Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Side 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Kosninga-
skjálfti
á Spáni
Valdaránssamsæriö sem upp
komst um á Spáni hefur leitt athygli
manna að nokkru frá kosninga-
undirbúningnum sem var aö komast
í algleyming fyrir viku. En slagurinn
heldur áfram þótt margir velti því
fyrir sér hvort úrslitaorrustan drag-
ist ekki þangað til eftir aö kjósendur
hafa greitt atkvæði.
Sósíalistum spáö
meiríhluta
Fáir draga í efa aö sósialistar sem
hafa verið í stjómarandstööu síðan
síðustu skotunum var hleypt af í
borgarastyrjöldinni fyrir 43 árum,
verði stærsti flokkurinn eftir
kosningamar núna 28. október.
Niðurstöður allra skoðanakannana
hafa verið á einn veg um það.
Um hitt þykir leika meiri vafi
hvort flokkurinn, sem lýtur forystu
Felipe Gonzalez, lögfræðings frá Se-
viha, muni njóta nægilegs fylgis til
þess að öðlast hreinan meirihluta í
þinginu, þar sem 350 fulltrúar eiga
sæti. Um það snýst umræðan þessa
dagana, þegar menn em ekki að láta
í Ijós gremju sína með hina eilífu
valdaránstilburðihörðustu falangist-
anna innan hersins, sem allur þorri
Spánverja er búinn aö missa þolin-
mæðinameð.
Þó hefur byltingarsam-
særið ekki almennilega megnaö að
vekja upp reiði í fullri alvöm, því að
þetta brölt of urstanna þykir of fárán-
legt og svo dæmt til þess að mis-
heppnast að engum þykir sem
lýðræðinu stafi nein alvarleg hætta
af þessari dægradvöl dátaforingj-
anna. Viðbrögðin minna meir á
óþolinmæði með þreytandi óþægðar-
krakka.
Þetta em þriðju þingkosningamar
síðan Spánn losnaöi undan einveldi
Francos hershöfðingja eftir fráfall
hans 1975.
Mikilþörffyrír
meirihlutastjórn
Sósíalistar hafa gengið til kosn-
ingabaráttunnar með þær f ullyrðing-
ar að naumast verði fyrr unnt að tala
um fullkomin umskipti frá einveldi
til lýöveldis fyrr en þeir hafi unnið
meirihluta og ihaldsöflin fengist til
þess að virða niðurstöður kosning-
anna. Á þessu síðasta hamra þeir
sérstaklega eftir að upp komst um
valdaránssamsæriö sem þeir segja
að hafi orðið beinlínis vegna þess að
hægriöflin hafi ekki þolað að sjá
fram á ömggan kosningasigur
sósialista.
Flestir stjórnmálamenn Spánar
ætla aö lýðræði landsins stafi meiri
hætta af því ef ekki fæst meirihluta-
stjórn upp úrkosningunum heldur en
nokkm valdaránsbrölti ringlaðra
herforingja sem ekki skilja að þeirra
vitjunartími er löngu liðinn og að
þjóðin hafnar alfarið slíkum valda-
ræningjum. Þykir vera slíkt bil milli
stjórnmálaflokkanna aö enginn fær
séð að þar náist nokkum tíma sam-
Spánverjar hlýðe 6 Suarez í kosningasjónvarpi.
komulag um margra flokka stjóm ef
enginn einn flokkur fær meirihluta.
Sósialistar fengu í kosningunum í
mars 1979 alls 121 þingsæti í
„Cortez”, en Lýðveldismiðflokkur-
inn fékk 167 þingfulltrúa, og vom
þessir tveir stærstir. Tvísýnast við
komandi kosningar er hvemig fylgi
miöflokksins muni dreifast. Hrær-
ingar að undanförnu benda til fylgis-
flótta frá honum, en hvort það muni
renna til hægriafla eða vinstriflokk-
anna veldur miklu um hve nálægt
meirihluta sósíalistar veröa.
Margir bjóða
framlista
Samkeppnin um þessi vafaatkvæði
hafa sett mestan svip á kosningabar-
áttu Lýðveldismiðflokksins og brott-
hlaupsmanna, sem fylgdu Adolfo
Suarez úr flokknum yfir í hinn nýja
CDS-flokk hans. Er þess beðið með
mikilli eftirvæntingu hvemig nýja
flokknum muni famast. Ymsir spá
því að hann muni fara langt fram úr
gamla miðflokknum vegna persónu-
fylgis Suarezar. Aðrir halda því
fram að nýi flokkurinn muni týnast í
baráttunni milli hægri og vinstri.
