Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982. 9 Katmtu rúA vtö hrakfiillum? Skrítið hvernig óheppnin og axar- sköftin geta elt mann á röndum. Viö þekkjum þetta öll. Vekjaraklukkan hringir ekki, þegar hún á aö hringja, bíllinn fer ekki í gang, þegar mest á ríöur, sjónvarpiö bilar, þegar skemmtilegasta dagskráin er aö hefjast, og svo þarf auðvitað víxillinn aö falla, þegar verst stendur á í f jármálunum. Og hafið þiö tekið eftir því aö hrakföllin viröast elta hvert annaö, þau koma á færibandi og gera manni lífið svo leitt aö vandi útgerðarinnar og efnahagsspár Þjóðhagsstofnunar, svo eitthvaö sé nefnt af alvörumálunum, veröa hjóm eitt og smámunir? Á hinn bóginn er ekki svo gott aö bera þetta á torg. Maður situr uppi meö hælsæri á vinstra fæti, bilaða þvottavél eða rukkunina frá Gjald- heimtunhi, án þess aö geta játaö fyrir öörum aö dagurinn sé eyöilagður vegna þessara smámuna. Þetta eru prívatmál, sem ekki eru nógumerkileg til aö angra aöra meö, en þó nógu hvekkjandi til aö setja mann sjálfan úr skoröum. Hverjum dettur til aö mynda í hug aö segja frá kýli á rasskinninni, aö kristalskálin hennar ömmu hafi brotnaö eöa rifrildinu heima fyrir? Og hver vill hlusta á þaö? Hefur ekki hver nóg með sig. Sjálfselskan Samt er það nú svo aö þú getur ekki á heilum þér tekið, þegar svona prívatvandamál hrannast upp. Annaðhvort veröur maður önugur eða beinlínis í vondu skapi. Þú ert viökvæmari fyrir því, ef barnið þitt brákar sig á úlnliðnum, heldur en ef fréttir berast af fjöldamoröum í út- löndum. Þú veröur æstari ef einhver svínar á þig í umferðinni heldur en ef einhver forseti er sprengdur til dauöa í Líbanon. Þetta er kannski ekki skemmtilegt aö viöurkenna en þaö er bara svona, aö viö erum ekki stærri í sniöum, þegar allt kemur til alls. Sá rétti upp höndina, sem ekki viöurkennir meöalmennsku sína og sjálfselsku aö þessu leyti! Manndrápsaugu Svo er líka hitt aö viö viö látum flest fara í taugamar á okkur. Menn veröa kannski verstir yfir engu. Tvö kostuleg dæmi vildi ég nefna úr dag- lega lífinu. Um daginn vék ég mér inn í verslun þar sem allmargir biöu eftir afgreiðslu. Fólkiö stóö í óskipulögöum hnapp fyrir framan búöarborðiö og þegar vesalings af- greiöslustúlkan spuröi hver væri næstur takk, gáfu tveir sig fram. Yngri kona, auösjáanlega aö kaupa í kvöldmatinn fyrir fjölskylduna, og svo eldri maður, veraldarvanur aö sjá. Bæði geröu kröfu til þess aö fá næst afgreiðslu, í fyrstu kurteis en á- kveðin og létu sig hvergi. Síöan hófst ein haröasta rimma, sem ég hef verið vitni aö. Þau litu aldrei hvort á annaö en einblíndu hvössum augunum á búðarstúlkuna þó þau væru stööugt aö tala hvort til annars. Það lá viö handalögmálum, loksins þegar afgreiöslustúlkan mannaöi sig upp í aö taka af skarið og bauð konunni afgreiöslu. Maöurinn strunsaði út. I ljós kom aö konan þurfti á einum pylsupakka aö halda. Þaö tók tvær mínútur aö afgreiða hana. Þetta var auövitað stórkostlega hlægileg sena, fulloröiö fólk aö rífast um aö vera fyrst í röðinni til aö fá af- greiddapylsu! Mér varð á aö svína á bíl, á horni Miklubrautar og Grensásvegar, á leið minni vestur í bæ eitt kvöldiö. Bílstjórinn bölvaði meö flautunni um leið og hann dró úr hraðanum. Það var langt frá því að árekstur heföi veriö yfirvofandi en svíningin hefur sjálfsagt kostað hann nokkur sekúndubrot. Á ljósunum vestur viö Hofsvallagötu þurfti ég aö stans: á rauöu. Hver rennir þá eliki upp aö hliðinni aö mér, nema sami bílinn og ég haföi svínað á? Undir stýri sat gmalreyndur leigubílstjóri og hvessti á mig manndrápsaugum. Hann var enn fokvondur blessaöur og hefði sennilega lamiðmig, ef hann heföi haft tækifæri til. í vitlausum vagni Já, þaö er hægt aö hlæja að svona