Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 19
legur söngvari aö ég get ekki versn-
aö. En ég stefni ekki aö neinni heims-
frægö.”
— Er plata á leiðinni?
,,Já, þaö kemur plata fyrir jólin,
Tumi þumall og Jói og baunagrasið
veröa þar í aðalhlutverkum. Og svo
kemur frá mér bók líka.”
—Bók?
„Já, en þaö er ekki skáldsaga en
kannski kemur hún seinna.... Þetta
er bók fyrir böm á öllum aldri, þar er
aö finna leiki, gátur, þrautir og svo
framvegis.”
„Á dansleikjunum
voru úrslitin okkur íhagl"
— Þú ferðaðist mikið í tengslum
viö íþróttimar. Er það rétt, sem
maður hefur oft heyrt, aö þessum
íþróttaferöum hafi verið ölteiti
mikið?
,,Þaö er alger misskilningur. Eg
minnist þess aldrei aö menn hafi
veriö aö skemmta sér fyrir lands-
leiki eöa aðra mikilvæga leiki. En
eftir leikina lyftu menn sér oft upp.
Sérstaklega héma áöur fyrr, þá
skemmtu menn sér oft konunglega. 1
dentiö vom þetta góðir hópar og
félagsandinn var stórkostlegur. Svo
þaö var næstum öraggt, að viö unn-
um dansleikina, þótt úrslitin í fót-
bolta- og handboltaleikjunum væru
okkur ekki alltaf í hag! V iö voram oft
býsna sterkir á þessum dansleikj-
— Ifið vorum oft
býsna sterkir á þess-
um dansleikjum!
„Fólk vill hafa eltthvað tiI að
smjatta á og einhvarja milli tann■
anna."
um! Já, þaö sem gerðist í þessum
ferðum væriefniíheilabók.”
14—2 leikurinn
— Hvaöa landsleikur er þér minn-
isstæðastur?
„Eg man sérstaklega eftir 14—2
ferðinni. Leikurinn var í tilefni af
stórafmæli danska knattspymusam-
bandsins. Viö Islendingar höföum
staöiö okkur sérstaklega vel fram að
þessum leik. Unniö Norömenn, tapaö
naumlega fyrir Svíum, gert jafntefli
viö Spánverja í olympíukeppni. En
s vo kom þessi sprengja....
Þaö var mikill viöbúnaöur, því nú
átti loksins aö leggja þessa erki-
fjendur aö velli. Danir vora þama
með sitt besta knattspyrnulið en viö
meö hálfgert unglingaliö. En viö
mættum sem sagt í Höfn þremur
dögum fyrir leik, minna mátti þaö
ekki vera til að aðlagast aðstæöum.
Okkur var komið fyrir á glæsilegasta
hóteli Kaupmannahafnar og skipt
niður á þrjár hæöir í hótelinu svo að
sem allra best færi um okkur. Á
hverri hæð var vöröur til aö passa aö
viö yrðum ekki truflaðir. Þaö var
sérstakur smakkari, sem smakkaöi
allan mat fyrir okkur. Þama var frá-
bært lið á ferðinni! Og Danimir næst-
um skjálfandi á beinunum því þama
var komið liöiö sem skyldi leggja þá
aö velli. Baráttuandinn hjá okkur
var mikill og viö gengumst upp í öllu
þessu tilstandi.
Svo rann keppnisdagurinn upp.
öllum var smalað út í fína rútu. Bar-
áttusöngvarnir og sigurvíman var í
algleymingi. Við komum á völlinn,
inn í klefana og fórum aö hita upp.
Þar sem viö erum aö því er Jóhannes
Atlason að leika sér meö boltann,
sparkar honum upp i loftiö. En þá
vildi ekki betur til en svo, aö boltinn
lenti á hausnum á Elmari Geirssyni
og hann rotaöist. Þar meö var fyrsti
leikmaðurinn kominn út af, áöur en
við gengun inn á völl!
I þessu rann upp aö Idrætsparken í
Höfn, sem var þéttskipaður áhorf-
endum, fallegasti glæsivagn borgar-
innar og út steig sendiherra Islands,
Gunnar Thoroddsen. Hann kom til
okkar og heilsaöi öllum leikmönnum
meö handabandi. Nema Elmar sat
steinrotaður á bekk. Sendiherrann
gekk aö honum og rétti honum hönd-
ina. Svona stóð hann í fimm mínútur
en auövitaö tók Elmar aldrei i hönd
hans. Svo Gunnar hélt aö hann væri
— Svo Gunnar hélt
að hann væri annað
hvort alþýðubanda-
lagsmaður eða fullur!
annaðhvort alþýðubandalagsmaður
eöa fuUur. Gunnari var þó skýrt frá
þessusíðar!”