Flokkamir og flokksbrotin sem
bjóða fram em æði margir. Það em
að minnsta kosti átta sem bjóöa
fram lista undir merki kommúnista.
Þrír stimpla sig jafnaðarmenn.
Fimm listar kallast vera lengst til
hægri. Leiðtogamir sem mest ber á
em; auk Suarez, fyrrum forsætisráð-
herra, og Gonzales, sem þykir líkleg-
ur næsti forsætisráðherra; þeir
Landelino Lavilla, leiðtogi Mið-
flokksins gamla, og Manuel Fraga,
sem var ráöherra í stjórnartíð
Francos, nú leiðtogi hægrimanna í
Þjóðarbandalaginu. Þessir fjórir
komu fram í klukkustundarþætti
hver í sjónvarpinu í lok síðasta
mánaöar og sátu fyrir svörum hjá
fréttamönnum.
Kosningakt forð
úr öllum áttum
Kosningaloforð þeirra allra snúast
um helstu hjartansmál kjósenda
þessar vikurnar. Nefnilega atvinnu-
leysið og verðbólguna. Kennir hjá
þeim margra grasa í tillögum um úr-
ræði í efhahagsmálunum. Er það allt
frá lækkun skatta og niðurskurði á
opinberum útgjöldum, sem Fraga
vill, og til atvinnubótaráða, sem
Gonzalez leggur til, með hugmynd-
um um meiri fjárfestingu þess opin-
bera í atvinnulífinu.
Skýrastur er kannski munurinn á
stefnu flokkanna í utanríkismálum.
Sósíalistar og kommúnistar eru and-
vígir aðild Spánar að Norður-
Atlantshafsbandalaginu en Þjóðar-
bandalagið og Miöflokkurinn styðja
hana. — Miö- og hægri flokkarnir
vinna gegn fr jálsari fóstureyðingum,
kommúnistar vilja leiöa þær í lög og
sósíalistar vilja létta ögn á laga-
hömlunum.
Laumar blásýru í
höfuðverkjameðal
Tvær piastkrukkur með Extra-Strength Tylenol-hylkjum. Sú tH vinstri
er fullkomloga hættulaus, en sú tíl hægri reyndist vere með blásýru í
hylkjunum. Enginn munur á að sjá, entifog dauði skilur þó á milli verk-
ana.
Rannsóknaraðilar í fylkjunum
IUinois og Washington leita dyrum
og dyngjum að einhverjum sem þeir
vita ekki einu sinni hvemig lítur út
en ætla algjöran brjálæðing. Manni
sem virðist gera sér að leik að setja
blásýru eða stryknín (rottueitur) í
plasthylki sem annars geyma' eitt
vinsælasta höfuðverkjalyfið í
Bandaríkjunum. Sjö manns hafa
látið lífið af eitrun af völdum þessa
grálynda leiks.
Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum
hefur látið afturkalia af maricaðnum
um hálfa miUjón plastkrukkur sem
hver um sig inniheldur 50 hylki með
,,Extra Strength Tylenol”, eins og
höfuðverkjalyfið heitir. Hefur fólk
jafnvel verið varaö við að neyta
þessa meðals, þótt það sé í öðru
formi. I sumum fyUcjum hefur þegar
tekist að ná meðalinu alveg úr um-
ferð og víða hafa lyfjaverslanir
sjálfar haft frumkvæði að því að f jar-
læg ja það úr hiUum sínum.
Menn hafa ekki minnsta grun um,
hver getur hafa verið þarna að verki.
Ekkert spor til þess að rekja og
hugnar mönnum lítið að vita þann
sem þetta hefur gert leika enn
lausumhala.
Ef ekki hefði verið fyrir árvekni
lækna við Northwest Memorial
Hospital fyrir utan Chicago, og eftir-
tektarsams slökkvUiðsmanns hefðu
fómardýr brjálæöingsins vafalaust
orðið miklu fleiri. Læknamir áttuðu
sig fljótt á því að banamein s júklinga
sem þeim bárust hlyti að vera
blásýrueitrun. SlökkvUiðsmaðurinn
sem flutt hafði fólkið veitti því eftir-
tekt að Tylenol kom við sögu í öUum
tUfeUunum sjö.
AHirdóu
Þetta byrjaði á miðvikudag fyrir
viku í úthverfinu Elk Grove-VUlage
ýið Chicago. Tólf ára telpa hafði
kvefast og faöirinn gaf henni Tylen-
ol-hylki. Hún missti fljótt rænu og
var látin þegar sjúkraliðið kom á
staðinn.
