Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Qupperneq 28
36
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982.
Sími 27022 Þvertiolti 11
Smáauglýsingar
Bílaleiga
Bjóðum upp á 5—12 manna
bifreiðir, station-bifreiðir og jeppa-
bifreiðir. ÁG. Bilaleiga, Tangarhöfða
8-12, símar 91-85504 og 91-85544.
Tilsölu
Oldsmobile Delta 88 disil 78 með öllu,
ekinn 33000 á vél, nýupptekin skipting.
Uppl. í sima 20494.
Renault 12 árg. 77,
góður bíll, til sölu, skipti möguleg.
Uppl. í síma 86066, kvöldin í síma
76096.
Þjónusta
seqdir
Vélaverkstæöi— Vélsmiöja
Viðgerðarsuða-nýsmíði-vélaviðgerðir.
Tökum að okkur suðuviðgerðir á pott-
steypustáli-áli. Nýsmíöi og véla-
viðgerðir. Vélsmiðjan Seyðir,
Skemmuvegi 10 L. Kópavogi, sími
78600.
Varahlutir
ðSumeoBie
Ö.S. umboðið
Varahlutir—aukahlutir—sérpantanir.
Sérpantanir í sérflokki — enginn sér-
pöntunarkostnaöur — nýir varahlutir
og allir aukahlutir i bUa frá USA,
Evrópu og Japan — einnig notaöar vél-
ar, bensín og dísU, gírkassar, hásingar
og fl. Fjöldi varahluta á lager t.d.
flækjur, felgur, blöndungar, knastás-
ar, undirlyftur, tímagírar, drifhlutföU,
pakkningasett, olíu dælur og margt fl.
Hagstætt verð: Margra ára reynsla'
tryggir örugga þjónustu. Myndalistar
fyrir bUa, jeppa og van aukahluti fyrir-
liggjandi. Póstsendum um land aUt.
Einnig fjöldi upplýsingabækhnga fáan-
legur. Uppl. og afgreiðsla að Skemmu-
vegi 22 Kópavogi aUa virka daga miUi
kl. 20 og 23 að kvöldi. PóstheimUisfang
er á Víkurbakka 14 Rvík, Box 9094,129
Reykjavík. Ö.S. umboðið..
Til sölu
TU sölu eru þessi jeppabelti,
sérhönnuð fyrir íslenskar aöstæður.
Varahlutir fylgja. Baldur Sig. Sími 96-
22777.
Vandaðar ogfaUegar
úti- og bílskúrshurðir tU sölu, afhend-
ast í karmi, með lömum og læsingum.
Mikið úrval, gott verð. Sjón er sögu
ríkari. Snickar Per umboðið, Fjarðar-
ási 27, Rvk. sími 77680.
[Likamsy ekt
Yogastöðin HeUsubót.
Viö bjóðum morguntíma, dagtíma, og
kvöldtíma, fyrir fólk á öllum aldri,
saunaböð og ljósaböö. Markmið okkar
er aö verjast og draga úr hrörnun, að
efla heilbrigði á sál og líkama. Nánari
uppl. í símum 27710 og 18606.
Tilkynningar
roskahjá/p
TÍMARIT UM
MAtEFNI
AROSKAHEFTRA
2. HEFTI 1932
Tímaritið
Þroskahjálp
2. hefti 1982 um málefni þroskaheftra er kom-
ið út. Utgefandi er Landssamtökin Þroska-
hjálp.
1 ritinu eru ýmsar greinar um málefni
þroskaheftra s.s. þrjú erindi frá ráðstefnu
samtakanna um þjónustuhlutverk sólar-
hringsstofnana eftir þau Láru Bjömsdóttur,
Bjama Kristjánsson og Þórarin Eldjám.
Einnig birtist í ritinu viðtal við Karl Grune-
wald, sem staddur var hér á landi í vor í boði
félagsmálaráðuneytisins.
Fjallað er um blöndun fatlaðra bama inn á
almenn dagvistunarheimili og foreldrar láta'
frá sér heyra.
Sylvía Guðmundsdóttir sérkennari skrifar
um samskipti hinna ýmsu starfsstétta sem
vinna að málefnum þroskaheftra og Dóra S.
Bjarnason ritar grein um einstæða foreldra
og ung, fötluð böm.
Þá er í ritinu þýdd grein um þörfina fyrir
afleysingu fyrir foreldra og aðstandendur þar
sem þroskaheftir dveljast í heimahúsum, auk
ýmissa fleiri greina og upplýsinga um
málefnið.
