Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 21
Sérstæð sakamál Sérstæð sakamát — Sérstæð sakamál — Sérstæð — Sérstæð sakamál DV. LAUGARDAGUR 21. AGUST1982. um í bílskúr Openshaws, sem hvorki tilheyrði dómaranum né konu hans. Fingrafar þetta reyndist vera á skrá. Skyndilega var lögreglan komin með einn grunaðan; John Smith. Að vísu algengasta karlmannsnafn á Bretlandseyjum. En það var ekkert venjulegt með þennan John Smith. Við könnun á afbrotaferli hans kom í ljós að árið 1968 hafði Openshaw dómari dæmt hann til átján mánaða dvalar í Brostal, sem er staður ætlaður af- brotaunglingum. Þar ríkir strangur agi enda er Brostal nokkurs konar sambland skóla og f angelsis. Nú hafði lögreglan fundið tengsl á milli morðingjans og dómarans. Hún vissi einnig hver morðinginn var. Eftirleikurinn yrði auðveldur — eða svohélduþeir. Enn var þó ekki búið að finna nein tengsl á milli morðingjans og hins týnda forstjóra. I raun vissi Meadows lögregluforingi ekkert um hvarf Grays. Lögreglan hafði flokkað það mál sem eitt af mörgum, þar sem eiginmaðurinn hafði stungið af frá kon- unni. Það mál var ekki sérlega mikil- vægt fyrir lögreglumennina, sem nú voru að leita að manni, sem nýbúinn var aö myrða kunnan, virtan dómara. Þá kom símhringingin frá Smith úr sjálfsalanum. Smith krafðist þess að fá samband við þann, sem stjórnaði rannsókn morðsins á dómaranum. Þegar Meadows svaraði þreytulegur í símann sagði Smith: „Veiztu hver þetta er?” Meadows lögregluforingi áleit að einhver geggjaður væri á línunni og hugðist leggja á. En áður en hann lagöi á, hafði sá í símanum bætt við: „Eg er náunginn, sem lét dómarann fá það sem hann átti skilið. Hefurðu nú áhuga áaðtala viðmig?” „Gaman að heyra í þér, John Smith" Skyndilega var Meadows glaðvakn- aöur. Hann gaf samstarfsmönnum sínum bendingu um að reyna aö rekja símtalið. „Gaman að heyra í þér, John Smith,” sagði Meadows í símann og lét morðingjanum bregða hressilega í brún með því að segja nafnið. „Það hjálpar þér ekkert að vita nafnið,” sagði Smith, þegar hann hafði náð sér. „Openshaw er bara byrjunin. Hann var efstur á listanum og það er langur listi. Ég þarf að ná mér niðri á mörgum í þjóðfélaginu. Stórjöxlum, engum smá- peðum. Eg ætla líka aö þagga niður í nokkrum þingmönnum. Allir þing- menn eru úrhrak. Eg hef dæmt nokkra þeirra til dauöa. Ég hef líka veriö að spá í að drepa einhvem úr konungsf jöl- skyldunni, en þeirra er gætt of vel. Ég kemst ekki nógu nálægt. ” Áður en Meadows lögregluforingja tókst að segja nokkuð, hélt Smith áfram: „En þú getur ekki náð mér, jafnvel þótt þú finnir mig. Veiztu af hverju?” „Nei, segðu mér það,” sagði Meadows, ánægður með aö símtaliö hélt áfram á meðan verið væri aö reyna að rekja það. „Ég er með gísl. Feitan forstjóra frá Preston. Hann heitir Gray. Það hlýtur að vera búið að tilkynna um hvarf hans.” Síðan lagðihanná. Ekki tókst að rekja símtalið. Vantaði aðeins örfáar sekúndur upp á. En nú var hreyfing komin á málin. Meadows var upplýstur um hvarf Grays. Hann fékk upplýsingar um bíl Grays; tegund, bílnúmer og lit bílsins. Því næst hringdi hann í eiginkonu Grays. ,,Ég færi þér, því miður, engar gleði- fregnir,” sagði Meadows við konuna. , ,Við höfum ástæöu til að ætla að manni þínum hafi verið rænt. Sá sem það gerði er að öllum líkindum afar hættu- legur og sturlaður glæpamaður. 1 sannleika sagt, þá er hann morðingi. En við erum fullvissir um að maöurinn þinn sé en'n á lífi og við höfum ekki ástæöu til að ætla annað en að okkur takist að bjarga honum áður en honum verðurgertmein.” Ljósmyndir sendar til blaðanna Frú Gray tók þessum f réttum með ró og stillingu og hét því að gera allt það Lögreglumaðurinn reyndi að gera sitt bezta til aö draga úr kvíða kon- unnar. Hún var hins vegar viss um að eitthvað hafði komiö fyrir, eitthvað alvarlegt. Morðinginn og gísl hans komnir til London Á þessari stundu voru nokkrir klukkutímar liðnir frá því morðinginn og gísl hans komu til