Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Blaðsíða 6
öll brezka þjóðin stóð á öndinni sjálf drottningin hafði verið svívirt. Á einni nóttu varð konungsfjölskyldan, sem hver einasti Breti lítur upp til, gerð aö athlægi um heim allan. Alger ringul- reiö ríkti meðal stjómarinnar. Margrét Thatcher vissi ekki í hvom fótinn hún átti að stíga. Annað eins haföi aldrei gerzt, enda átti slíkt ekki að gerast. Haldnir voru fundir á fundi ofan. Æðstu menn í lögreglunni skyldu víkja. Hverjum var þetta að kenna? Hvaðgerðist? Hvemig? Af hverju? Þvflík læti út af engu! Ástæða þessa alls var hinn 31 árs gamli Michael Fagan, sem árdegis einn föstudag fyrir skömmu skreiö upp eftir niðurfallsrennu á konungshöllinni brezku og komst inn í dyngju drottn- ingar, og sat á rúmstokk Elísabetar, þegar hún vaknaði! I tíu mínútur rúmar naut hann óáreittur þessa konunglega selskaps; En þá var hann yfirbugaður og situr nú í ömurlegri sellu í Brixton-fangelsinu í útjaðri Lundúna. Þar era geymdir hættuleg- ustu sakamenn Bretlands. Michael skilur ekki, hvers vegna hann þarf að vera innilokaður innan um sakamenn- ina. ,,Ég ætlaöi bara að tala við drottn- inguna,” segir hann og skilur hvorki upp né niður í öllu því umstangi, sem varðvegna þessa. „Hvers vegna ekki tala við Betu?" Michael var niöurlútur þennan föstudagsmorgun. Klukkan var rétt um sex, hálfgerð rigning. Hann gekk stefnulaust um suðvestur-hluta Lundúna. Það var allt á móti honum. Hann hafði þungar áhyggjur. Honum hafði lent saman við Kristínu, konu sína, kvöldiö áður. Þau hnakkrifust. Hann hafði rokið á dyr og gengið stefnulaust um götur Lundúna síðan. Ástæða rifrildisins var fyrst og fremst peningaleysi. Þau áttu vart lengur til hnífs og skeiöar, bömin fjögur þurftu sitt. En hvernig átti annað að vera? Hann sjálfur atvinnulaus og haföi verið það lengi. Hann iangaði til aö tala við einhvem um vandræði sín. Hann hafði áður komiö inn í Bucking- ham-höll. Án minnstu vandræða hafði hann komizt inn, án þess aö nokkur yrði þess var. Hvers vegna ekki skreppa inn og tala snöggvast við Betu umvandræðin? „Hún er áreiðan- lega heima núna." Á þessum tíma dags er hún áreiðan- lega heima,” hugsaði Michael með sér um leið og hann snaraði sér léttilega yfir tveggja metra háan múrvegg sem umlykur höllina. Vamarkerfið var greinilega í ólagi. Að minnsta kosti hafði það verið í ólagi síðast, þegar hann hafði farið þessa ieið. Michael hikaði ekki eitt andartak. Það hvarflaði ekki að honum, að hann væri að gera rangt. Háttsettir embættismenn í tollgæzl- unni brezku og lögregiunni og yfir- menn í hemum þurfa venjulega að bíöa ein 25 ára eftir því að fá að eiga orðaskipti við drottninguna. Það er þegar hún hengir á þá orður fyrir góða og dyggilega þjónustu og þeir segja ýmist hátt og snjallt, eða svo lágt að vart heyrist: „Þakka yður fyrir, yðar náð.” En atvinnuleysingjanum Michael fannst sjálfsagt að ræða vandamál sín við þjóðhöfðingja sinn. „Áttu sígarettu?" Elísabet drottning, sem oröin er 56 ára, lá í rúmi sínu og hafði það huggu- legt. Hún var milli svefns og vöku. Michael var nú kominn upp í glugga- kistu í dyngju drottningar. Hann var í engum vandræðum með að opna glugg- ann og hann snaraði sér inn á mitt gólf. Hann gekk hljóðlega að rúmi drottn- ingar og tyllti sér á rúmbríkina. Elisabet deplaði auga. Hún stirðnaði upp: Hvaða maöur sat þama á Yngsta bam Fagans-hjónanna eraöeins nokkurra mánaða. Það ersonurinn Ross. Líklega verður bið á þvi, að feðgarnirgeti„kókiterað"svona saman. „Heyrðu góða, heldurðu að þú eigir ekki eins og eina s/garettu handa márl" llppákoma i dyngju drottn- ingar fyrir skömmu gaf skopteiknurum byr undir báða vængi. rúmstokknum hjá henni? Hún áttaöi samur ógæfumaður, sem þarna var sig þó fljótt og sá, að maðurinn virtist kominn. Hún vissi líka að fyrir utan ekki hættulegur, heldur óhamingju- dyr hennar stendur ætíð vopnaður Michael á fjögur böm alveg eins og Eiísabet drottning. Hann sagðist eink- um hafa rætt framtið barna sinna við Eiisabetu. Maðurinn, sem allt snýst um, Michael Fagan. Hann situr nú bak við lás og slá, sakaður um ólöglega heimsókn i konungshöllinal Það hefur komið i Ijós við yfirheyrslur, að þetta var ekki fyrsta heimsókn Michaels í höllina, heldur sú tólftal Allt erþetta hið erfiðasta mál. Brezkir löggæzlumenn vita lítið, hvað þeir eiga að gera við Fagan, þviað hvergi ilögum er að finna klá- súlu um „ólöglegar" heimsóknir i konungshöllina. Hann verður þó látinn sitja inni um óákveðinn tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.