Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Page 4
4 DV. LAUGARDAGUR 21. ÁGUST1982. Er íslenzk riddara- 1 11 lei rnska enn vid lýð i? .Maöur tekur þessa nú léttilega.” Eða er það? Eftir svipnum að dæma þykir honum taskan ekki fislétt að minnsta kosti. Er islenzk riddramennska enn við lýði? Eöa er það liðin tíð á þessum tím- um kvennabaráttu og jafnréttis? Við létum reyna á þetta einn sólskinsdag fyrir skömmu. Hún Sigríður okkar í myndasafninu klæddi sig upp í sitt fínasta púss og fór með ferðatöskuna sína niður í bæ.; Taskan var býsna þung, enda úttroðin af dag- blöðum. Sigríður loftaði henni varla. Meiningin var að rogast með töskuna um bæinn og komast að raun um, hvort einhverjir, karlar eða konur, sæju aumur á henni og byðu henni aöstoö sína. ... og hann spratt upp... Við byrjuöum feröalagiö á homi Frakkastígs og Laugavegs. Ákveðið var að taka strætisvagn niður í bæ. Sigga rogaðist með töskuna að biðskýl- inu. Þar stóðu nokkrir menn. Allir fylgdust þeir með henni þegar hún kom, en enginn rétti henni litlafingur. Nú kom strætó. Sigga reyndi að ýta töskunni í átt að vagninum. Henni tókst að koma henni upp í fyrstu tröpp- una, en þá stóð allt fast. Hún leit á vagnstjórann og spurði: „Gætirðu nokkuð hjálpað mér?” Það var eins og við manninn mælt. Hann spratt á fætur. Tók léttilega í töskuna og sveifl- aði henni á þar til gerða farangurs- grindí vagninum. Og svo ókum við niður í bæ. Það var stoppað í Lækjargötunni. Sigga burðaðist með töskuna út úr vagn- inum. Fleiri fóru þar út, en engum datt í hug að aðstoða hana með töskuna. „Hvað ertu eiginlega með í töskunni?" Þá vorum við komin í Lækjargötuna. Og Sigríður rogaðist með töskuna. Fljótlega snöruðu sér þrír strákar upp að hliðinni á henni og spurðu: ,,Heyrðu, eigum við ekki að hjálpa þér?” „Jú.takk.” Einn piltanna tók töskuna og þau héldu af staö. „Heyrðu, svakalega er hún þung. Hvað ertu eiginlega með í henni? ” „Það er bara það, sem ég þarf að hafa meðmér,” sagði Sigríður. „Hvert ertu að f ara? ” ,jSg er að fara hérna út á Hótel Borg.” Og nú voru þau komin á torgið. „Heyrðu,” sagði Sigga. „Þetta er fínt hérna. Eg bjarga mér úr þessu. Þakka þér kærlega fy rir. ” Og Sigríður tók töskuna og hélt eftir Austurstrætinu. „Hvern dj...... ertu eiginlega með?" Nú vorum við komin að Hressó, og okkar maður enn með töskuna. Þá komu tveir strákar. Annar sagði við hinn? „Þú sérð um þetta.” Nei, góði,” sagði hinn, „þú hjálpar henni.” Og sá herti sig upp, vatt sér að Siggu og sagði: „Eigum við ekki að hjálpa þér? ” „Jú, takk,” sagði hún. Annar þeirra gerði sig nú líklegan til, að leika „kavaier” og ætlaði aö sveifla töskunni upp á öxl sér, en það tókst ekki. „Hvem dj.. .. ertu eiginlega með í töskunni?” „Þetta er bara farangurinn minn,” var svarið , „ég er búin að vera nokkrar vikur fyrir norðan! ” Piltamir tóku töskuna og bám hana á milli sín. , Jieyrðu,” sagði annar allt í einu. ,,Sástu ljósmyndarann?” Nú vorum við komin að Reykja- víkurapóteki og Sigríður þakkaði strákunum fyrir og sagöist nú geta bjargað sér. Enn stóð hún með töskuna sér við hlið og geröi sig líklega til aö snúa við og ganga til baka. Þá kom kona upp að hliðinni á henni og sagði með undmn í röddinni: „Ertu að fara langt með þetta?” „Já,” sagöi Sigga, „ég þarf að skreppa uppá Laugaveg.” „Nú,” sagði konan oghélt sína leið. „Ja, ég er að f lýta mér, ég er í mat" Áfram hélt stúlkan. Hún var alveg að sligast. Eldri maður gekk hjá. „Afsakaðu,” sagði Sigga, „ekki gætirðu borið töskuna fyrir mig smá- spöl?” „Ha,” maðurinn varð hálfundrandi. „Jú, jú, en þaö má ekki vera langt, ég er að flýta mér í mat.Þaö er beðið eftir mér.” „Nei, nei,” sagði Sigríður. „Bara út áhorn.” Og þau gengu af stað. „Ertu að fara langt?” spurði maðurinn. „Ég ætla að reyna að fá mér að borða héma eínhvers staðar,” sagði Sigga. Og nú voru þau komin út á horn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.