Tímaritið Þroskahjálp er sent áskrifendum
og er til sölu á skrifstofu samtakanna að
Nóatúni 17,105 Reykjavík, sími 29901 og þar er
einnig tekið á móti áskriftarbeiðnum.
3. bindi jarðabókarinnar
er komið út.
Þriðja bindi jarðabókar Áma Magnússonar
og Páls Vídalins er nú komið út endurprentað
á vegum Hins íslenska fræðafélags í Kaup-
mannahöfn. Þetta bindi er um Gulibringu- og
Kjósasýslu, og var jarðabók þessi samin á
árunum 1703—1705. Bogi Th. Melsted gaf hana
fyrst út á árunum 1923—1924 hjá
Fræðafélaginu.
Félagið réðst í endurútgáfu á jarðabókinni
árið 1980, og kemur 4. bindi, um Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, um mánaðamótin
nóvember—desember. Ráðgert er að gefa út
tvö bindi á ári hverju. Aö síðustu verður svo
gefið út lokabindi, þar sem birt veröa skjöl
um sjálfa jarðabókina og samningu hennar,
og gerð verður atriðisorðaskrá um öll bindin.
Gunnar F. Guðmundsson sagnfræöingur sér
um útgáfu á þvi bindi.
Band hinnar nýju útgáfu hannaði Hilmar
Einarsson, forstööumaður viðgerðastofu
Safnahússins, og Tómas Jónsson teiknari sá
um útlit kápu. Kápuna prýðir handgerð eftir-
mynd af Islandskorti Þórðar biskups
Þorlákssonar frá 1670. Kortið sjálft var í eigu
konungs, en Ámi Magnússon hafði það að Iáni
meðan hann vann að samningu jarða-
bókarinnar hér á landi.
Upplag útgáfunnar er 1200 eintök, en ásknf-
endur eru um650.Verði er mjög stilltí hóf.svo
að sem flestir geti eignast þetta merka
heimildarrit.
Umboð fyrir Fræöafélagið hefur Sögufélag,
Garðastræti 13b, lOlr. og getá áskrifendur
vitjað jarðabókarinnar þar.
Fjórða hefti Tímarits
Máls og menningar
er nýkomið út. Hluti þess er helgaður
leiklistarmálum og er viðamesta greinin eftir
breska leikstjórann Peter Brook um Dauða
leikhúsið. Grein Thomasar Ahrens sem ber
beitið Pilturinn sem fór útí heim til að læra að
hræðast fjallar um bamaleikhús og Silja
Aðalsteinsdóttir skrifar um Skilnað, nýtt leik-
rit Kjartans Ragnarssonar.
Einnig er í þessu hefti ítarieg grein um bók-
menntagagnrýni í íslenskum dagbiöðum eftir
Ástráð Eysteinsson MA. Hann ræðir þar hlut-
verk dagblaðagagnrýni aimennt, fjallar síðan
vandlega um alla þá gagnrýni sem birtist um
þrjú ný íslensk skáldverk á síðasta ári og
gerir loks yfirlit yfir einkenni islenskrar dag-
blaðagagnrýni.
Höfundurinn sem framleiðandi er grein
sem þýski bókmenntafræðingurinn Walter
Benjamin samdi árið 1934 og margir hafa haft
áhuga á að fá á íslensku.
Ljóð eru í heftinu eftir Olaf Jóhann Sigurðs-
son, Lindu Vilhjálmsdóttur og Guðberg
Bergsson sem líka á þar skemmtilega athug-
un á suðrænum mönnum og norrænum í
greininni Latneskur andi. Umsagnir eru um
ljóðabókina Farvegi eftir Stefán Hörð Gríms-
son og Frjáishyggjuna eftir Birgi Bjöm Sigur-
jónsson sem svarar fyrir sig á sama stað.
Deyðum neysluþjóðfélagið
Ný lífsgildi
Ný Iffsgildi og
aukin lífsorka
Næstkomandi laugardag, 9. okt., mun verða
fjölþætt kynning á ýmsu því sem lýtur aö
breyttum lífsháttum og andlegu viðhorfi til
tilverunnar. Kynningin er í höndumfólkssem
hefur mikla reynslu og þekkingu.hvertá sínu
sviði. Það sem boðið er upp á er umfjöllun um
heilsufræði, kennsla í iljanuddi
(zonetherapy), japanskt nudd (shiatzu), jóga-
leikfimi o. fl. Ennfremur verða sérstakir
fyrirlestrar um eðli mannshugans og hug-
leiðslu. Þá verða hringborðsumræður um
„hver sé skylda menntamanna og vísinda-
manna gagnvart þjóðfélaginu, markmið
vísinda og nýjar skilgreiningar á hugtökunum
framfarasinnaður, andlegur o. fl.
