Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 8
8 DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982. Kæliverk sf. Kaldbaksgötu 4 - Akureyri, sími (961-24036 Viðgerðir - varahlutir - nýsmíði Tökum til vidgerdar: kœliskápa — frystiskápa — frystikistur — kœlikerfi — frystikerfi — mjókurtanka. Setjum upp og útvegum: frystiklefa — kœliklefa — ísvélar — frystitœki — varmadœlur. Ódýru helgarreisurnar til Reykjavíkur eru bráð- sniðugar ferðir sem allir geta notfært sér. Einstaklingar,fjölskyldur og hópar.fámennir jafnt sem fjölmennir, geta tekið sig upp með stuttum fyrirvara, flogið í bæinn og notið borgarlífsins við úrvals aðstæður. Leikhúsferðir, heimsóknir, verslunarferðir, fundarhöld og ráðstefnur, ferðir á íþróttavið- burði og sýningar. Alls konar skemmtiferðir rúmast í helgarreisunum. Leitið upplýsinga hjá: Ferðaskrifstofu Akureyrar hf. sem gefur allar nánari upplýsingar, sími 25000. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi KEA, Bilnadarbankiim «g Idnadarbankinn £á lóð í miðbænum Bæjarstjórn Akureyrar hefur sam-. þykkt að veita Kaupfélagi EyfirÖ- inga, Búnaðarbanka Islands og Iðnaðarbanka Islands hf. lóð á miö- bæjarsvæðinu, samkvæmt nýgerðu skipulagi. Einnig var ákveöið að kanna viðhorf fjármálaráðuneytis- ins til þátttöku í fyrirhugaðri bygg- ingu á lóðinni. Umrædd lóð er á homi Strandgötu og Geislagötu, þar sem miöstöð strætisvagnanna er nú. Þref hefur staðið um lóðina en auk fyrrgreindra aðiia voru verkalýðsfélögln ásamt Alþýðubankanum meðal umsækj- enda. Ekki náðist samkomulag milli þessara þriggja bankastofnana um samnýtingu á lóðinni. Allt stóð því fast þar til verkalýðsfélögin festu kaup á húseignum við Skipagötu. Samkvæmt skipulagi er ætlað aö byggja stóra byggingu á lóðinní, samtals um 6000 fermetra að flatar- máli. GS/Akureyri FER „RALTÐAIILSIH" er þvottahúsið Mjöll og síðan Skemman. Þessa húseign hafa nú verkalýðsfélögin keypt og ætla þau að byggja 3—5 hæðir ofan á. Verkalýðsfélögin kaupa húseign við Sklpagötu Ellefu verkalýðsfélög á Akureyri hafa sameinast um kaup á Skipagötu 14, með tilheyrandi lóðarréttindum, en þessi húseign var áður í eigu Kaupfélags Eyfirðinga og verslunar- innar Skemmunnar. Gengið hefur verið frá samningum viö KEA en eft- ir er að ganga formlega frá samning- umvið eigandaSkemmunnar. Núverandi bygging á lóðinni er að- eins ein hæð en gert er ráð fyrir aö byggðar verði 3—5 hæðir í viöbót. Þarna ætla verkalýðsfélögin að koma sér upp félagsmiðstöð en fyrir átti Lífeyrissjóðurinn Sameining Skipagötu 12, sem er sambyggt hús. Samhönnun á Akureyri hefur þegar hafist handa við að teikna bygging- una og er stefnt að framkvæmdum næsta sumar. Félögin sem að þessum kaupum og byggingu standa eru: Eining, Iðja, Félag málmiönaöarmanna, Sjó- mannafélag Eyjafjarðar, Félag verslunar- og skrifstofufólks. Tré- smiðafélag Akureyrar, Múrarafélag Akureyrar, Skipstjórafélag Norð- lendinga, Vélstjórafélag Islands, Verkstjórafélag Akureyrar og Raf- virkjafélag Akureyrar. Einnig er lík- legt að Alþýöubankinn verði með í myndinni. Fær hann þá að líkindum aöstöðu á jarðhæöinni, þar sem þvottahúsiö er nú til húsa. Skemman verður áfram á sama stað þrátt fyrir eigendaskiptin á húsnæðinu. GS/Akureyri IAA í FJÖR1J? Bæjarstjóm Akureyrar hefur ákveðið að láta fjarlægja „Rauöa húsið” svonefnda, sem stendur við Skipagötu. A árum áður var Rauöa húsiö skýli fyrir verkamenn bæjarins og síöar hafnarverkamenn. Undanfarin ár hefur húsið verið notað fyrir mynd- listarsýningar og hljóðfærasmiður hefur haft þar aðstöðu. En nú á húsið aðhverfa, en hvert? Ekki eru ætlun bæjarstjórnar aö rífa húsið, samkvæmt heimildum DV. Þess í stað er ætlunin að flytja þaö á hentugan staö, þar sem það getur staðið til frambúðar. Komið hefur til greina aö setja þaö niður á lóð Minjasafnsins við Aðalstræti og nota húsið siöan fyrir muni safnsins, eða fyrir myndlistarsýningar. Ástæðan fyrir því að húsið þarf að hverfa er einkum sú að verkalýðsfé- lögin hafa fest kaup á húsunum viö Skipagötu 12 og 14. Ætlunin er aö byggja frekar á lóðunum en Rauða húsið stendur á hluta annarrar lóðar- innar. Auk þess er ætluð gönguleið frá bílastæðum við Skipagötu upp í göngugötuna við Hafnarstræti og þar er Rauðahúsið einnig í veginum. GS/Akureyri Rauða húsið stóð upphaf - lega ó Sval- barðseyri, en var síðan fiutt tii Akureyrar. Nú stendur tíl að fíytja það inn iFjöru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.