Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR 21. ÁGOST1982.
11
' Richard Wagner.
meö tónlist Wagner hefur frekar verið
fariö sem átrúnaö en list. Skemmst er
aö minnast þess þegar Herbert von
Karajan stjórnaöi Parsifal í Salzborg
1980. Wagner sjálfur óskaöi á sinum
tíma ekki eftir fagnaöarlátum eftir
fyrsta þáttinn en Karajan hafnaði öll-
um fagnaðarlátum frá hinum 2000
áhorfendum til aö trufla ekki helgi
þessa verks. Kannski er hin eiginlega
umræöa um Wagner núna fyrst aö
byrja?
Hugmyndafræðileg
endurhæfing
Svo mörg voru þau orö. En Zelinsky
lét ekki staðar numiö. Sömu helgi og
Wagnerhátíðin opnaði birti hann hálf-
siðu grein í Siiddeutsche Zeitung, einu
útbreiddasta blaðiVestur-Þýzkalands, -
þar sem hann ítrekar skoðanir sínar.
Svo sem gefur aö skilja virkuöu skrif
Zelinskys sem guðlast meðal rétttrú-
aöra Wagneraðdáenda. Wagner varö
vinsælasta umræöuefniö á kaffihúsun-
um, kærkomin tilbreyting frá blessaöri
heimsmeistarakeppninni. I háskólan-
um í Miinchen ráku nemendur augun í
fyrirlestra sem halda á næsta misserið
um Wagner og Nietzsche. Og fyrir-
lesarinn verður auövitaö Hartmut Zel-
insky. Verður slegizt á þessum fyrir-
lestrum eins og í Operuhúsinu í
Bayreuth? En Zelinsky sat ekki lengi á
friðarstóli. Tveimur dögum eftir sýn-
ingu Parsifals birtist gagnrýni um
sýninguna í Súddeutsche Zeitung.
Höfundurinn, Joachim Kaiser, virtist
hafa nokkuö meiri áhuga á aö mót-
mæla skrifum Zelinskys en aö gagn-
rýna sýninguna. Gefum honum oröið:
Ef Zelinsky heföi rétt fyrir sér þá
ætti aö setja hljómsveitarstjórann,
James Levina, innanríkisráöherrann,
borgarstjórana í Berlin og Hamborg
svo og f jölda boðsgesta hvaöanæva aö í
hugmyndafræðilega endurhæfingu.
Því hann hefur þá hugmynd að allir
sem taka þátt í Wagnerhátíðinni veröi
sjáifkrafa sammála „gyöingahatrinu í
Bayreuth”.
Segjum svo aö Zelinsky hafi rétt
fyrir sér og Wagner hafi ætlaö aö láta
Parsifal bera uppi herför sína gegn
gyðingum. Ef svo væri þá bæri Parsi-
fal því vitni að listamaðurinn Wagner
var ekki fær um að ná takmarki sínu
því aö í Parsifal er ekki eitt einasta orö
um gyöingahatur. Zelinsky er ekki
nógu klókur til aö koma lagi á Parsifal.
Brátt tók lesendabréfum aö rifna yf-
ir Spiegel og hálfum mánuði frá viðtal-
inu voru útdrættir úr þeim birtir í
tímaritinu. I Þýzkalandi skrifa menn
yfirleitt ekki lesendabréf nema þeir
séu að minnsta kosti einfaldir eöa tvö-
faldir doktorar og svo reyndist einnig í
þetta skipti.
Sjúkur hugur
Zelinskys
En nú bættust mektarmenn eins og
borgarstjórinn í Bayreuth í hópinn,
sem fullur vandlætingar mótmælti
skoöunum Zelinskys. Martin Gregor-
Dellin sá líka ástæöu til aö verja mál-
staö sinn og komst að þeirri niöurstööu
aö Zelinsky ætti fullt erindi til sálfræö-
ings. Einn lesandi skrifaði aö hug-
myndir af þessu tagi ættu sér rætur í
sjúkum huga og annar tók sálfræðina í
fulia þjónustu sína og fræðanna og
skrifaði að liklega hefðu foreldrar
Zelinskys verið fanatískir Wagner-
aðdáendur.
