Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1982, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 21. AGUST1982.
Kvikmyndir
jKIciiix Kinshi
— Þessi kynngimaffnaði
leikari á tæpar tvö
hundruð mgndir að
baki en er samt sem
áður lítt þekktur
m « in æl
Hór sést Kinski i hiutverki Nosferatu i samnefndri mynd Werner Herzog.
Sl. vor leit dagsins ljós nýjasta
mynd þýska leikstjórans Wemer
Herzog. Var það Fitzcarraldo, ein-
stæð mynd sem lýsti hvemig ævin-
týramaðurinn og braskarinn Brian
Sweeney Fitzgerald lét langþráöan
draum sinn rætast um að setja upp
óperuhús djúpt inn í regnskógum
Amazon-fljótsins. Hefur þessi mynd
Herzogs fengið mjög lofsamlega
dóma, og þá ekki síst fyrir kynngi-
magnaðan leik Klaus Kinski í hlut-
verki Fitzgerald. Hefur Kinski ein-
mitt til að bera þaö brjálæöislega
yfirbragð sem þurfti tii aö túlka per-
sónuleika Fitzgerald. Þótt Kinski sé
frekar smávaxinn þá má lesa út úr
andliti hans mikla Ufsreynslu sem
vekur í senn ótta og viröingu. I
augum hans brennur innri glóð og
líkast er sem hann hafi þurft að horfa
upp á allar þjáningar heimsins.
Þaö var einmitt þetta stórbrotna
andlit hans sem orsakaöi aö leiðir
þeirra Herzog og Kinski lágu saman
er sá fyrrnefndi valdi Kinski í aðal-
hlutverkið í mynd súini Aguirre,
Wrath of God, sem hann gerði 1973.
Fjaliaði myndin um leiöangur
spænskra landnema og ævintýra-
manna upp Amazon-fljótið í leit að
hinni sögufrægu E1 Dorado. Þessi
mynd markaði tímamót hjá Herzog,
enda var þetta fyrsta mynd hans
sem sló í gegn og fékk almenna dreif-
ingu í Evrópu. Gekk myndin meðal
annars 18 mánuöi í París.
Sérstætt samband
Þótt samkomulagið hafi ekki alltaf
verið upp á það besta milli þeirra
Kinski og Herzog meðan á gerð
myndarinnar stóð, þá bauð Herzog
Kinski arrnað hlutverk 5 árum seinna
eða þegar hann hóf vinnu við
Nosferatu. Þetta hlutverk var alveg
sniðið fyrir Kinski og þar naut hans
stórbrotna og sérstæöa andlitsfall sin
einstaklega vel. Nosferatu var byggð
á sögu Bram Stokers um Dracula og
endursköpun á samnefndri mynd
F.W. Murnau sem gerð var 1922.
Herzog blés nýjum og ferskum blæ í
mynd sína og aftur var það Kinski
sem átti stóran hlut í vinsældum
myndarinnar.
Þriðja mynd þeirra félaga var svo
Woyzeck, sem byggð var á sam-
nefndu leikriti Georg Biichner og
fjallaði um ógæfusaman hermann
sem vann dag og nótt til að brauð-
fæða ástkonu sína og bam þeirra, að-
eins til að komast að því að hún var
honum ótrú.
Með þessum fjórum myndum sem
þeir Herzog og Kinski hafa unnið
saman að, hafa þeir lært aö meta
kosti og galla hvor annars. Gott
samband og samstarf leikstjóra og
leikara er ákaflega veigamikið atriði
í gerð myndar og má líkja sambandi
þeirra félaga viö samvinnu þeirra
John Wayne og John Ford, Jean-
Pierre Leaud og Francois Truffaut
eða Marlene Dietrich og Joseph
Sternberg.
„Sem ein sál og
einn líkami"
1 viötali 1979 við kvikmyndatíma-
ritið Films and Filming útskýrði
Kinski hvað þaö var sem gerði
myndir Herzog svona sérstakar.
„Honum tekst að höfða beint til
áhorfenda með myndum sinum þeg-
ar þær birtast á hvíta tjaldinu. Það
er ekkert sem aðskilur leikarann á
tjaldinu frá áhorfendum sem sitja úti
í sal, ekkert sem aðskilur það sem ég
sé og áhorfandinn, ekkert sem að-
skilur mina sál og hans.” Síðar segir
hann: „Leikstjórar gefa mér ekki oft
tækif æri til að opna mig og láta kraft-
inn flæða gegnum likama minn til
áhorfenda. Werner Herzog er eina
Leikstjórinn James Toback gefur
Kinski góó ráð meðan á töku
myndarinnar Love and Money
stóð.
Kvikmyndir
Baldur
Hjaltason
Aguirre, Wrath of God var fyrsta
myndin sem Herzog og Kinski
unnu saman í.
sanna undantekningin í lífi mínu. Við
erum sem ein sál og einn líkami. Við
þurfum ekki að ræða um hlutina. Við
skynjum frá upphafi hlutina á sama
máta. Viö döfnum og þroskumst
saman. Þess vegna hefur okkur tek-
ist að koma til skila tilfinningum
okkartil áhorfenda.”