Tónlist og listræn tjáning fær einnig sitt
rúm á dagskránni. Veitingar verða á vægu
verðiástaðnum.
Fólki er heimilt aö mæta á hluta dag-
skrárinnar og er öllum heimill aðgangur sem
einlægan áhuga hafa á meðan húsrúm leyfir.
Staðurinn er Aðalstræti 16,2. hæð og byr jar
dagskráin kl, 10 að morgni og endar kl. 7 að
kvöldi og verður hún byggð upp þannig að það
veröur margt í gangi í einu og getur fólk valið
hverju sinni hverju það kýs að taka þátt í.
Október Eisensteins
í MÍR-salnum
Október, hin fræga kvikmynd Sergeis Eisen-
stein, verður sýnd í MlR-salnum, Lindargötu
48, nk. sunnudag 10. október kl. 16.
Kvflanyndin var gerð í tilefni 10 ára aúnæiis
Októberbyltingarinnar og fjallar um hina
sögulegu daga í október-nóvember 1917,
þegar bolsevíkar komust til valda í Rússlandi
og lýst var yfir stofiiun sovétlýðveldis á 2.
þingi ráða verkamanna, hermanna og bænda.
Söguþráðurinn í myndinni nær hámarki
þegar sjóliðamir frá Kronstadt gera atlögu að
Vetrarhöllinni og Antonov-Ovsesjenko og liðs-
menn hans handtaka ráðherra í bráðabirgða-
stjóminni, nema Kerenskí forsætisráðherra
sem hafði komist undan á flótta.
Þróun stjórnmála í Sovétríkjunum í nóvem-
ber 1927 olli því að Eisenstein varð að breyta
hluta kvikmyndarinnar og var hún fyrst
frumsýnd þannig breytt 14. mars 1928.Súgerð
kvikmyndarinnar sem sýnd verður í MlR-
salnum á sunnudaginn er frá árinu 1967 og
þar hefur nokkrum af hinum upprunalegu at-
riðum aftur verið bætt inn í myndina.
Höfundur tökurits og leikstjóri er sem fyrr
var sagt S. Eisenstein, aðstoðarleikstjóri G.
Aleksandrov, myndatökumaður Edvard
Tisse. Skýringar á dönsku.
Aðgangur að kvikmyndasýningum í MlR-
salnum er ókeypis og öllum heimill.
í fyrsta sinn:
UMSK mðt i karate, Garðabæ 10. okt. ’82. í
fyrsta skipti steudur Ungmennasambaud
Kjalarnesþings fyrir keppni í Karate, hjá
þeim félögum sem æfa Karate innau sam-
bandsins. Það eru Karatedeild Stjömunnar,
Garðabæ og Karatedeild Gerplu Kópavogi.
Keppnin fer fram í íþróttahúsinu Ásgarði,
Garðabæ, sunnudaginn 10. október kl. 13.00—
16.00.
í Karate em tvenns konar keppnisform.
Annars vegar KATA, sem em formlegar
æfingaseríur, og hbis vegar KUMITE sem er
frjáis bardagaaðferð. Dagskrá mótsins
verður: 1. Setning. 2. KATA drengja. 3. KATA
karia. 4. KATA kvenna: 5. KUMITE karla. 6.
Verðlaunaafbending.
Verzlun
Þrír litir, stærð 4—16. Verð kr. 435.
Þvegnar gallabuxur, stærö 4—16. Verð
282 kr. og 291 kr. Verslunin Val,
Strandgötu 34, Hafnarfirði. Sími 52070.
Sendum í póstkröfu.
Easy gallabuxur,
herra- og dömusnið, kr. 490, stretch
gailabuxur, kr. 550, kakíbuxur, kr. 390,
peysur frá kr. 290, háskólabolir frá
USA kr. 210, T-bolir kr. 85, Georg, fata-
verzlun, Austurstræti 8.
Bflaþjónusta
Varmahlíö, sími 95-6119.1 fararbroddi
með yfirbyggingar á Datsun King C.
Toyota Hi-lux, Lapplander, Isuzu,
Chevrolet pickup, Scout pickup,
Dodge pickup, og Ford pickup. Far-
þegayfirbyggingar fyrir alla flokka.
Sendum myndbækling. Ný útlit J.R.J.
bifreiðasmiöja hf. Varmahlíð, sími 95-
6119.