Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 21. AGUST1982.
7
Kristín Fagan, eiginkona Michaels,
er 33 ára. Hún segir nú, að fjöl-
skyldulifið hafi ekki verið eins og
bezt varð á kosið. „Bn Michaei er
enginn vitíeysingur, "segirhún.
öryggisvörður. Hún gæti alltaf hrópað
á hjálp. Hún vissi þó ekki að kvöldið
áður hafði verið gleðskapur hjá
öryggisvörðum hallarinnar og maður-
inn sem standa skyldi vaktina þennan
morgun hafði sofið yfir sig og svaf enn
á sínu græna eyra heima hjá sér'.
Klukkuna vantaði tíu mínútur í sjö.
Drottningin settist upp í rúmi sinu og
fór aö tala við Michael.
, JHvað heitirðu? ” spurði hún.
„MichaelFagan,” svaraði hann.
,,Ertu fjölskyldumaður?” hélt hún
áfram.
,,Já, ég á konu og fjögur böm,” var
svarið.
„Þá er líkt á með okkur komið,”
sagöi drottningin, ,,ég á líka fjögur
börn. Hvað ei-tu gamall? ”
„Þrjátíu og eins.”
„Þá ertu jafnaldri hans Karls, sonar
míns,’ ’ sagði drottningin...
Og þau spjölluðu áfram. Hann sagði
henni allt af létta um sína hagi og sagði
svo: „Yðar hátign býr ekki svo vel að
eiga eins og eina sígarettu? ”
Þetta var einmitt tækifærið, sem
drottningin haföi beðiö eftir. Klukkan
var núna eina mínútu yfir sjö. Hún
hringdi eftir stofustúlkunni.
„Almáttugur minn,
hvað er hann
að gera hér?"
Stofustúlkan, Elísabet Andrews,
furðaði sig á því, að enginn skyldi
standa vaktina við dyngju drottningar,
þegar hún kom þangaö. Hún gekk því
rakleittinn.
„Hamingjan sanna! Yðar hátign,
hvað er hann að gera hér?” sagði hún
þegar hún sá Michael sitjandi á
rúmstokknum. Svoþauthúnút.
Michael Fagan er sagður náttúrudýrkandi mikill og dýravinur. Hir er
hann á gangi með hundi sinum.
Foreldrar Michaels. Móðir hans hefur þungar áhyggjur af synl slnum, en
faðirinn hins vegar nokkuð ánmgður og hugsar sér gott tíl glóðarinnar
meðþviað selja sögu sonarins hæstbjóðanda.
Brixton-fangelsi i útjaðri Lundúna. Þar eru geymdir bak við lás og slá hættulegustu sakamenn Bretíands.
I\lú situr Michael Fagan þar lika.
Paul Whybrew, 22 ára gamall
aöstoðarmaður viö hirðina, frekar
flaug en hljóp upp i dyngju drottn-
ingar, þegar hann heyrði sögu stofu-
stúlkunnar. Hann réðist á Michael sem
ekkert skildi í öllum þessum látum.
Lögreglan hafði þegar verið kölluö til,
en mínútur liðu þar til þeir komu á
vettvang og handjámuðu Michael.
Michael hins vegar fékk aldrei síga-
rettuna!
Nú situr hann
í fangelsi...
Nú situr Michael Fagan í fangelsi og
furðar sig á því. Hvers vegna?
Drottningin sem var svo vingjarnleg
og honum hafði létt svo viö að trúa
henni fyrir vandræðum sínum! En
fyrir ut£ui fangelsismúrana er enn allt
á öðmm endanum. Þetta morgunrabb
Elísabetar og Michaels vakti slíkt
hneyksli, sem enn er á forsíðum dag-
blaða. .
Hvemig gat þetta gerzt? Er þeim
milljónum punda, sem varið er árlega
til öryggisgæzlu í og við konungshöll-
ina, varið til einskis? Menn standa
ráðþrota. Einhvers staðar er pottur
brotinn, en hvar? Eitt er víst, að fleiri
en Michael verða að gjalda fyrir þessa
morgunheimsókn.
-KÞ sneri
Stórir - litlir - breiðir - mjóir - kantaðix
flatir - rúnnaðir.
m ' i ■ -
tcU