö. En þá • Byrjað verður að úthluta íbúðalóð- um meðfram strandlengjunni á næsta vori! verður aö líta til þess að ef Reykja- víkurflugvöllur yrði lagður af, þá þyrfti að byggja nýjan flugvöll í grennd við höfuðborgarsvæðið. Flestir eru sammála því að Keflavíkurflug- völlur geti ekki þjónaö þeim markmið- um sem flugvöllurinn hér hefur gert til þessa sem innanlandsflugvöllur. Og það gera sér allir jafnframt grein fyrir því að eins og ástandið er í flugvallar- málum í dag og eins og alþingi er samansett í landinu, þá er vonlaust aö fjármagn fáist til þess að byggja upp nýjan Reykjavíkurflugvöll. Þannig er hugmyndin um það að taka flugvallar- svæðið undir húsbyggingar með öllu óraunhæf.” — Nýi miðbærinn svonefndi. Má vænta íbúðarhúsahverfa þar? „Það er nýbúið að taka skipulag þess svæðis upp að nýju, sakir þess að menn veigruðu sér við að byggja þar. Það er nú verið að huga að nýju skipulagi þessa svæðis og eru hugmyndir uppi um að byggja þetta svæöi upp. Þetta eru hugmyndir sem ég vil ekki nefna, enn semkomið er, í fjölmiðlum.” — Það verður reist íbúðarhúsnæði á þessumstað? „Það verður bæöi íbúðarhúsnæði og ýmis smærri iðn- og þjónustustarf- semi.” — Til að fullnægja lóöaeftirspurn til langs tíma, verður þá ekki smám sam- an gengið á opnu svæðin? „1 raun eru ákaflega fá svæði hér í borg sem hægt er aö ganga á. Þannig á ég ekki von á því að einhver sérstök op- in svæði verði lögð undir byggö. Auðvitað veröur byggðin þétt að ein- hverju leyti, og þaö á ekki að þurfa að koma opnu svæðunum að sök.” — Hvernig á að fjármagna íbúðar- byggingar almennings? „Eg tel nauösynlegt að sem flestu fólki í landinu sé kleift að eiga sínar eigin íbúðir. Lánakerfiö á að miðast við þetta og þá er ég aö tala um lán til langs tíma þessu fóiki til handa. Ef menn eru á því, að það sé hægt að koma því þannig fyrir, að hægt sé aö lána allt að áttatíu til níutíu prósent til svokallaðra verkamannabústaða þá á að vera hægt að lána sambærilega upp- hæð til eignaríbúöa. ’ ’ Fjörutíu og fjórar leiguíbúðir byggðar ánæstunni — Hver verður stefnan hvað leigu- húsnæði snertir? „Það er enginn vafi á því að það þarf að vera, í jafnstórri borg og Reykja- vík, töluvert magn af leiguhúsnæöi til staðar. En það er ekki þar meö sagt að borgin sjálf þurfi að eiga allt það hús- næði.” — En er áætlaö að byggja einhver hús til leigu á næstunni? „Borgin á um þessar mundir um átta hundruð leiguíbúðir. A þessu kjör- tímabili áætlum við svo að byggja f jörutíu og f jórar leiguíbúðir.” — En er vitað hver hin raunverulega eftirspum er eftir leiguhúsnæði? „Það er náttúrlega umdeilanlegt. Ef það væri ekki eins mikill afturkippur í húsnæðismálum og verið hefur og ef fólk fengi lán við hæfi og gæti byggt sér sitt eigið húsnæði þá er augljóst að þörfin fyrir leiguhúsnæði færi minnk- andi. Og þó að fólk sæki núna mjög mikiö í leiguhúsnæði vegna þess að það er svo erfitt að bygg ja þá þarf það ekki að segja manni aö mikill hluti íbúa vilji búa í leiguhúsnæði. Það er ekki tilfell- ið.” Eru einhverjar leiðir í sjónmáli fyrir eldra fólk sem vill flytja í minna hús- næöi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.