Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Side 14
14__________________________________________________________________________________________________________________DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982.
K«rl lloinz Itiimjivska IVitboltaliotjan
Pc. J er ekki tekið út með sældinni
að vera frægur og ríkur. Karl Heinz
Rummenigge, stjaman úr vestur-
þýska landsliðinu í knattspymu, á
heimsmeistaramótinu á Spáni í
sumar, hefur fengiö að kenna á því.
„Athyglin sem ég hef vakið hefur
haft mikil áhrif á einkalíf mitt,”
segir hann. „Maður veit hreint ekki
hvernig maður á að snúa sér, því ef
maður segir nei við einhvem segir sá
hinn sami að maður sé stór upp á
sig.”
Tvisvar verið útnefndur
besti fótboltamaður
Evrópu
Það er ekki síst í fótboltaheim-
inum sem prímadonnur og stjömur
skjótast upp á stjömuhimininn.
Sumir þola þá frægð og þann frama
sem leiöir af því, aðrir ekki. Margir
verða hrokafullir og frægðin stígur
þeim til höfuðs.
Þetta á ekki við um Karl Heinz
Rummenigge. Hann er hetjan í
vestur-þýska fótboltanum og tvisvar
hefur hann verið útnefndur besti fót-
boltamaður Evrópu. Hann er lista-
maður í sinni grein og á erfitt með að
neita eiginhandaráritunum, blaða-
mönnum um viðtal og þar fram eftir
götunum. Allir ætlast til að hann
standi og sitji sem þeim líki og oft-
ast gerir hann það líka. Að vísu er
hann fyrirliði Bayern Miinchen og
landsliðsins og það leggur honum
ýmsar skyldur á herðar, en öllu má
samt ofgera .. . Og kannski vegna
þessa er Rummenigge eöa Kalli, eins
og vinir hans kalla hann, líka sá, sem
oftast er sparkaöur niður af and-
stæðingum sínum úti á vellinum, en
hann heldur þó alltaf sinu jafnaöar-
geöi.
öll þessi athygli getur þó orðiö of
mikil, líka fyrir Kalla Rummenigge.
Sérstaklega þegar þaö gengur út
yfir konu hans, Martinu, og hinn
þriggja ára gamla son þeirra, André.
I Vestur-Þýskalandi er Rummenigge
orðin slík þjóðsagnapersóna að hann
óttast að eitthvað alvarlegt kunni aö
koma fyrir hann eða fjölskyldu hans.
Meðferð þeirri sem hann oft á tíðum
verður fyrir úti á vellinum af því að
hann er svo miklu betri en félagar
hans hefur hann ekki eins miklar á-
hyggjur af. Hann viðurkennir þó að á
stundum verði hann alveg skít-
hræddur.
„Þaö er einn leikmaður,” segir
Rummenigge, „ég nefni engin nöfn,
sem ég óttast mjög. I hvert skipti. er
hann lætur til skarar skríða. hugsa
ég: I þetta skipti enda ég á slysa-
varöstofunni.”
„Ég er alveg týpískur
Þjóðverji"
Kalli Rummenigge er þjóöhetja
meðal Þjóðverja, einkum fótboltaá-
hugamanna. En hvers vegna er hann
svona vinsæll? Er það vegna þess
að hanner týpískur Þjóðverji í útliti?
„Já, það held ég bara,” segir
Rummenigge. ,,Ég er hár og
grannur, ljóshærður og bláeygur og
KarI Heinz Rummgnigge.
draumur
þýskra
hef staðið mig vel á vellinum. Ég
held ég sé alveg týpískur Þjóðverji.
Ég er meira aö segja viss um að
allar þýskar mæður vildu mig sem
tengdason! Þess vegna held ég að ég
njóti svo almennra vinsælda. Auk
þess er ég ekki feiminn heldur opinn
og glaölegur. Þaö kann fólk aö
meta.”