I raun vegur Zelinsky i margar áttir
en einna helzt að þessu fyrirbæri,
Wagnerhátíðinni, og öllu sem hún
stendur fyrir og þaö er ekkert smá-
atriði í þýzku menningarlífi. Fjöl-
skylda Wagner hefur stjórnaö hátíð-
inni alla tíö og er Wolfgang Wagner
núverandi ættarlaukur. í þriðja ríkinu
varö Bayreuth ein af háborgum nas-
ista og Parsifal einn af helgileikunum
sem þeir sóttu sem piiagrimar. Wagn-
er mælti svo fyrir aö Parsifal mætti
aöeins sýna í Bayreuth og þegar Hitler
heimsótti fjöiskylduna i Villa Wahn-
fried í Bayreuth 1923 í f yrsta sinn lofaði
hann aö færa Parsifal aftur til
Bayreuth en óvandaðir menn voru þá
farnir aö leika hann út um hvippinn og
hvappinn.
„Hitier elskaði
fjöiiog fjárhunda"
Fyrstu forsetar Vestur-Þýzkalands,
Heuss og Heinemann, töldu sér ekki
sæmandi aö sækja Wagner-hátíðina
fremur en Willy Brandt og Helmut
Schmidt. Aftur á móti sitja Walter
Scheel og Karl Carstens, núverandi
forseti, þar í heiðurssæti svo ekki sé
talað um Franz Josef Strauss, sem
gjaman býöur meö sér nafna sínum
Beckenbauer. Á hátíöinni 1976 hélt
Scheel, sem þá var forseti landsins,
ræöu í tilefni af 100 ára afmæli Operu-
hússins og mæltist hún illa fyrir meöal
Wagneraödáenda Samt komst Scheell
þá aö þessari saklausu niöurstööu:
„Hvað gat Wagner gert aö því þótt
Hitler væri aödáandi hans. Hitler elsk-
aöi einnig fjöll og fjárhunda og ekki
eru þau nokkuð verri fyrir það.”
-gb.
Wagnerfræðimaðurinn Hartmut Zefínsky i viðtafí við Spiegei.
HUSBYGGJENDUR
Áð halda að ykkur hita
er sérgrein okkar:
Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið
frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging-
) arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu.
iHagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi.
Adrar söluvörur:
jGIerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar-
pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna-
plötur: venjulegar/rakaþolnar Pípueinangrun: frauð-
plast/glerull.. .
BORGARPLAST HF
Borgamesi simi93-73TO~]l
Kvðldaimi pfl helgarslmii jðjb:?3§6l
-EINKAFLUGMANNS-
NÁMSKEIÐ
Þann 13. sept. nk. hefst á vegum Flugklúbbsins hf.
bóklegt kvöldnámskeið. Kennt verður í siglinga-
fræði, flugeðlisfræði, flugreglur, vélfræði, veður-
fræði.
Skráning er þegar hafin í síma 28970
in&iigi s§!
il i
, / -•{Vr
Leitið upplýsinga um námskeiðið. Svo minnum við á
verklegu kennsluna sem er í gangi allt árið.
Sími
28970
FLU6KLUBBURINN H.F.
Reykjavikurflugvelli
Skerjafjarðarmegin
Ótrúlega hagstæðir
greiðsluskilmálar
Allt niður í 20%
útborgun
og eftirstöðvar allt að
*mánuðum
• FLISAR • HREINLÆTISTÆKI •
• BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI •
• BAÐTEPPI • BAÐMOTTUR
• MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI •
• HARÐVIÐUR • SPÓNN •
• SPÖNAPLÖTUR • GRINDAREFNI
• VIÐARÞILJUR •
• PARKETT • PANELL • EINANGRUN
• ÞAKJÁRN • ÞAKRENNUR •
• SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O.FL.
m
D
OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18.
Föstudaga kl. 8—19. Lokað iaugardaga.
EQ
D
I
Hringbraut 120 — sími 28600
(aðkeyrsla frá Sólvallagötu).