Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Blaðsíða 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Vilja yfírgefa í
friði sendi-
ráðið og Sviss
Svissnesk yfirvöld neita aö leyfa
hryöjuverkamönnunum fjórum sem
hafa pólska sendiráðið í Bem á valdi
sinu að sleppa refsingarlaust úr landi.
Viröist ætlunin að þreyta árásarmenn-
ina, sem hafa enn fimm gísla á valdi
sínu.
Japanirásak-
aðirum
sögufölsun
Suöur-Kórea hefur nú krafist
þess af Japan að umdeildumköfl-
um í kennslubók í sögu sem ný-
lega var tekin til kennslu í
japönskum skólum veröi tafar-
laust breytt. Áður höfðu sömu
kröfur borist frá Kína en Japanir
neita að breyta neinu fyrr en
1985.
Fleiri lönd í Asíu ásaka Japani
fyrir að breyta sögulegum stað-
reyndum til að leyna grimmd
sinni í heimsstyrjöldinni síðari.
Þingmenn Suður-Kóreu hafa nú
jafnvel neitað að taka þátt í ár-
legri ráðstefnu með japönskum
kollegum sínu, sem venjulega fer
fram í september, verði bókinni
ekki breytt.
Pólsku hryðjuverkamennirnir hafa
slakað á kröfum sínum og óska einung-
is griða til þess að yfirgefa landið
óáreittir en Ulrich Hubacher dóms-
málaráðherra segir að stjórnin gangi
ekki að þeirri kröfu heldur. Vill hún
ekki annað sjá en aö gíslunum veröi
sleppt skilmálalaust.
Fréttamenn sem fylgst hafa með
sendiráðsbyggingunni og umsátri lög-
reglunnar segja þar allt með kyrrum
kjörum og rólegra sniði en viðbúið
þótti miðað viö slíkt tilefni. Svissneska
lögreglan gengur að gæslu sinni við
sendiráðið með stakri ró, líkt og hún
væri við hverja aðra umferðarvörslu.
Lögregluþjónar skýla sér ekki einu
sinni og eru því opin skotmörk fyrir
árásarmennina í sendiráöinu. Á stöku
staö hafa þeir samt sett upp gadda-
vírsgirðingu en það er frekar til þess
að halda fréttamönnum og forvitnum
vegfarendum frá.
Hryðjuverkamennirnir höfðu veitt
frest til morguns svo að menn gætu
orðið viö kröfum þeirra, en hafa hótaö
að sprengja sendiráöið, sig sjálfa og
gíslana í loft upp ella. Upphaflega
voru kröfur þeirra þær aö herlögunum
yrði aflétt í Póllandi, fangabúðum lok-
að og pólitískum föngum sleppt. Þeir
lúta forystu fimmtugs manns sem
kallar sig Wysocki ofursta en fjór-
menningarnir segjast vera fyrrver-
andi liðsforingjar úr pólska hemum og
andkommúnistar.
ÚRVALS NOTAÐIR BÍLAR:
Opel Kadett Berlina 5 d. '81
Verðkr. 180.000.
Ch. Citation 3 d. 6 cyl.
Verökr. 175.000.
Ford Bronco sjálfsk., vökvast. '79
Verð kr. 250.000.
Ford Cortina 1600 4 D. '76
Verð kr. 50.000.
Volvo 244 DL beinsk. '76.
Verökr. 90.000.
Honda Accord EX
sjálfsk., vökvast. 78
Verðkr. 200.000.
Scout Traveler sjálfsk., vökvast
'78.
Verðkr. 220.000.
Toyota Cressida sjálfsk. 4 d. '78.
Verðkr. 100.000.
Dodge Ramcharger með öllu '79.
Verðkr. 295.000.
Volvo 244 DL vökvast. '75.
Verðkr. 85.000.
Toyota Cressida station,
5 gira, '78.
Verðkr. 110.000.
Ch. Citaton 3 dyra 6 cyl.,
sjálfsk.'80
Verðkr. 165.000.
Ch. Malibu Classic 6 cyl.
sjálfsk. '77.
Verðkr. 110.000.
Isuzu Gemini '81
Verðkr. 135.000.
Bedford sendif. 5 tn. m/kassa '78
Verð kr. 195.000.
Oldsmobile Delta dísil '79
Verðkr. 160.000.
Ch. IMova Custom, 2 dyra '78
Verð kr. 145.000.
Toyota Hi-Lux yfirbyggður '81.
Verðkr. 250.000.
Ch. Chevette '80.
Verðkr. 115.000.
Scout II '78
4cyl. Verð kr. 140.000.
Ch. Malibu Classic '79
Verðkr. 170.000.
Volvo 245 DL, be'msk., '77
Verðkr. 120.000.
