Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Of feitur fyrir
fangaklefann
Joseph Giorgianni þurfti ekki að afplána nema eina viku af 15 ára fang-
elsisdómi sem hann fékk fyrir nauðganir. Var Joseph náðaður af því að
dómarinn áleit að hann væri of feitur fyrir fangaklefann. Hann rökstuddi mál
sitt með því að Joseph, sem er rúmlega 200 kíló að þyngd og þar að auki asma-
veikur, gsti dáið í fangelsinu þar sem ríkisfangelsin hafa ekki aðstæður til að
sjá um mann með vaxtarlag Josephs.
Fjöldi almennra borgara í Trenton, NJ í Bandarikjunum mótmælti
náðuninni harðlega. Voru þar á meðal 6 konur sem Joseph hafði nauðgað. En
hér sjáum við Joseph standa glaðbeittan og frelsinu feginn fyrir framan
steikhús það er hann rekur í heimabæ sínum.
Leita aö blá-
sýrumeðalinu
Víöa um heim gera menn nú ráðstaf-
anir til þess að reyna aö hindra aö
biásýrublandaöa höfuöverkjarmeöaliö
verði fleirum aö bana. Þaö hefur þegar
oröið sjö manns aö bana í Bandarikj-
unum.
Þar í landi hefur veriö brugöið viö og
lyfið „Extra-Strenght Tylenol” verið
afturkallaö úr lyfjaverslunum, en víða
erlendis er feröafólk, sem kemur frá
USA, varaö viö aö koma með pilluglös
af þessu tagi með sér.
Lögreglan er sögö engu nær viö aö
hafa uppi á brjálæöingnum sem ætlaö
er aö hafi sett blásýru og í sumum
tilvikum rottueitur í plasthylkin sem
hafa að geyma meöaliö.
Þegar hefur veriö höföaöur fjöldi
skaðabótamála á hendur fyrirtækinu
sem framleiðir EST og hljóöa kröfur
upp á nokkrar milljónir dollara.
Annar kafbátur
á staðnum?
GAJ fréttaritari DV í Lundi:
„Við göngum út frá því aö kafbátur-
inn sé enn í firöinum,” sagði Bror
Stefenson, foringi í sænska sjóhemum,
viö fréttamenn í gærkvöldi. — Hann er
einn þeirra sem stjórna leitinni að
kafbátnum í Haarsfirðinum í skerja-
garöinum út af Stokkhólmi.
Síödegis í gær tóku þyrlur sænska
sjóhersins aö varpa djúpsprengjum
skammt utan viö þaö svæði, sem girt
hefur veriö af siöustu daga í leitinni aö
kafbátnum. Þetta túlkuöu margir á
þann hátt aö nýr kafbátur væri kominn
Tyrkinn Agca
hræddur
Tyrkneski tilræðismaöurinn,
Mehmet Ali Agca, sem skaut á páfann í
fyrra, hefur skrifað páfagarði og
ítölskum stjórnmálamönnum bréf, þar
sem hann segist vera í hættu í
einangrunarfangelsinu.
Fanfani, forseti ítalska þingsins,
segir aö Agca skrifi í bréfinu aö þaö
hafi ekki verið ætlun hans aö drepa
páfann og aö hann telji sig ekki óhultan
um líf sitt i einangrunarklef a sinum.
Italskur dómari er þessa dagana
staddur í Bandarikjunum til rann-
sóknar á fréttum sjónvarpsfrétta-
manns þar um, aö Agca kunni aö hafa
starfaö á snærum sovésku leyniþjón-
ustunnar, KGB. Engar sönnur hafa
veriö færöar á slíkt.
Gengis-
fall í
loftinu
GAJ fréttarritariDV í Lundi:
Ríkisstjórn Olof Palme tók formlega
viö völdum í Svíþjóö í morgun. Hún
mun i dag kynna ráðstafanir sínar í
efnahagsmálum og er yfirleitt reiknaö
meö að þær aögeröir feli í sér gengis-
fellingu, trúlega upp á 5—7%.
Gjaldeyrissala sænsku bankanna
var stöövuö í gær, og hinn nýi fjár-
málaráöherra Svía, Kjell Olof Feldt,
setti á fund meö fjármálaráöherrum
Finnlands, Noregs og Danmerkur á
Arlandaflugvelli i Stokkhólmi.
Skammt er liðiö síöan norska krónan
var felld um 5% og finnska markið um
3%.
Henning Cristophersen, fjármála-
ráöherra Dana, sagði að loknum
fundinumaö danska stjórnin hefði ekki
í hyggju aö breyta gengi dönsku krón-
unnar. En í Finnlandi var rætt um nýja
gengisfellingu, allt aö 20%.
á vettvang til þess aö draga athyglina
frá hinum innikróaöa kafbáti.
Stjómendur leitarinnar vildu ekki
tjá sig um þann möguleika í gær.
