Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Síða 33
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982.
til að bræða snjó af göngugötunni.
Enn er þó eftir að ná samkomulagi
milli bæjarfélagsins og húseigenda
við götuna. Skiptar skoðanir eru um,
hver á að greiða heita vatniö, sem
þarf til að bræða snjó af götunni.
Þegar þessu er lokið verður stráð
blómakerjum, trjám, bekkjum og
auglýsingakössum hér og þar um
götuna. Þar með er fædd lögleg
göngugata, en hvað felst í rauninni í
þessu orði?
• Takmörkuð
bflaumferð
leyfð
„Göngugata er rými milli húsa-
raða, þar sem fótgangandi umferð
hefur forgang,” svarar Finnur. „Það
er svo mismunandi, hve mikil bila-
umferð er leyfð, ef hún er þá á annaö
borð leyfð. I okkar tilviki er óhjá-
kvæmilegt að leyfa takmarkaða bíla-
umferð, þó ekki væri nema vegna
vöruflutninga til og frá verslunum.
Auk þess þurfa fatlaðir að komast
feröa sinna í bílum, t.d. til að sækja
þá læknaþjónustu, sem er í götunnL
Einnig er hugsanlegt, að um þetta
atriði gildi mismunandi reglur eftir
árstíma.”
— Áttu von á útimörkuðum og
ýmsum uppákomum í Hafnarstræti
eftir að göngugatan verður orðin að
veruleika?
„Ekki í Hafnarstræti held ég. Að
vísu er gert ráð fyrir því, að kaup-
menn fari með varning sinn út á
götu, þegar vel viörar, en sjálft
Ráöhústorgið er orðinn hefðbundinn
staður fýrir útimarkaði og aðrar
uppákomur. Mér er til dæmis
minnisstæð málverkasýning Ola G.
Jóhannssonar, listmálara, á Torginu
í sumar. Ég efast um, að slík
uppákoma eigi sér hliöstæöur
hérlendis,” sagðiFinnur.
• Nýjar
byggingar
Hér hefur verið getið um fram-
kvæmdir Akureyrarbæjar, sem
hafnar eru samkvæmt nýja skipu-
laginu á miðbænum. Það er önnur
hliðin, en hin hliðin er uppbygging
mannvirkja í miðbænum samkvæmt
skipulaginu. Til að það geti orðið
hefur Akureyrarbær þegar gengið í
að greiða fyrir samningum og
kaupum á eignum í miðbænum,
þannig að hægt verði að hefjast
handa við byggingar þar strax á
næsta sumri.
1 þessu sambandi má minna á
Hafnarstræti 103—105. Akureyrar-
bær á eignina Hafnarstræti 103, en
þar er meöal annarra verslana
skóverslun M. H. Lyngdals. Hafriar-
stræti 105 er hins vegar í einkaeign,
en á lóðinni stendur hús, sem er ekki
uppábúið til að láta sjá sig á al-
mannafæri, hvað þá í miöbæ.
Samningaviðræður standa yfir við
eigandann, en samkvæmt skipu-
laginu á að byggja eina byggingu á
þessum lóðum, sem að stærstum
hluta yrði á lóðinni 103. Hin lóðin jtöí
notuð til að opna betur gönguleið upp
í Skátagilið. Þama er því um
nokkurs konar hornlóð að ræða.
Þá er ljóst, að á næstunni verður
úthlutað lóöinni á horni Strandgötu
og Geislagötu, þar sem nú er miðstöð
strætisvagnanna. Líkindi eru til, að
KEA, Iðnaðarbankinn og Búnaðar-
bankinn fái þá lóð og ef til vill verður
Ríkissjóður með í myndinni. Þarna á
að rísa stór og mikil bygging, hvorki
meira né minna en 6000 fermetrar.
Auk Finns starfa Gísli Kristinsson,
arkitekt og Guðbjörg Sigurðardóttir,
ritari, hjá Skipulagsdeild Akureyrar.
Stærsta verkefni þeirra um þessar
mundir er Giljahverfi, nýtt hverfi
utan Glerár vestan Hlíðarbrautar.
Þar er gert ráð fyrir 600 íbúðum í
húsum af öllum gerðum, sem eiga að
rúma um 2.000 manns.
Að lokum, Finnur, um miöbæjar-
svæðið?
„Já, það hefur verið sagt, að mið-
bærinn okkar hafi verið á niðurleið á
undanförnum árum og áratugum.
Það getur hafa stafað af því, að ekki
hefur verið til nothæft skipulag til að
fara eftir. Nú strandar ekki lengur á
því. Bæjaryfirvöld hafa nú þegar
hafið framkvæmdir til að snúa
þessari þróun við. Vonandi verkar
það hvetjandi á einstaklinga og fyrir-
tæki, sem eiga eignir í miðbænum,
eða hafa hug á að taka þátt í upp-
byggingunni.”
-GS/Akureyri.
33
Ljósmyndavörur
• FILMUR
• MYNDAVÉLAR
• MYNDARAMMAR
• MYNDAALBÚM
• FILMUFRAMKÖLLUN
Á 4 — 5 DÖGUM.
◄
Skrifstofuval hf.
Sunnuhlíð — Akureyri
Sími 96-25004.
kynnir „Sensor44 bindinguna
Skíöabúnaöurinn sem „hugsar“ fyrir þig. Sjálfvirk stilling á
frampressu. Mjög hagstætt verö.
LOOK
LOOK
LOOK
LOOK
LOOK
LOOK
RS 99 II keppnisbinding Sensor kr. 1.930,-
HP 99 toppbinding Sensor kr. 1.658,-
v59 án snúningshæls Sensor kr. 1 I.258,-
39 ekki Sensor kr. 923,-
25 ekki Sensor kr. 670,-
17. barnabinding kr. 603,-
v___ r
utiuf
Glæsibæ, sími 82922.