Vauxhall Chevette hatchback ‘
Verðkr. 55.000
Buick Century station '80
Verðkr. 210.000.
Ch. Nova 6 cyl., vökvastýri '73.
Verð kr. 40.000.
Vauxhall Viva 4 dyra '77. {
Verðkr. 50.000.
Dodge Aspen '79
Verð kr. 150.000.
Oldsmobile Cutlas supreme '79
Verð kr. 190.000.
Land Rover bensín '75
Verökr. 65.000.
Ch. Capri classic '78
Verðkr. 170.000
Buick Skylark LTD '81
Verökr. 250.000.
1 Mercedes Benz 280 S '72.
Verðkr. 150.000.
Vauxhall Viva station '74
Verðkr. 35.000.
Volvo 144 sjálfsk. '74.
Verðkr. 75.000.
Honda Accoard EX sjálfsk. '80.
Verð kr. 125.000.
Chevrolet Nova sjálfsk. '77.
Verðkr. 90.000.
Ford Cortina 4 dyra '79.
Verðkr. 90.000.
M. Benz 307 lengri gerð
m/gluggum '79
Verðkr. 220.000.
Ch. Malibu Classic
6 cyl. '80.
Verö kr. 220.000.
Ch. Blazer Cheyenne,
beinsk., 6 cyl. '76
Verðkr. 160.000.
Trabant '81 ek. 99 km.
Verð kr. 35.000.
77 á
Beinn sími 39810
VELADEILD SAfiHBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavik, Hallarmulamegin.
Sími 38900
Fraiukir hennenn á göngu i Beirút: Arabaríkin vilja losna við þá úr Líbanon.
ÆTLA ARABAR AÐ
VIDURKENNA ÍSRAEL?
— einhugur á ráðstef nu þeirra í Marokko um tillögur til þess
að tryggja frið í Austurlöndum nær
Arabaríkin hafa komið sér saman
um tillögur er miða að því að leysa
deiluna í Austurlöndum nær en hún
hefur nú staðið í 35 ár.
Að tillögunum stóðu hin hófsamari
arabariki. Þær voru einróma sam-
þykktar á ráðstefnu arabaríkjanna í
Fez í Marokko í gær. Er þar hvatt til
þess að viðurkenndur verði réttur
Palestínuaraba til sjálfstæðs ríkis og
óbeint um leið viöurkenndur tilveru-
réttur Israelsríkis, þar sem lagt er til
að öryggisráð Sameinuðu þjóöanna
tryggi öryggi landanna í þessum
heimshluta.
I
Þessi samþykkt ráöstefnunnar hefur
ekki opinberlega verið kynnt ennþá en
spurst hefur að þar sé viöurkennt gildi
samþykktar Sameinuðu þjóðanna frá
því 1947 varðandi Palestínu.
Sömuleiðis hefur frést að ráðstefnan
hafi ályktað að tillögur Reagans
Bandaríkjaforseta í síðustu viku um
sjálfstjórn Palestínuaraba á vestur-
bakka árinnar Jórdan og á Gasa-svæð-
inu heföu á sér jákvæðar hliöar.
Annars fjallaði ráöstefnan aðallega
um kröfur Libanons um aö allt erlent
herlið skyldi á brott úr landinu og þar á
meðal 30 þúsund manna „friðargæslu-
lið” Sýrlendinga sem hreiðrað hefur
aðallega um sig í Bekaa-dalnum.
Haft er eftir aröbum sem viö
ráöstefnuna störfuðu að hún marki
tímamót í samskiptum araba og í meðal arabaríkjanna í afstöðunni til
fyrsta sinn í sögunni hafi náðst eining Israels.
Vanskil á
Watergate-
sektum
Ríkissjóður Bandaríkjanna
hefur fengið réttarúrskurð fyrir
því að upptækar verði gerðar
tekjur Gordons Liddys, eins sam-
. særismannanna úr Watergate-
málinu, af bók hans, kvikmynd
og fyrirlestrum. Hann skuldar
ennþá níu ára gamla sekt sem
hann var dæmdur til þess að
greiöa fyrir Watergatemálið.
Sektin var upphaflega 40 þús-
und dollarar en Liddy skuldar
enn 23.812 dollara og hafði sæst á
aö greiða 5000 dollara árs-
fjórðungslega. Hann hefurekkert
greitt f rá því í ágúst 1981.
Gordon Liddy: Hald lagt á tekjur
hans af ritstörfum vegna Water-
gateskulda.
Liddy sat á sínum tíma 53 mán-
uði í fangelsi fyrir hlut sinn í
Watergatemálinu og afplánaöi
enginn annar svo þungan dóm
vegna innbrotsins.