Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Side 27
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982. 27 Snjókorn Snjókorn Snjókorn Snjókorn Snjókorn ítök í geðdeild- inni Elías Elíasson, bæjarfógeti á Akureyri, er þekktur fyrir að vera samviskusamur emb- ættismaður. Á það ekki síst við þegar um innheimtu opin- berra gjalda er að ræða. Skiptir þá engu hvort í biut á séra Jón eða Jón. Meira að segja góðverkastofnanir eins og sjúkrahúsíð sleppa ekki. Fjórðungssjúkrahúsið mun ekki hafa staðið í skilum með opinber gjöld vegna starfsfólks. Mun skuldin hafa verið orðin um 2,8 m. kr. Gerði Elías sér þá lítið fyrir og lét taka lögtak i geðdeQd sjúkrahússins við Skólastíg!! Hvort Elias hafði eigin hags- muni í huga, eða hvort hann hefur haft áhyggjur af heilsu- fari starfsmanna sinna, þeg- ar hann valdi geðdeildina, það f yigir ekki sögunni. Framsóknarmenn að steini Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi eystra hafa valið frambjóðendur í efstu sætin á framboðslista sinum við næstu alþingis- kosningar. Fóru þeir troðnar slóðir og völdu sömu menn og áður. Þá heyrðist kveðið i Ráðhúsinu: Fræg var þróun Framsóknar, f jendur hlógu í leyni. Aldnir dóu ekki þar enurðuþó að steini. Synda- selurinn Fyrir skömmu var fluttur selur til Akureyrar alla leið frá Hollaudi. Kom hann með þotu til Keflavíkurflugvallar, en þaðan fékk hann undir sig einkaflugvél. Var selnum gef- ið frelsi við flugbrautarend- ann á Akureyri og hvarf hann fljótt í Pollinn. Hvarf þá fylgdarliðið frá Hollandi á braut. En Andrés vinur minn beið. Skömmu síðar skaut selurinn upp koUinum í mesta sakleysi til að líta á umhverfið. Þar með voru dagar hans taldir, því Andrés stóðst ekki færið. Síðar skar Andrés kjammann af selnum og fékk fyrir hann vegleg verðlaun frá hinu opinbera. Svo fór hann í Hóla- brautina með leðurtösku, syndaselurinn sá. (Heimild: GróaáLeiti). Valgerður og íhaldið thaldið reyndi við Kvenna- framboðið þegar til meiri- blutamyndunar kom eftir kosningarnar í vor. En Kvennaframboðskonur hlupu útundan sér og mynduðu meirihluta með Framsókn og allaböllum. íhaldsmenn sátu því uppi án Valgerðar og Sig- fríðar. Þá kvað ráðhúsherr- ann: íhaldsflokkurinn úfin Rán allan sleit af kili. Vonbiðillinn verður án Valgerðar í bili. Kratar Eftirfarandi klausu rakst ég á í Mogganum: „Guð- mundur sagði aö samkvæmt reglum Alþýðuflokksins ætti að vera prófkjör um helmingl fleiri sæti én þingmannatala flokksins í kjördæminu væri. 1 Norðurlandskjördæmi eystra hefði Alþýðuflokkur- inn engan þingmann og þvi hefði aðelns verlð auglýst eft- ir framboðum í fyrsta sætið.” Að því slepptu, að þama á að standa „vestra” í stað „eystra”, þá gat ekki einu sinni Sigurður vinur minn ÓIi talið mér trú um, að tvisvar sinnum enginn þingmaður værisamaogeinn. Farínn í frí Jæja, ég held ég hætti þessu bulli. Akureyrska lesendur mína, sér í lagi Andrés vin minn, get ég glatt með því, að ég er farinn í tveggja mánaða frí. Gísli Sigurgeirsson. ÖKUKENNSLA Kenni akstur og meðferð bifreiða frá morgni og fram á kvöld. ARNIINGOLFSSON Akureyri - sími (961-24522. OMRON búðarkassar fyrir minni og stærri fyrirtæki fyrirliggjandi. Verö frá kr. 8.560,- % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 Simi 20560 UMBOÐ Á AKUREYRi: Kaupvagnsstræti 4 — Akureyri. Simar (961-22734 og 21713. MITSUBISHI TREDIH FJÖLSKYLDUBÍLL MORCUNDAGSINS til sölu á íslandi í dag Framleiddur samkvæmt ströngustu kröfum framtíðar- innar um einkabílinn með öryggi, sparneytni og þægindi f fyrirrúmi. LÝSING: 5 manna, 2ja og 4ra dyra, framhjóladrifinn meö þverstæöa, vatns- kælda, 4ra strokka bensínvél meö yfirllggjandi kambási, 1400 cm.!, 70 hö. eöa 1600 cm.!, 75 hö. SJálfstæð gormafjöörun á öllum hjól- um. Afihemlar meö dlskum að framan og skálum að aftan. Tannstangarstýrl, hjólbaröar: 165 SR -13, þvermál beygjuhrlngs: 9.8 m. Form yfirbygglngar byggt á níöurstöðum loftaflfræöilegra tll- rauna í vlndgöngum. Árangurinn: Loftvlönám, sem er aöelns 0.39 C.d (mælleinlng loft- vlönáms) og er þaö lægsta sem þekklst á sambærllegum blfrelðum. Þessl kostur hefur afgerandl áhrif á eldsneytisnytlngu og dregur mjög úr hávaöa, þegar billnn klýfur loftlð. Farþega og farangursrýml er mjög gott, sérstaklega höfuörýml og fótarými, bæöi fyrlr ökumann og farþega. INNIFALINN BUNAÐUR: Sparnaöargír (Supershlft) □ Utaö gler □ Upphltuö afturrúöa Rafdrlfnar rúður Barnaörygglslæslngar Stokkur á milli framsæta meö geymsluhólfi Ouartskiukka □ Veltlstýri Alfstýrl Útlspeglar stlllanlegir innan frá Snúningshraðamælir Halogen aöalljós Ljós í hanskahólfl og farangursgeymslu Farangursgeymsla og bensínlok opnuö Innan frá Aftursætisbak niðurfellanlegt (opiö inní farangursgeymslu) NÝJUNG! sparnaöargír (Supershift - 4x2) HELSTU KOSTIR: Sparnaöargír (mlnni bensíneyösla) Loftmótstaöa: 0.39 C.d. Framhjóladrif Sjálfstæö fjöörun á öllum hjólum Fáanlegur beinskiptur eöa sjálfskiptur Tvö nlöurfærsluhlutföll á aflrás Inn á gír- kassa, annað fyrlr akstur , sem krefst fullrar orku út í hjólin, hltt fyrir léttan akstur meö orkusparnaö sem markmiö. í reynd svarar þessl búnaöur til þess, sem á torfærubílum er almennt nefnt hátt og lágt drlf, og er þá lága drlflð notað vlö erfiöar aö- stæöur, svo sem í bratta, á slæmum vegum, í snjó, eöa í borgarakstri, þar sem krafist er skjótrar hraðaauknlngar. Háa drlflð er hlns vegar ætlaö fyrir akstur á góðum vegum og á venjulegum ferðahraða á langleiðum. SMHölduf Varahlutaverslun Fjölnisgötu 1B. Akureyrí Sími 96-21365 HF [hIhekia J Laugavegi 170 -172 Sír Sími 21240 PRISMA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.