Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 9
DV. FOSTUDAGUR 8. OKTOBER1982.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Viðræðurum
úrsögn Græn-
lands úr EBE
Grænlendingar, Danir og fulltrúar
Efnahagsbandalags Evrópu ræðast nú
við í Brússel til að semja um úrgöngu
Grænlendinga úr bandalaginu. Skiptir
miklu fyrir Grænlendinga að ná svo-
kölluðum OLT samningum við banda-
lagiö eftir að veru þeirra í EBE lýkur.
Bandalagið, og þá aðallega
Þjóðverjar, vilja semja um að fá
veiðileyfi á Grænlandsmiðum gegn því
að veita vilyrði fyrir OLT samningum
Grænlendingum til handa.
OLT samningurinn, sem var saminn
fyrir fyrrverandi nýlendur efnahags-
bandalagsríkjanna, myndi þýða að
Grænlendingar gætu flutt út fisk til
Evrópu, án þess aö borga af honum
tolla og er í rauninni afgerandi fyrir
f ramtíð atvinnulífs á Grænlandi.
Otto Stenholt, Assutþingmaður
Grænlendinga i Kaupmannahöfn,
sagði við fréttaritara DV þar í borg að
ef Assutflokkurinn kæmist í stjórn eftir
væntanlegar kosningar í apríl á næsta
ári væri hugsanlegt að Grænlendingar
gengju ekki úr EBE. Sagði hann að það
færi eftir því hvemig samningar
tækjust á milli Grænlands og EBE.
-ÞG—Khöfn/JÞ.
Prinsinn veld-
ur fjaðrafoki
Margur hneykslaöist sem fletti
bresku blöðunum í gærmorgun og sá
þar breiddar yfir heilu opnurnar
nektarmyndir af leikkonunni Koo
Stark sem Andrew prins hafði með sér
í orlofsferð til Karíbahafsins. — Af
fréttum að dæma hefur aöalframlag
stúlkunnar til leiklistarinnar verið
leikur í mildum klámmyndum.
1 neðri málstofu breska þingsins lét
einn þingmaður í ljós vanþóknun á því
að sjónvarp BBC hafði sýnt filmustúf
úr einni af kvikmyndum Koo Stark þar
sem hún var að f ækka fötum.
Hneyksluðust af öllum er sögð vera
hennar hátign Elízabet Breta-
drottning sem mun hafa oröiö æf þeg-
ar hún sá að fréttamenn Breta
uppnefnda prinsinn „Randy Andy”
(Graði-Andí). Stórblaðið Sun hefur
eftir blaðafulltrúa Buckinghamhallar:
„Hvemig gat prinsinn lent í slagtogi
með slíkum kvenmanni?” —
Drottningin er stödd þessa dagana í
Ástralíu vegna samveldisleikanna.
Eins og greint var frá í fréttum DV í
gær hefur Koo Stark að sögn leikið í
kvikmyndum sem kallaöar em milt
klám. Birtu bresku blöðin myndir af
lesbíuatriöum þar sem Koo Stark var
önnur konan. Fyrir skömmu hóf hún
leik í sjónvarpsþáttum hjá London
Thames Television en það munu vera
grínþættir.
Sagt er að prinsinn hafi kynnst leik-
konunni í næturklúbb í London en fyrr
í vikunni fóru þau meö farþegaþotu til
eyjarinnar Mustique í Karbíahafi þar
sem móðursystir prinsins, Margrét
prinsessa, á sér sumarhús. Ferðuðust
þau sem hjón, herra og frú
Cambridge. — Nú segja fjölmiðlar aö
móðir leikkonunnar, fráskilin og
nýlega gift öðru sinni, sé í fylgd með
þeim fyrir siöasakir. Talsmaður
konungsfjölskyldunnar ber á móti því í
viðtali við Daily Mail að móðirin hafi
verið send með hraöi á eftir hjóna-
leysunum að kröfu drottningarinnar.
