Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER1982.
Útlönd
Útlönd
Spá langrí
stjómar-
kreppu í
Hollandi
— eftir kosningarnar í gær, þar sem
hægriflokkar fengu meirihluta en
verkamannaf lokkurinn varð stærstur
Mikil óvissa sýnist nú framundan í
stjórnmálum Hollands, þar sem hinn
vinstrisinna verkamannaflokkur kom
stærstur út úr kosningunum en hægri-
og miðflokkar náðu meirihluta. Það er
hefð í Hoilandi aö stærsti stjómmála-
flokkurinn sé stóri bróöir í stjómar-
samsteypum og forsætisráðherrann úr
honum.
Svo mikið þykir bera á milli verka-
mannaflokksins og hægri flokkanna í
efnahagsmálunum og eldflaugamálinu
að óbrúanlegt þykir en þau voru helstu
kosningamálin að þessu sinnL
Verkamannaflokkurinn hlaut 47
þingsæti (af 150) í neðri málstofu
þingsins en kristilegir demókratar
Dries van Agt forsætisráðherra fengu
45. Bætti verkamannaflokkurinn við
sig 3 þingsætum en kristilegir töpuðu
þrem.
Frjálslyndi flokkurinn, sem er hægri
sinna þrátt fyrir nafnið, jók við sig tíu
þingsætum og hefur nú 36 þingmenn
kjörna en miöflokkurinn „demókratar
66” tapaði 11 þingmönnum og hefur að-
eins 6.
Stjómmálamenn ætla að þaö geti
tekið flokkana marga mánuði að
bræða saman starfhæfa stjórn. Það
hafði tekið rúma fjóra mánuöi að
mynda samsteypustjórn kristilegra
demókrata, verkamannaflokksins og
demókrata 66 eftir kosningarnar í maí
í fyrra. Sú stjórn splundraðist aftur í
maí síöasta vor, þegar verkamanna-
flokkurinn sagði sig úr henni vegna
ágreinings um niðurskurð á opinber-
umútgjöldum.
Kristilegir, frjálslyndir og demó-
kratar 66 vilja allir frysta laun og
spara stórlega í opinbemm rekstri til
þess að leysa efnahagsvandann. Þeir
hefðu myndað stjóm ef kristilegir
demókratar heföu komið frá kosning-
um sem stærsti stj ómmálaflokkurinn.
Verkamannaflokkurinn vill leggja
aðaláherslu á ráðstafanir gegn at-
vinnuleysinu (sem er 10,5%) og telur
enga höfuönauösyn á að rétta hallann
á fjárlögunum.
Mið- og hægriflokkarnir virtust lík-
legir til þess að samþykkja að NATO-
eldflaugarnar yrðu settar upp í Hol-
landi en verkamannaflokkurinn hefur
alfarið hafnað þeim. Joop den Uyl, for-
maður verkamannaflokksins, sagði í
gærkvöldi, þegar úrslitin voru fyrirsjá-
anleg, aö flokkur hans myndi ekki taka
þátt í stjórn sem samþykkti eldflaug-
amar, jafnvel ekki þótt þingiö sam-
þykkti þær.
Walesa
hljóp undir
bagga
Pólska telpan Emilia Smolinska (6
ára) þurfti nauösynlega að komast í
hjartauppskurð í Bandaríkjunum.
Tvísýnt virtist þó að það tækist þar
til Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
frétti af vandamálinu og kom for-
eldrum telpunnar til hjálpar. Studd-
ist hann þar við góö sambönd sín í
Bandarikjunum, tókst að fá pláss
handa henni á bandarísku sjúkra-
húsi og aöstoð með farareyrinn.
Myndin sýnir er Emilia kom til
sjúkrahússins til að gangast undir
uppskurðinn og henni var fagnað
með blómvendi. Hún á annars heima
í þorpi í nágrenni Varsjár-borgar.
