Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 21. ÁGOST1982. 19 Popp — Popp — Popp — Popp — Popp — Popp — Popp — Popp — Popp — Popp Traffic og hét þá John Barleycorn Must Die. Enn var mikið um manna- breytingar í Traffic og verða þær hræringar ekki raktar hér. En hljóm- sveitin starfaði allt til ársins 1974 sem áöur sagði og síöasta platan kom út í árslok 1974. Traffic gaf alls út 10 breiðskífur og allar eru þær taldar hafa staðist tímans tönn með sóma. Winwood var ekki við eina fjölina felldur á meðan hann starfaöi í Traffic. Hann lagði listamönnum á borð við Ginger Baker (Airforce), Jimi Hendrix, blúsaranum Howlin’ Wolf og Jim Capaldin lið sitt ög raunar mörgum fleirum. Sólóferillinn hefst Eftir að Traffic leystist upp tók Steve Winwood árid 1970 rótt eftir upplausn Biind Faith. Á toppnum í tuttugu ctr — Ferill Steve Wimvoods hannaður í þann mund sem þriðja sólóplata hans hemur í búðarhillur ágúst 1964 kom út fyrsta smáskifan. Um það leyti tóku þeir þá ákvörðun að helga sig alfariö tónlistarferl- inum. Spencer Davis Group sendi frá sér nokkrar smáskifur fleiri án þess þó að vekja mikla athygli. Það var hins vegar viö úkomu fyrstu breið- skífunnar sem hljómsveitin sló í gegn. Platan hét hinu ófrumlega nafni Their first LP og kom út í júlí 1965. Þá þegar var orðið ljóst að Steve Winwood var orðinn aðaldrif- fjöður hljómsveitarinnar. Nokkrum mánuðum síðar kom önnur breið- skífan á markað og haustið 1966 sú þriðja. Traffic Brestir tóku að koma í liðsskipan Spencer Davis Group. Sjálfur var Spencer Davis óhress með að standa í skugga Winwoods sem heigaöi tíma sinn í auknum mæli öörum efnum. Um áramótin 1966 hætti Winwood loks í hljómsveitinni og gekk skömmu síöar til liös við hljómsveit Erics Claptons, Powerhouse, en stoppaði þar stutt við því vorið 1966 var hljómsveitin Traffic stofnuö. Winwood var einn helsti hvata- maðurinn, að stofnun Traffic en til liðs viö sig fékk hann Dave Mason gítarleikara, Jim Capaldi trommara, og saxafónleikarann, Chris Wood. Traffic starfaði allt fram til órs- loka 1974 með nokkrum hléum og útúrdúrum. Mannabreytingar voru tíðar á þessum átta árum og á ýmsu Traffic ióvist hvenær myndin var tekin). Steve Winwood er lengst tH hægri. Winwood sér frí. En sumarið 1976 hóf hann að taka upp sína fyrstu sóló- plötu og i maí árí siöar kom hún á markað. Platan hét einfaldlega Steve Winwood og helstu aðstoöar- menn hans á þessari plötu voru þeir Junior Marvin (gítar), Willie Weeks (bassi), Andy Newmark (trommur), Reebop Kwaku Baah (ásláttur) og Jim Capaldi (trommur). Sem áður var Winwood mjög eftirsóttur session-maður og næstu ár vann hann með frægum tóniistarmönnum svo sem Mariönnu Faithful, George Harrison og Mike Oldfield. Þá kom hann fram á plötum Fania All Stars, sem ekki er hægt aö kalla starfandi hljómsveit heldur er þar um aö ræða hljómsveit Fania hljómplötufyrir- tækisins. Þá má loks nefna samstarf Winwoods og japanska álsáttarleik- arans Stomu Yamash’ta, sem er einn áhrífamesti sinnar tegundar hin síðustu ár. Síðustu árin Fer nú ekki frekari sögum af Winwood fyrr en á árinu 1980. Þá kom út önnur sólóplata hans Arc of a Diver. A þeirri plötu var Winwood allt í öllu; hann samdi lögin, stjórnaði upptökunni, lék á öll hljóð- færín og þandi auk þess raddböndin. Hann hafði þó fengið til liðs við sig textahöfundinn Will Jennings. Arc of a Diver var (og er) frábær plata í alla staði enda hlaut hún einróma lof gagnrýnenda og seldist í stórum upplögum. Og nú 18 mánuðum síðar er þriðja sólóplatan í burðarliðnum. Hún kemur á markað í haust og nafnið hefur verið ákveðið; Talking Back to the Night. Enn er Winwood einn á ferð; hann leikur á öll