Nýja kanslarafrúin:
LAMIN í HÖFUÐIÐ AF UÓSMYNDARA
Á þeim örlagarika degi er Helmut Kohl var kosinn kanslari V-Þýskalands sat ljóshærö, lagleg kona í áhorfenda-
stúkunni og fylgdist spennt með gangi mála. Þetta var eiginkona Helmuts Kohl, Hannelore. Það stóð þó i járnum að
hún gæti komið því tæprí viku áður hafði hún verið lamin í höfuðið með myndavél af ágengum ljósmyndara með þeim
afleiðingum að hún fékk slæman heilahristing.
— Eg tók inn fúkkalyf og kvalastillandi töflur til að halda mér á fótunum, sagði nýja kanslarafrúin á eftir. — Það
hjálpaði lika mikið að ég vissi alltaf um úrslitin, annars hefði ég ekki haldið það út að sitja þama. Þau hjón eiga tvo
syni, Walter 18 ára og Peter 16 ára, sem mættu auðvitað líka til að óska pabba til hamingju með nýja embættið.
verkið. — Skurðurinn er stein-
steyptur, 5ö metra breiöur. Eftir
að steypa 36 km af honum og er ætlaö
að það muni kosta 156 milljónir
marka en til þessa hafa farið í skurð-
gerðina þrír milljarðar.
Mannræningjar
fyrírrétti
áSardiníu
Kaupsýslumaðurinn, Rolf Schild,
var í fréttunum 1979 eftir að ræn-
ingjar á Sardiníu námu á brott með
valdi þau hjónin og Annabel dóttur
þeirra. Mæðgumar voru á valdi
ræningjanna í sjö mánuði en Rolf
slapp fýrr til þess að öngla saman í
lausnargjald fyrir þær 600 þúsundum
doliara.
Réttarhöld standa þessa dagana
yfir 93 grunuðum mannræningjum á
Sardiníu og voru Schild-hjónin meðal
vitna. Báru þau kennsl á nokkra af
bófunum.
FORD FAIRMONT
78, 6 cyi., Decor, ekinn 57.000
km., brúnn. VerO kr. 85.000.
TOYOTA STARLET1200,
:5 gira, '81, ek. 14.000 km., brúnn.
Verfl kr. 115.000.
TOYOTA TERCEL,
3-dyra, beinsk., '81, ek. 16 þús.
km., drapp-málmgljái. Verfl kr.
130.000.
TOYOTA TERCEL,
3-dyra, sjálfsk., árg. '80, ek. 27
þús. km., Ijósbrúnn. Verfl kr.
120.000.
TOYOTA CRESSIDA,
4-dyra 78, ek. 61 þús. km., gulur.
Verð kr. 95.000.
TOYOTA CRESSIDA STATION,
TOYOTA CORONA MARKII,
FORDBRONCO,
'80, ek. 33 þús. km., brúnn. Verfl 75, ek. 102.000 km„ gulur. Verfl 74, 8 cyl., ek. 20 þús. á vál, gulur.
kr. 145.000.
kr. 65.000. (Ný frambretti, nýtt Verfl kr. 85.000. (öll bretti ný).
pústkerfi, nýlegar bremsur, nýtt
lakk).
TOYOTA CARINA GL,
'80, ek. 44 þús. km„ blár. Verfl kr.
125.000.
TOYOTA COROLLA,
TOYOTA COROLLA,
TOYOTA COROLLA liftback.
4-dyra, sjálfsk., '80, ek. afleins 4-dyra, beinsk., '80, ek. 45.000 78, grœnn. Verfl kr. 95.000.
3.400 km„ rauflur. Verfl kr. km„ grár-málmgljái. Verfl kr.
120.000. 105.000.
TOYOTA CORONA MARKII,
76, ek. 112 þús. km„ blár. Verfl
kr. 65.000. (Þarfnast sprautunar á
frambrettum).
DATSUN DÍSIL,
77, 220 c„ ek. 144 þús. km„ grár.
Verfl kr. 100.000. (m/ökumæli).
Góður bíll.
ATH: OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ KL. 10-4.
ATH: Bifreiðasalan er flutt í nýtt húsnæði,
að framanverðu (áður varahlutadeild).
SALURINN
Nýbýlavegi 8, sími 44144.