Vaxandi óþolinmæði gætir nú í Sví-
þjóð vegna þess aö enn hefur ekki
tekist að þvinga kafbátinn upp á yfir-
boröiö. Leitarmenn kvarta undan
ófullnægjandi útbúnaöi og segja aö
ítarlegur fréttaflutningur fjölmiöla af
gangi mála kunni aö hafa auðveldað
kafbátnum að dyljast.
„Fréttimar ná auðvitað líka þangaö,
sem viö viljum ekki,” sagöi Stefenson,
og taldi aö enn gæti liðið langur tími
þar til sæi fyrir endann á þessu máli.
JEG fréttaritari DV Osló:
Varpað var einnig djúpsprengjum
niöur i nótt viö kafbátsgiröinguna, líkt
og þess hafi oröiö vart aö kafbáturinn
hafi reynt aö smeygja sér út um hana.
Taliö er að hljóðnemi, sem Sviar
laumuöu niöur á kafbátsskrokkinn, sé
orðinn óvirkur. Ef til vill vegna þess aö
kafbátsmenn hafa gert hann þaö, eftir
aö hafa heyrt í útvarpi, að þeir drögn-
uöust meö einn slikan.
Þyrlur sænska hersins hafa kastað djúpsprengjum niður aö kafbátnum en
ur hljóðsamband við hann rofnað.
VillaðSASmilli■■
lendiíKeflavík
Grænlandsmálaráöherra Dana
sagði í viðtali við fréttaritara DV í
Kaupmannahöfn aö SAS flugfélagið
heföi 1. október hætt að millilenda í
Keflavík á leiö sinni til Grænlands.
Sagöi hann aö þetta væri mjög
bagalegt meö tilliti til feröa milli
Islands og Grænlands og aö hann
mundi gera allt sem í hans valdi
stæöi til aö fá SAS til aö taka aftur upp
millilendingar í Keflavík.
-ÞG—Khöfn.
Heilsanbrástí
kosningaslagnum
Formaður umhverfisflokksins
nýja í V-Þýskalandi, Petra Kelly,
liggur nú á sjúkrahúsi. Haföi hún
reynt meira á sig í kosningaslagnum
í Hessen en heilsa hennar þoldi en
þar vann flokkur hennar umtals-
verðan sigur 26. sept. sl.
Petra Kelly leiddi flokk sinn til
sigurs í Hessen.
Hún átti einnig aö ganga í farar-
broddi í kosningaslagnum í Bayem
en þar fara kosningar fram 10. októ-
ber. Þar fékk hún taugaáfall og var í
skyndi flutt á sjúkrahús. Segja
læknar aö hún sé nú í rannsóknum
vegna hjartatmflana.
Vægrefsingviö
ofveiöiárækju
Frá Þóri Guömundssynl, frétta-
ritara DV i Kaupmannahöf □:
Grænlensk yfirvöld hafa kvartaö
yfir aö 10 færeyskir togarar, sem
fóru langt yfir rækjukvótann við
Grænland, hafi fengiö alltof vægar
refsingar.
I þeim þremur málum sem búiö er
að dæma í fóru sektirnar ekki yfir 100
þúsund danskar krónur. Saman-
lagður ólöglegur gróði togaranna var
hins vegar um 10 milljónir dkr.
Togararnir veiddu 82% meiri
rækju en kvótinn leyfði.
-ÞGK--HÖFN.
Aukinsjálfs-
moröíNoregi
Fjöldi þeirra sem fremja sjálfs-
morö á aldrinum 15—29 ára hefur því
nær þrefaldast í Noregi á sl. 10 ámm.
Er þetta mun meiri aukníng en á
hinum Noröurlöndunum. Efst á blaði
eru skólanemendur en rúmlega
helmingurinn af þessu unga fólki
fremur sjálfsmorð með því aö taka
of stóran lyfjaskammt.
NámaslysíUberíu
Stifla brast við járngrýtisnámu í
Líberíu og við þaö flæddi aurinn ofan
í námurnar sem eru um 160 km
vestur af Monrovíu. Ottast er um líf
nær tvö hundruð manna. Ennfremur
flæddi yfir búöirnar, íverustaði
starfsfólksins, en breskur námasér-
fræðingur haföi í fyrra einmitt
varað við hættu á slíku.
Skurðurmilli
RínarogDónár
Hin nýja stjóm Kohls kanslara
hyggst ljúka framkvæmd á hinni
umdeildu áætlun um gerö skipa-
skurðar milli Rínar og Dónár.
Volkwr Hauff, áður samgöngumála-
ráðherra Schmidt-stjómariiinar,
lýsti henni í vetur sem „heimskustu
framkvæmd síðan þeir reistu
Babels-tuminn”.
Franz Josef Strauss sagöi Bæj-'
urum núna i vikunni aö Kohl heföi
heitið honum aö lokið yröi viö