Ætla aö brjóta veiði-
bannið við Grænland
aítarskóli
■^ÓLAFS GAUKS
SIMI 27015 KL. 2
Innritun í skólanum, Stórholti 16, daglega kl.
2—7 síödegis, sími 27015.
Upplýsingar á öörum tímum í síma 85752.
Kvöldtímar fyrir fulloröna
Hljódfæri á staönum
Eldri nemendur sem halda áfram
hafi samband sem fyrst
^VSVSMA
ÁÐUR NÚ
(/>
<
LU
(/>
O
<
<
I-
ÁÐUR NÚ
Buxur 450 190
Buxur 350 100
Úlpur 960 400
Pils 280 100
Skyrtur 280 100
Skyrtur 280 75
Jakkar 620 250
Pils 200 75
Buxur 250 75
Kjólar 450 100
Rúskinnsdress 1800 1000
Slæður 50
•Maritun
LAUGAVEGI 92 SÍMM3695
Vestur-Þýskaland veitti í gær Dan-
mörku vikufrest til þess að aflétta
veiðibanni af vestur-þýskum togumm
við Grænland. Síðan er ætlunin að
styrkja togaraútgerðina fjárhagslega
til þess að brjóta veiðibannið, ef Danir
þrjóskastvið.
Talsmaður Bonn-stjórnarinnar sagði
fréttamönnum í gær að utanríkisráðu-
neytinu hefði jafnframt verið falið að
hef ja viöræður til þess að leysa þessa
deilu, sem þykir sú alvarlegasta sem
komið hefur upp milli þessara ná-
grannaífjöldaára.
Danmerkurstjóm hefur hótaö að
landhelgisgæslan muni taka öll v-þýsk
skip sem staöin verði að veiðum undan
vesturströnd Grænlands, þrátt fyrir
úrskurð Evrópuráðs EBE, sem leyfir
V-Þjóðverjum að veiða 2000 smálestir
af þorski á þessu ári á Grænlandsmið-
um. Danir lögðu bann við veiðinni að
kröfu Grænlendinga sem vilja hafa
einkarétt á nytjum þorskstofnsins við
V-Grænland.
Grænland tilheyrir Danmörku, sem
er aðili að EBE, en í febrúar síðasta
vetur samþykktu Grænlendingar í
þjóðaratkvæðagreiðslu að slíta sam-
starfinu við Efnahagsbandalagið.
Bonnstjómin segir að veiðibann
Dana sé ólöglegt og hefur Evrópuráðið
staðfest þá túlkun. Klaus Bölling, aðal-
talsmaöur þýsku stjórnarinnar í þessu
máli, upplýsti á blaðamannafundi í
gær að stjórnin ætlaði að bæta sjó-
mönnum upp allt tap eða tjón sem þeir
kynnu að verða fyrir í landhelgisstríöi
við Grænland. Beðið verður fram á
næsta miðvikudag eftir því hvort
danska stjómin breyti ekki afstöðu
sinni.
Fall rikisstjómar Ankers Jörgen-
sens í Danmörku hefur tafið málið.
Danskir diplómatar hafa lýst yfir
undrun sinni vegna hörkunnar í
afstöðu Bonnstjómarinnar. Segja þeir
afstööu Dana byggða á óskum um að
tekið verði tillit til óska Grænlendinga í
þessu máli enda væri það í anda
alþjóðasamninga að virtur væri vilji
íbúa þess lands sem liggur að viðkom-
andi auðlindum.
Umsjón: Jóhanna
Þráinsdóttir
SKÓLARITVÉLAR
Monica rafritvélin er allt í senn skóla-, ferða- og
heimilisritvél, ótrúlega fyrirferöarlítil, ódýr og fáanleg í
tveimur litum.
Hálft stafabil til leiöréttingar, 44 lyklar, 3
blekbandsstillingar o.m.fl. sem aðeins er á stærri geröum
ritvéla.
Fullkomin viögeröa-
og varahlutaþjónusta.
o Olympia
KJARAIM HF= [
ÁRMÚLI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022