London. Gray for- stjóra var haldið föngnum í kjallara- íbúð moröingjans í Paddington-hverfi í vesturhluta Lundúna. Það hverfi er þekkt fyrir kynþáttaóeirðir og ekki beint talið það fínasta í borginni. Gray hafði verið bundinn við stól í frekar óaðlaðandi herbergi, sem mannræninginn bjó í og svaf. Fátt var um húsgögn. Tómar bjórdósir þöktu gólfið. Eftir að hafa lokiö úr bjórdós hreinlega henti morðinginn henni á gólfið. Sígarettustubbar voru um allt og snjáð gólfteppiö var allt í brunagötum. Ekki var neitt sem benti til þess að her- bergið væri upphitað. öll lýsingin var ein nakin ljósapera. Ekkert var utan umhana. Svefnpoki í einu homi herbergisins var rúm morðingjans. Rafmagnseldavél í ööru homi her- bergisins leit út eins og hún hefði ekki verið þrifin í áraraðir. Virkileg . ólykt varíherberginu. Þama var baöherbergi, en þaö var notað sem geymsla. Baðkerið var fullt af allskonar drasli, þar á meðal tómum viskíflöskum og bjórdósum. Edward Gray hafði aldrei fyrr orðið vitni að öörum eins sóðaskap. „Ég sker þig á háls ef þú reynir eitt- hvað. Skiluröu það?” Þessa viðvömn hafði Gray fengið að heyra frá því aö hann kom inn í þetta rotnandi skíta- bæli. Snemma morguns þess 21. maí hafði ræningi Grays fariö inn á baöherbergi og komið aftur með bunka af úrklipp- um úr dagblöðum. Hver úrklippa var dagsett. „Sjáöu bara þetta,” sagði morðinginn. .JSérðu ekki núna hvers vegna ég varð að drepa hann? Hann var mesta illmenniö í heiminum. Ég beið svo lengi eftir þessu augnabliki. Öh, hvað ég naut þess! ” Urklippumar voru allar fréttir af John Smith. Fingraför hans voru á skrá. sakamálum, sem Openshaw dómari hafði dæmt í. Um morguninn var Gary neyddur til að taka inn fimm eða sex valíum- töflur. Hann hafði enga hugmynd um hve sterkar þær voru, en tók eftir orðinu Roche á þeim. Kannaðist hann þá við töflumar því að konan hans hafði tekið þær á tímabili fyrir nokkrum áram. Þegar Gray var í þann veginn að sofna skrapp mannræninginn úr kjallaraíbúðinni og gekk í átt aö síma- sjálfsala á næsta götuhorni. Fingrafar f innst Meadows lögregluforingi hafði unnið að málinu alla nóttina því að þeir vora komnir með góöar vísbendingar í hendurnar. Fingrafarasérfræöingar höfðu fundið nýtt fingrafar á Jagúarn- Blackpool-turninn. sem hún gæti til að hjálpa. Hún lofaði að hafa nokkrar ljósmyndir af manni sinum tilbúnar þegar lögreglumenn kæmu að sækja þær innan hálftíma. Á meöan flýtti Smith sér aftur til baka til hinnar óaðlaðandi vistarvera sinnar. Hann óttaðist að símtalið hefði verið of langt og að lögreglunni mundi takast að rekja þaö. Þá gat hann sér til um að lögreglan væri búin aö senda blööunum mynd af honum. Húsráð- andinn myndi örugglega bera kennsl á hann og k jafta í lögregluna. Svo að hann varð að flýja á ný. Hann hafði fariö úr blóöugu fötunum og sett þau í baðkerið, sem var fullt fyrir af drasli. Þegar hann kom til baka lá Gray steinsofandi i stólnum. Hinn stóri vqjium-skammtur hafði haft sín áhrif. Valiumtöflumar höfðu gert það að verkum að Gray hreyfði sig hvergi. En nú var komin upp sú staða að hinn djúpi svefn Grays olli Smith áhyggj- um. Það var nefnilega útilokaö fyrir Smith að drösla Gray í þessu ásig- komulagi upp úr kjallaraholunni og út í bíl. Ófús ákvað hann að losa sig við þennan gísl. Það gramdist honum því að Gray var trygging hans gegn því að verða handtekinn — eða svo hélt hann. Seinna viöurkenndi hann að hafa ekki haft verulegar áhyggjur. Hann hef ði alltaf getað tekið ný jan gísl. ,,Ég var að spá í að ræna einhverri stelpu,” sagði hann í skráðum fram- burði. „Eg vildi fá einhvem sem var meira aðlaðandi en Gray. Einhvem sem hægt væri að hafa gaman af milli þess sem ég væri að kála mönnum. Ung kona hefðiveriðágæt.” Smith yfirgaf íbúð sína með poka út- troðinn af gömlum fötum. Hann hafði auðvitaö hnífinn með. Hann vissi sem var að hver einasti lögreglumaður í landinu færi fljótlega að leita að Granada-bílnum hans Grays. Honum kom því ekki til hugar