hljóðfærin, syngur og semur lögin, aftur með aðstoö Will Jennings. Nokkur lög af nýju plötunni hafa þegar komið út á smáskífum, t.d. lagiö There’s a River, sem kom út snemma í vor. Þeir sem til þekkja segja að Winwood hafi aldrei veriö betri. Það segir sína sögu um Steve Winwood sem verið hefur á toppnum í tæp 20 ár og lætur engan bilbug á sér finna. Steve Winwood er nú sem fyrr án efa ei$t stærsta nafn poppheimsins. Helgarpoppi er þá lokið einn ganginn til. -TT. Winwood i dag. Myndin er tekin i stúdióinu þar sem hann vann að upptöku i nýrri sólóplötu sem væntanleg er með haustinu. Stephen Lawrence Winwood, eins og: Steve Winwood heitir á opin- berum skýrslum, fæddist í Bir- mingham á Englandi þann 12. máí 1948. Iönaöarborgin Birmingham gat ekki státað af stórum nöfnum á bernskudögum rokktónlistarinnar. Liverpool hafði Bítlana, Hollies og Herman Hermits og London Rolling Stones og Who. Það var helst hljóm- sveitin Spencer Davis Group sem Birmingham gat nefnt sér til vamar. Og Steve Winwood var aðalmaðurinn í þeirri hljómsveit þrátt fyrir nafniö. Spencer Davis Group Aðeins 14 ára gamall hóf Winwood feril sinn í poppinu. Hann stofnaöi ásamt Muff, eldri bróður sínum, h'tið jassband á árinu 1962 og þar léku bræður sér saman allt fram í apríl 1964 þegar þeir gengu til liðs við Spencer nokkum Davis og Pete York, trommara. Hljómsveitin fékk fyrst nafnið Rhythm And Blues Quartet og vakti nokkra athygli á hljómleikum, þar sem Long John Baldry var aðalnúmeríö, sumarið 1964. Fljótlega jukust vinsældir þeirra og urðu þeir eftirsóttir skemmtikraftar í klúbbum i Lundúnum. Stuttu seinna breyttu fjórmenningamir nafni hljómsveit- arinnar í Spencer Davis Group og í gekk. En frægðin lét ekki á sér standa. Með fyrstu smáskífunni (Paper Sun) og fyrstu breiðskífunni (Mr. Fantasy) skipaöi Traffic sér í fremstu röð breskra popphljóm- sveita. BlindFaith Traffic lagði fyrst upp laupana árið 1969. Steve Winwood stóð þá fyrir stofnun sannkaliaörar súper- grúppu. Blind Faith hét hún og liös- skipanin var á þessa leið: Eric Clapton, gítar, og Ginger Baker, trommur, en þeir komu báðir úr Cream, og loks Rick Grech, sem kom úr Family. Þótt Blind Faith y rði ekki langra lífdaga auöiö náöi hún miklum vinsældum. Hljómsveitin kom fyrst fram á frægum hljóm- leikum á Hyde Park í London þar sem hún lék fyrir yfir 100 þúsund aðdáendur og síðan var haldið i hljómleikaferð um Bandaríkin. Blind Faith náði aðeins að spila inn á eina breiðskífu sem bar nafn hljóm- sveitarinnar. Steve Winwood var heilinn á bak við velgengni Blind Faith. Hann samdi mest alla tón- listina og lék auk þess á hljómborð og sá um söng. En haustið 1969 leystist hljómsveitin upp. Traffic endurvakin Eftir upplausn Blind Faith hélt Winwood í stúdíóið og hugðist taka upp sina fyrstu sólóplötu. Hún átti að nefnast Dark Shadows en áður en að útkomu kom var Traffic endurvakin. Platan kom síðar út undir nafni Stundum setja poppsérfrædingar sig t stellingar og reyna aö kryfja sérsvid sitt til mergjar. Greina helstu áhrifavalda meðal annars. Tónlistin á nefnilega sína söguþótt ekki sé hún ýkja löng í árum talið og áhrifavaldarnir hafa verið margir. í slíkri greiningu bregður nœr ávallt fyrir hljómsveitunum Blind Faith og Tra ffic. Og maðurinn á bak við velgengni þessara tveggja hljómsveita og raunar margra fleiri var Steve Winwood. Hin síðustu ár hefur hann gertþað gott á sólóferli. Inn- an nokkurra vikna er vœntanleg þriðja sólóplata hans og því ekki úr vegi að drepa áþað helzta sem þessi merki tónlistarmaður hefur fengist við í gegnum árin. Saga Steve Winwoods er í Helgarpoppi aðþessu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.