Rummenigge hefur fengið mörg
tilboð erlendis frá, frá ýmsum fót-
boltafélögum. Þótt hann hafi nokkuð
velt þeim fýrir sér, einkum eftir
heimsmeistarakeppnina í sumar,-
virðist allt benda til að hann verði
um kyrrt hjá Bayem, að minnsta
kosti fyrst um sinn. Og það kann
þýska þjóðin að meta. Rummenigge
vekur jafnmikla athygli, hvort sem
hann leikur á heimavelli eða
einhvers staðar erlendis.
,4 rauninni hef ég enga þörf fyrir
að leika einhvers staöar erlendis. Ég
Rummenigge á brúðkaupsdaginn þegar hann giftist Martinu. Þau eiga
þriggja ára gamlan son, André.
tengdamæðra?9
„Ég er óska
hef allt sem ég þarf hér í Miinchen.
Ég á nóg af peningum og hér þrífst
ég vel. Ég hef þó nokkrar tekjur utan
vallarins. Þess vegna hef ég ráö á
því að neita sumum fyrirtækjum um
aöauglýsa þau. Ég veit þó að ég gæti
þénað betur einhvers staðar annars
staðar. En ég vil frekar vinna meira
og vera um kyrrt í Vestur-Þýska-
landi.”
1 augum Rumenigge er það heiður
aö fá að leika meö landsliðinu. ,,Ég
er stoltur af aö fá að vera með. Öllum
leikmönnum landsliðsins finnst'það
líka. 1 rauninni eigum við að fá borg-
að fyrir allt sem við gerum í nafni
landsliðsins, en við höfum oft verið í
feröum meö landsliðinu án þess að fá
eyri fyrir þaö. En við gerum það
samt meðglöðu geði.”
„Ofterfitt en
góður skóli"
Kalli Rummenigge var engin
stjarna þegar hann fyrst kom til
Bayem, svo langt frá því. Áður en
þangaö kom lék hann með litlu félagi
í Westfalen, Borussia Lippstad. Svo
var það einhverju sinni að maður
einn frá Bayem sá Rummenigge
leika og kom aö máli viö hann og
spuröi hvort hann vildi ekki reyna
fyrir sér hjá Bayem. Rummenigge
var átján ára þegar þetta var,
óagaður leikmaöur, sem var eins og
hvirfilvindur um allan völl. En hann
fór til Miinchen til reynslu, þeim leist
vel á pilt og buöu honum reynslu-
samning. Rummenigge sló til.
Kalli fann fljótlega fyrir því að
hann var kominn til starfa h já alvöru
fótboltafélagi. „Hver og einn er sjálf-
um sér næstur. Þú færð litla hjálp.
Þú verður að stóla á sjálfan þig.”
— En var hann aldrei kominn að
því að gefast upp?
„Nei, það datt mér aldrei í hug,
því fótboltamaður skyldi ég verða og
það góður fótboltamaöur. En ég
viðurkenni að erfitt var þetta á
stundum. Ég minnist þess að
einhverju sinni kom ég að máli viö
framkvæmdastjórann hjá Bayem og
spuröi hann hvort félagið gæti ekki
útvegað mér bíltík svo að ég þyrfti
ekki alltaf að vera að eltast við
strætó. Hann leit kuldalega á mig og
svaraði ískaldri röddu: Bíltík? Ef við
útvegum þér bil, vinur, er það ekki
minna en BMW. Og ég setti mig í
samband við einn leikmanna, sem
aftur hafði samband við þá hjá BMW
ogbílinn fékk ég.
En hvað sem öllu líður, og á
stundum hafi maður átt erfitt
uppdráttar og þurft að taka á öllu
sínu tilaðgefastekkiupp, erengum
vafa undirorpið að þessi tími með
Bayem hefur verið góður skóli.”
Rummenigge á átján ára gamlan
bróður, Michael, sem nýlega hefur
skrifað undir sams konar reynslu-
samning og stóri bróðir gerði á sín-
um tíma. Og hver veit nema tveir
Rummeniggar eigi eftir að leika
bæði í liði Bayern Múnchen og
vestur-þýska landsliðinu?
-KÞþýddi.