En hver er þessi Klaus Kinski,
þessi 56 ára gamli sérstæði leikari?
Samkvæmt ævisögu hans, Créer
Pour Vivre, sem kom út fyrir nokkr-
um árum, þá fæddist hann í Póllandi
og var skírður Nikolaus Nakaznski.
Faðir hans var misheppnaður óperu-
söngvari og í æsku bjó Kinski við svo
mikla örbirgð að hann neyddist til að
stela til að hafa í sig og á.
Alger villingur
Skólaárin voru erfiö og var Kinski
talinn alger villingur af kennurum
sínum. Sextán ára að aldri fór hann í
herinn og varð um síðir stríösfangi
Breta. Eftir að stríðinu lauk stóð svo
Kinski uppi eins og miUjónir annarra
manna, snauður og vhialaus. Með
þessa Ufsreynslu að baki hóf hann
störf við þýska leikhúsið. Honum
vegnaði vel en þótti sem fyrr þrjósk-
ur og vilja fara sínar eigin leiðir.
Þannig gerði hann leikhússtjórum
jafnt sem gagnrýnendum oft gramt í
geði.
Síðar fór Kinski að koma einn fram
og las þá upp úr verkum ýmissa
höfunda, og þá oft í viðurvist fjöl-
mennis. Voru honum verk flækings-
ins ViUon einstaklega hugleikin: > en
þó gætti mikiUar fjölbreytni í upp-
færslum hans og má þar nefna út-
setningu hans á Nýja Testamentinu
sem oUi ýmsum hugarangri. Margir
þekktir leikstjórar þessa tíma eins
og Jurgen Fehling, Helmit Kautner
og Fritz Kortner sýndu Kinski
mikinn áhuga en enginn þeirra réð
við hann og því varð litiö úr sam-
starfi.
Alltfyrir
peningana
Litríkur ferUl Kinski á sviðinu or-
sakaöi fljótlega að honum fóru að
berast tUboö um að leika í k vikmynd-
um. Ekki sakaöi það, að um þrítugt
leit Kinski út eins og samanbland af
dýrUngi og djöfli. I fyrstu gaf hann
þessum kvikmyndatilboðum Utinn
gaum en þegar upphæðirnar fóru að
hækka stóðst hann ekki freistinguna
enda var honum enn rík í minni
eymdin og fátæktin sem hann varð
aö gangtí gegnum í æsku.
Síðan 1950 hefur Kinski gert hátt í
tvöhundruð myndir og má segja að
næstum aUar þessar myndir hafi
verið annars flokks drasl. Þaö sem
meira skipti máU fyrir hann var aö
ÖU laun voru greidd fyrirfram. Virt-
ist Kinski vera alveg sama í hvaða
myndum hann lék svo framarlega
sem hann fékk vel borgað fyrir.
Flestar þessar myndir voru gerðar í
Evrópu og því flakkaði Kinski miUi
landa eins og Þýskalands, Frakk-
lands, ItaUu, Spánar og Englands.
Listræn hlið kvikmyndanna skipti
Kinski engu og í þess stað naut hann
lífsins, safnaöi Rolls Royce bílum,
gisti á lúxus hótelum, fiktaði við eit-
urlyf og átti í f jölmörgum ástarævin-
týrum.
Fræg dóttir
Kinski leikur enn í lélegum kvik-
myndum og er skemmst að minnast
myndarinnar Skæramorðinginn
sem nýlega var sýnd í Laugarásbíói.
En eftir samstarf sitt við Herzog hef-
ur hann orðið örUtið stUltari og er nú
giftur ööru sinni. Er nýja eiginkonan
frá Víetnam og eiga þau eitt barn
saman. Kinski á dóttur úr fyrra
hjónabandi sem heitir Nastassia
Kinski og er hún ein skærasta kvik-
myndastjama í Bandaríkjunum um
þessar mundir. Var það leikstjórinn
Polanski sem kom henni fyrst á
framfæri í mynd sinni Tess.
En aUar myndir Kinski voru nú
ekki lélegar og má nefna nokkrar
sem eru frambærilegar, þótt hlut-
verkin væru nú ekki aUtaf stór. Eru
það myndirnar A time to love and a
time to die (1958) sem Douglas Sirk
leikstýrði, Doctor Zivago sem David
Lean gerði 1956 og svo Love and
money sem James Toback gerði
1980. Þeir sem hafa gott minni muna
kannski einnig eftir Kinski sem einum
af þorpurijnum í myndinni For a few
doUars more sem Clint Eastwood lék
í. En flestar myndir Kinski báru af-
káraleg heiti eins og Cold blooded
beast, The bloody hands of law eða
To kUl or die.
OUklegt er aö vinsældir Fitzcarr-
aldo breyti Klaus Kinski mikið. Hann
er og mun aUtaf verða vUlingur í eðU
sínu. Einnig er líklegt aö hann muni
halda áfram aö velja hlutverkin eftir
því hve mikið hann fær í sinn hlut í
stað listræns mats. En Kinski
hefur sýnt aö hann hefur sérstæða
hæfUeika sem leikari sem því miöur
aðeins örfáir leikstjórar hafa kunnaö
að nýta sér tU fuUnustu.
Baldur Hjaltason.