,, Við tökum þá strákar,
jöfnum, þvíþeir
eru gersamlega búnir!"
„Síðan gengum viö inn á völlínn
undir dynjandi lófataki Islending-
anna sem höföu f jölmennt af öUum
Norðurlöndum til að sjá þetta Brasi-
liuliö.
Jæja, viö byrjuðum meö boltann.
Þetta var alveg dásamlegt. Viö
vorum í sókn en hún rann út í sand-
inn. Danirnir voru samt enn skjálf-
andi á beinunum. En svo vorum við
svo óheppnir að fá á okkur fiögur
mörk á tíu mínútum, held ég! Og
skiptir engum togum aö í hálfleik er
staöanú—0!
En þar sem leiknum var sjón-
varpað, var ákveðiö aö vera ekkert
aö skipta yfir í varnarleik! Viö
ákváöum aö sækja, viö vissum líka
að svona gæti þetta ekki gengið hjá
Dönunum lengur. Þeir hlytu aö fara
aö kUkka á þessu. Þá man ég aö Axel
Einarsson, sem þá var formaöur
HSl, sagöi aö ég fengi heiðursbindi,
sem hann ætti, ef mér tækist aö
skora.
Síöan var flautaö til leiks í seinni
hálfleik. Ég man aö Helga Númasyni
tókst aö pota marki. Það var alger
þvaga viö markið og boltinn rakst i
fætur Helga og markmaðurinn
nennti ekki aö beygja sig. Honum
fannst komiö nóg, 6:0. Siguröur Sig-
urðsson lýsti þessum leik og gat eng-
an veginn fylgst með,því þarna voru
skoruð fleiri mörk en í handboltaleik.
En Siggi sagöi kokhraustur: Helgi
skorar með þramuskoti! Og þenur út
netiö meö boltanum!
Staðan 6:1, en Danirnir halda
áfram og þegar staðan er 9:1, gerði
ég mark sem var eitthvert besta
mark er ég gerði á mínum ferU.
Þetta var langskot á 25 metra færi.
Staðan 9:2 og tuttugu mínútur eftir.
Þaö var þá sem Eyleifur, fyrirUði,
kaUaöi: Viö tökum þá strákar, viö
jöfnum, því þeir eru gersamlega
búnir!
En leiknum lauk meö 14:2. Menn
vora utan viö sig og áttuöu sig ekki á
þessu. Eg man aö Axel þreif í ein-
hverri leiöslu bindiö af sér og lét mig
fá það utanyfir búninginn!
Okkur var sagt eftir leikinn að
flýta okkur heim á hótel og þegar
þangað kom, beið allt starfsfólkið,
um hundraö manns, í anddyrinu og
klappaöi og baulaöi. Þaö var til þess
aö viö hættum við aö fara heim dag-
inn eftir. fórum á lítið hótel og létum
fara lítiö fyi-n ikkur, því heim þorö-
umviöekkjl’
„Ekkert skuespi/, góði"
— Hvaöa dómari er þér minnis-
stæðastur frá leikferli þínum?
,,Ég held, aö Maggi Pé sé einhver
litrikasti dómari sem viö höfum átt.
Hann átti það til aö taka létta spretti.
Eg held þó, aö ég hafi aldrei oröiö
eins reiður og þegar Valur lék einu
sinni á móti Akureyri. Þetta var
fyrir noröan. Eg fæ boltann á mark-
teig og markiö er galopiö.
Markmaðurinn vafinn utan um
markstöngina, alveg víösfjarri. Þá
kemur Jón Stefánsson á fullri ferö og
hann bregöur mér. Og beint á bumb-
una og bcltinn í burtu. Þaö sáu það
allir aö þetta var klár vítaspyrna. En
Magnús flautaöi ekki. Ég hrópaöi
ekkert því þetta var svo sjálfsagður
hlutur. Svo var leikurinn búinn og
'lyktaöi meö jafntefli.
Eftir leikinn fór ég til Magga og
spuröi hann hvað hann heföi eigin-
MYNDIR: GIMÁR V.
£, ' , ,