Nokkrum klukkustundum síðar
var komið með 27 ára gamlan mann,
Adam Janus tU Northwest
Memorial-spítalans sem er í ArUng-
tonhæðunum norður af Chicago,
(eins og Elk Grove ViUage). Hafði
hann tekið inn Tylenol-hylki við
vöðvaverkjum og liðið út af. Hann
lést eftir nokkrar klukkustundir.
Bróðir hans og mágkonu sneru
ásamt ööm skylduUöi heim tU
Adams að leita að dánarorsökinni.
Höfðu þau bæði höfuðverk af raunum
Adams og tóku inn hvort sinn
Tylenol-belginn úr sömu plastkrukk-
unni og hann enda enginn gmnur
vakinn þá. Þau voru bæði lögð Uin á
sama sjúkrahús og Adam og andað-
ist bróðirinn eftir nokkrar kiukku-
stundir en mágkonan eftir nokkra
daga.
Á fimmtudag dó 27 ára kona í
Winfield í IUinois nýkomin heim frá
fæðingardeUdinni með hvítvoðung
sinn. Hún hafði tekið inn Extra-
Strenght Tylenol og í veski hennar
fann lögreglan síðar sex belgi tU við-
bótar. I ljós kom blásýra í fjómm
þeirra.
Sömuleiðis fann lögreglan Tylenol-
hylki í veski 31 árs konu sem var
sjötta dánartUfeUiö. Það reyndist
vera blásýra í þeim einnig.
Thomas Kim, yfirlæknir gjörgæsl-
unnar á Northwest Memorialsjúkra-
húsinu, fyUtist iUum grun þegar ekki
tókst að vekja Adam Janus, ungan
og frískan mann aftur tU lífsins.
Hann grunaöi eitmn. Þegar bróðir-
inn og mágkonan komu einnig lét
hann gera blásýmprófun á blóðsýn-
umfráþeim.
Varaö við
PhUip CappiteUi slökkvUiðsstjóri
sat heima hjá sér og heyrði frétt-
irnar í útvarpinu um dauðsföUin.
Náði hann sambandi viö kunningja
sinn í lögreglunni og fengu þeir að
skoöa skýrslur sjúkraflutnings-
manna því að þeim þótti málið kynd-
ugt. Þegar þeir fundu Tylenol tengt
við ÖU dauðsföUin gerðu þeir viðvart.
Rannsóknaraðilar telja fuUvíst að
blásýran finnist aðeins í Tylenol-
hylkjum. Síðan hafa borist fréttir af
því að f undist hafi í Kalif orníu Tylen-
olhylki með stryknín (rottueitri)
blandaö í hyUcin. I OroviUe veiktist
maður sem notað hafði EST en hann
náði sér aftur og var byrjaður vinnu
að nýju á mánudaginn. Fannst
stryknín í hyUcjunum sem hann
leifði.
Lögreglan haUast helst að því aö
eitrið hafi verið sett í hylkin eftir að
þau voru send frá framleiðandanum
en þau em búin til í verksmiðju í
Pennsylvaníu og annarri í Texas.
Þetta meðal er selt eins og mörg önn-
ur meinUtU verk jalyf án lyfseðUs frá
lækni. Plastkmkkurnar em ekki
innsiglaðar.
Útbreht
verkjameða!
Tylenol er vinsælasta höfuðverkja-
meðalið á markaðnum í
Bandaríkjunum (37%). Extra-
Strength Tylenol sem selt er bæði í
hylkjum, töflum og vökvaformi er
aðeins hluti framleiöslu fyrirtækis-
ins Johnson & Johnsons, en þó
fimmti hluti. Hvert Extra-Strength
Tylenol hyUci inniheldur 500 mUU-
grömm af Tylenol, en eitruðu hyUcin
hafa reynst innihalda frá 100 upp í
rúm 500 miUigrömm. 50 til 100 mUU-
grömm af blásýra teljast banvænn
skammtur.
Tylenol hefur unnið sér markað á
síðustu árum eftir aö fram komu
skoðanir um að aspirín gæti reynst
skaðlegt. Eftir fréttimar um dauðs-
föllin féUu hlutabréf Johnsons &
Johnsons í verði á verðbréfamörkuð-
um.
Brjálæðingur
Lögreglan telur að sá sem hefur
sett eitrið í hylkin hljóti að starfa í
einhverju fyrirtæki sem verslar með
lyfið eða starfi við að setja það á
markaö. Það er talið að hann hljóti
að vera geðveikur. Það gæti reynst
jafnerfitt og að leita að nál í hey-
stakki að hafa uppi á viðkomandi.