Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1982, Page 40
NÝJA
ÍULEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆSTALLS STAÐAR
86611
AUGLÝSINGAR
SÍOUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
ÞVERHOLTI 11
Frá árekstrarstað í morgun. Lögreglu-
billinn var á leið upp á Bíldshöfða en
þar hafði orðið harður árekstur. Bsði
lögreglubíllinn og Mazdan eru mikið
skemmdir. Kona í Mazdabílnum var
flutt á slysadeild en ekki er vitað hve
alvarlega slösuð hún er.
DV-mynd: S.
Lentiíárekstri
á leið á slysstad
Geysiharöur árekstur varö um
níuleytiö í morgun á gatnamótum
Miklubrautar og Grensásvegs. Lentu
þar saman lögreglubíll á leið á slysstaö
og Mazda fólksbíll. Konan er ók
Mazdabílnum var flutt á slysadeild en
ekki er vitaö hvort meiðsli hennar eru
alvarleg.
Aðdragandi þessa slyss er sá aö lög-
reglubíllinn var á leið upp á Bildshöföa
en þar hafði oröiö haröur árekstur. Ok
lögreglubíllinn austur eftir Miklu-
brautinni meö aðvörunarljós og sírenu
í gangi. Á gatnamótunum við Grensás-
veg skall hann síöan á Mazdabílnum er
ók noröur eftir Grensásveginum. Ekki
er vitaö enn hvor bíllinn fór yfir á
rauðu ljósi. Báöir bílarnir eru mikið
skemmdir.
Áieksturinn sem lögreglan var að
fara aö var nokkuð haröur. Varö hann
á gatnamótunum viö Sævarhöföa og
Bíldshöföa. Þarskuliusaman vörubíll
og fólksbíll. Var ökumaöur fólksbílsins
fluttur á slysadeild. Fólksbíllinn
skemmdist nokkuð.
-JGH
Samband íslenskra
sveitarfélaga:
Björn Friðf innsson
formaður?
Taliö er líklegt aö Bjöm
Friöfinnsson, fjármálastjóri Reykja-
víkurborg, veröi næsti formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Núverandi formaöur, Jón G. Tómas-
son, gefur ekki kost á sér til endur-
kjörs.
Landsþing sambandsins stendur nú
yfir í Reykjavík. Stjómarkjör verður á
morgun og er talið aö núverandi stjóm
muni mæla meö Bimi sem næsta
formanni.
-JH.
LOKI
Vonandi s/appar Stein-
grímur vel af í oríofinu.
— engar tillögur frá ríkisstjóminni, segir Kristján Ragnarsson
„Það hefur enn ekkert komiö fram
til lausnar á vanda útgeröarinnar f rá
hendi ríkisstjórnarinnar,” sagöi
Kristján Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, eftir viðræöufund meö
sjávarútvegsráöherra í gær.
Steingrímur Hermannsson segir í
samtali við málgagn sitt í morgun að
hann hafi viðraö hugmyndir um
bættan rekstrargrundvöll fyrir út-
gerðina er m.a. geröu ráö fyrir lOtil
20% lækkun olíukostnaöar og vem-
legri lækkun fjármagnskostnaöar.
,,Ég kannast ekki við neinar tillögur
í þessum efnum,” sagði Kristján
Ragnarsson. „Ráðherrann greindi
frá mjög óljósum hugmyndum um
lækkun oliukostnaöar og einhverjum
hugsanlegum tillögum um lána- eða
skuldabreytingar. En viö tókum
skirt fram að frekari lán hjálpa út-
gerðinni ekki. Við lögðum áherslu á
að rekstrargrundvöllurinn verði
lagaður, þannig að útgerðin hætti að
tapa — það verður ekki gert með
auknum lánum,” sagöi Kristján
Ragnarsson.
Steingrímur Hermannsson hélt til
Amsterdam á hádegi í gær í 5 daga
frí og afboðaði fund sem hann haföi
boðað meö Sjómannasambandi
Islands. Steingrimur lét hafa eftir
sér aö hann myndi stöðva þær fisk-
sölur erlendis sem LttJ heföi skipu-
lagt, enda væri ófært aö skip seldu
erlendis meöan starfsfólk fiskvinnsl-
unnar væri atvinnulaust vegna
stöövunar flotans. Kristján Ragnars-
son sagöi hins vegar aö ekki hefðu
verið skipulagöar fleiri fisksölur er-
lendis en verið heföi, enda heföi verið
erfiðleikum bundiö aö losna við fisk
hér heima að undanfömu. -ÓEF.
Forseti tslands, Vigdís Finnbogadóttir, opnar norrrænu menningarkynninguna.
DV-símamynd GTK.
„MÉR HEIDUR OG ÁNÆGJA AÐ
OPNA SCANDINAVIA TODAÝ’
— sagði forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, við
norrænu menningarkynningarinnar
opnun
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, opnaði í gær Scandinavia
Today, norrænu menningarkynning-
una í Bandaríkjunum. Fór opnunar-
athöfnin fram í konsertsal Kennedy
Centerí Washington.
1 opnunarræöu sinni kom Vigdís
víöa viö. Hún sagöi gamla þjóösögu
um smalastúlku sem fann óskastein
á Tindastóli. Hún minntist Leifs
Eiríkssonar og Vínlandsferöa,
Kólumbusar, og sagði f rá þeirri sam-
vinnu sem Noröurlöndin hafa með
sér. t lok ræðu sinnar sagði forseti
tslands:
„Noröurlandabúar eru hreyknir af
því aö vera álitnir starfa raunhæft aö
málstað friöar og eindrægni meöal
manna.
Leyfist mér aö minna á aö margt
afbragðsfólk frá Norðurlöndum
hefur unniö merkilegt starf á vett-
vangi Sameinuöu þjóöanna. Ég nefni
Tryggve Lie og Dag Hammerskjöld.
Listamenn frá Norðurlöndum hafa
aflaö sér frægðar meö list sinni hér í
Bandarikjunum. Fyrir skömmu
kvöddum viö einn þeirra, hina
ógleymanlegu Ingrid Bergman.
I norrænni goöafræöi var regnbog-
inn brú milli tveggja mismunandi
heima. Þjóðsagan segir, aö sá sem
stendur undir regnboganum geti
óskað ,sér hvers sem er. Meö gull-
bikar þann í hendi, sem ég trúi að
norrræn menning sé, óska ég aö yður
finnist hún svo mikils viröi að þér
viljið kynnast henni betur, eins og
viö viljum ætíö heyra um síöustu
afrek yöar á menningarsviðinu. Þaö
mun styrkja vináttu okkar og gagn-
kvæma umhyggju í þessum heimi,
þar sem viö viljum hlakka til
framtíöarinnar.
Fyrir hönd Noröurlandanna er
mér þaö heiður og ánægja að opna
sýninguna Scandinavia Today hér í
Washington,” sagði Vigdís Finn-
bogadóttir.
Að ræöunni lokinni stóðu hinir 2.700
gestir upp og hylltu forsetann meö
áköfu lófataki. -KMU.