að flýja á þeim bíl. Stal Cortinu Þess í stað gekk hann nokkra kíló- metra en stal síðan Ford Cortinu. Hann var sérfræðingur í því að brjótast inn í bíla og hann gat startað hvaða bíl sem var án lykla. Um hádegisbil þennan sama dag, 21. maí, hafði lögreglan fundið Ford Granada-bílinn. Itarleg leit í öllum byggingum í nágrenninu var þegar fyrirskipuð. Um hálftvöleytið fannst Gray, enn steinsofandi í stólnum sem hann var bundinn við. Honum var í skyndi ekið á sjúkrahús en lækni tókst að sannfæra eiginkonu hans um að honum væri óhætt. „Þetta er ekkert alvarlegt. Honum var ekki gefið nándar nærri svo mikið valium að lífi hans sé ógnað. Það versta er að svo virðist sem hann hafi fengið áfall. Hann er í meðferð vegna þess á þess- ari stundu. Þetta valiúm mun hreins- ast af s jálfu sér úr líkamanum. ’ ’ Gray var vaknaður og þrátt fyrir „dúndrandi höfuðverk” gat hann sagt lögreglunni nákvæmlega hvað gerzt hafði. Otrúlegt en satt, þrátt fyrir allar vísbendingamar, þá staðreynd að Smith ók einum stolnum bíl og að hann hafði litla sem enga f jármuni að því er bezt var vitað, spurðist ekkert til hans næstu þrjá mánuði. Þrátt fyrir að lýst væri eftir Smith í f jölmiðlum og myndir birtar af honum gekk rannsóknin ekkert. Meadows taldi ekki ólíklegt að Smith drægi f ram lífið með hnupliog hefði hugsanlega breytt útliti sínu eitthvað. Hann hefði þó áreiðanlega ekki ráð á aö láta breyta andliti sínu með skurðaðgerðum. Við og viö hringdi Smith þó í Meadows lögregluforingja til að hæöa hann, en varaði sig á því að vera aldrei lengur en fimm sekúndur í símanum. Meadows óttaðist það mest að Smith myndi láta verða af hótun sinni og drepa fleiri. Það var augljóst að hann var fullur haturs og staðráðinn í að ná eins mörgum háttsettum og hann gat. Endalokin Eltingaleiknum lauk á mjög drama- tískan hátt þann 16. ágúst 1981. Þá fór Smith með lyftu upp í Blackpool- turninn, sem er nokkurs konar Eiffel- tum borgarinnar. Þegar upp á útsýnispallinn, efst í tuminum, var komið, hélt hann áfram og klifraði eftir stálmastri alveg upp á topp, sem er í um 160 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar sat hann í tvo sólar- hringa og rúmlega það en lög- reglumenn reyndu á meðan að tala um fyrirhonum. Það var ekki fyrr en Meadows lög- regluforingi hafði horft á manninn í turntoppinum í gegnum kíki að hann gerði sér grein fyrir því að þetta var enginn annar en John Smith, morðinginn og mannræninginn eftir- lýsti. Lögreglan beið einfaldlega þolinmóð eftir því að Smith yrði þreyttur og svangur. I „Ætlarðu að koma sjálfur niður eða eigum við að bíða eftir því að þú dettir?” kallaði lögreglan í gegnum hátalara. Hægt og rólega, fet fyrir fet, klifraði Smith niður úr tumspíranni í fang lög- reglumannanna, sem biðu á útsýnis- pallinum. I framburði sinum sagði Smith um Openshaw dómara: „Hann var illmennið sem svipti mig frelsi. Það var það sem kom þessu öllu af stað. Þessi djöfull dæmdi mig til átján mánaða vistar í Borstal. Ég þoldi ekki að vera þar. Ég hafði brotiö tvisvar af mér áður og hafði þá bara verið sektaður. Hann svipti alla frelsi, stundum tuttugu á dag. Hann gaf mér aldrei tækifæri. Ef mér hefði verið gefið tækifæri er óvíst að ég væri héma staddurídag.” Hann sagðist hafa klifrað upp á Blackpool-tuminn til að mótmæla aöbúnaði í fangelsum. Þann 19. nóvember árið 1981 var Smith fundinn sekur um morðið á Openshaw dómara og ránið á Gray for- stjóra. Eitt sinn við réttarhöldin hrópaði hann úr sæti sínu: „Ég sé ekki eftir því sem ég gerði. Eg mundi gera það sama ámorgun.” „Sker þig á háls þegar ég slepp út" Hann var dæmdur í lífstíðarfang- elsi. Lét dómarinn það fylgja með aö náöun skyldi ekki tekin til greina fyrr en í f yrsta lagi eftir 25 ár. Þegar hinn 32 ára John Smith var leiddur handjámaður úr réttarsalnum sneri hann sér að dómaranum og hrópaði: „Ég mun ekki gleyma þér. Ég sker þig á háls þegar ég slepp út.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.