nokkru, þegar aðrir eiga í hlut. En hver hlær þegar hann sjálfur er annarsvegar? Viö fórum feögarnir í bíó eitt kvöldiö. Skoðuðum auglýsingarnar og völdum okkur „grínmynd árs- ins”, frábær grínmynd í sérflokki, sögöu þeir í blaðinu. Viö vorum ákveönir í aö skemmta okkur. Keyptum popp og tróöum okkur í ónúmeruö sætin og biðum spenntir með hláturskirtlana í startholunum. Þaö varö skammgóö skemmtan. Viö yfirgáf um bíóið í hléi. Önnur eins Laugardags- pistill Ellert B. Schram ritstjóri skrifar vitleysa hefur áreiöanlega aldrei verið framleidd í samanlagöri kvik- myndasögunni. Daginn eftú- kappklæddi ég mig á völlinn. Grenjandi slagveöur, rok og rigning eins og þaö gerist best á ís- landi. Holdvotur og gegnumkaldur, leit ég viö hjá kunningja mínum á heimleiðinni. Osköp eru aö sjá þig, sagöi hann, notalega afslappaöur í stofuylnum. Eg var á vellinum, segi ég og skelf enn. Nú, hvaö er þetta maður, leikur- inn var í sjónvarpinu, bein útsend- ing! Á þriöja degi fór ég í sparifötin. Boöinn í hanastél hjá virðulegum fjöldasamtökum. Til ítuskiö. Þarf þá ekki bannsett lyftan aö festast á milli hæða með mig einan innanborös! Þeir voru aö taka saman tómu glösin, þegar ég losnaöi tveimur tím- um síöar. Og svo bilaði bíllinn, daginn eftir aö þeir lokuöu umboöinu. Ég tala nú ekki um, þegar ég þurfti aö fara í strætó, bráðsaklaus farþeg- inn og villtist upp í vitlausan vagn. Af öllu þessu sést aö þaö er auðvelt aö vera seinheppinn og hrakföllin ríða ekki við einteyming. Eg er von- andi ekki einn um þessa reynslu. Þegar þau henda aöra eru þau hins vegar bráöskemmtileg. Sjáiö allar bíómyndimar, sem velta sér upp úr hrakföllum annarra. Þær eru klassískar myndirnar hans Chaplin, Jerry Lewis, Gög og Gokke og allra þessara snillinga sem bregöa sér í hlutverk hrakfallabálksins. Þar sér maöur sjálfan sig í spéspegii. Mikiö væri nú gaman aö lífinu, ef hægt væri aö yfirfæra húmorinn í hversdagslífið og brosa að áföllun- um. Komedía er það samt Manni er auðvitaö ekki hlátur í huga, þegar togaramir liggja bundnir viö höfn og aöalat- vinnuvegur landsmanna riðar á barmi gjaldþrots. En kómedía hefur þaö veriö samt. Með andakt og áhyggjum hefur þjóðin hlustaö á Steingrím og Kristján Ragnarsson skiptast á skoðunum og yfirlýsingum. Einhvern tímann heföi það veriö efni í góöan grínþátt aö skopstæla á- búðina og alvöruna, þegar þeir félagar vom búnir aö senda hvor öðmm tóninn í tuttugusta og þriöja skiptiö. Þeir ýmist geröu tilboð eða höfnuöu tilboöum, hækkuöu fiskverö eöa lækkuöu fiskverð, töluðu saman, eöa töluöu ekki saman. Hápunkti náöi þessi viöureign, þegar Steingrímur neitaöi aö ræöa frekar viö Kristján, nema flotinn sigldi fyrst úr höfn. Hann sneri upp á sig eins og maöurinn viö búöarboröiö. Mikið vildi ég vera svona „import- ant” einsogKristján, aöfá viötalviö ráöherra meö því aö stoppa flotann og mikið vildi ég vera ráöherra sem talar ekki við hvem sem er meðan skipineruíhöfn! Hælsæri eða tannpína Þeú- eiga mikiö undir sér þessir karlar, enda skáka þeir hundruöum milljónum króna á milli sín og sjóöanna eins og þeir séu í fimmauraharki. Þaö er eins gott aö vekjaraklukkan bili ekki á morgnana hjá jafnmikilvægum mönnum. Hvaö þá aö þeir séu meö hælsæri eöa tannpínu! Ég kann ekkert ráö viö hrakföllum. Mér finnst hins vegar kominn tími til aö Þjóðhagsstofnun hefji rannsóknir á afleiömgum þeirra a ikaplyndi þjóðarinnar og blóðþrýstmgi. Skyldi ekki margt axarskaftiö og þjóöfélagsmeinið eiga sér skýrmgu í margvíslegum prívat- vandamálum, sem eru of persónuleg til aö segja frá þeim, en nógu ergileg til aö stökkva upp á nef sér út af. Hver veit nema efnahagsvandinn sé fólginn í hrakföllunum! ? Ellert B. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.