Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Qupperneq 4
4 DV. MANUDAGUR 22. NOVEMBER1982. mmmmmmmmmmm^ 'mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmxmmmmmcv. -.xs’ í . . ■:///&>, mmmmmsmmmmmmmmmmmr ^mmmmmammmmmmmmfmmmmmmsmmmmsmmmmammmmimmmiammmmm^mKKmKSBmmm^ ■ - jýa Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins iræðustóli. DV-mynd: Einar Ólason. Svavar Gestsson sagði aö þetta neitunarvald væri fyrir hendi og Olafur Ragnar sagöi aö ekki hefði verið hafist handa við neinar meiri- háttar framkvæmdir á Vellinum og svo yröi ekki á meðan Alþýðubanda- lagið væri í ríkisstjóm. Sagði hann aö þaö væri vandamál i þessu sambandi aö viö byggjum nú við stjómskipun þar sem hver ráðherra væri í raun sjálfstætt stjórnvald. En þrátt fyrir deilur við utanrikis- ráðherra hefði ekkert komiö til fram- kvæmda af þeim atriðum. Svavar Gestsson sagði þó, að nauðsynlegt væri aö setja betri tryggingar í her- stöövarmálinu en nú hefði verið gert, því sýnt væri að Ameríkönum hefði tekist að koma ýmsum sínum málum fram án tillits til vilja ríkisstjómar- innar. Gagnrýni kom fram á meðlags- greiðslur Islendinga til Alversins og spurt hvort almenningur þyrfti líka að niðurgreiða rafmagnsreikning Kísilmálmverksmiðjunnar á Reyðarfirði. Hjörleifur Guttormsson taldi ekki slæmar horfur með rekstur Kísilmálmverksmiðjunnar en hins vegar væri sölutregöa á áli. Taldi hann það matsatriði hvort stöðva ætti framleiðslu álversins um tíma eða að fullu en sagði athuganir hafa sýnt að það væri ekki nauðsynlegt. Niðurstaðan hefði orðið að taka- marka framleiðsluna og væri verk- smiðjan rekin meö 70% afköstum i ár. Sagði hann að Alusuisse heföi óskað eftir þeim viðræðum við íslensk stjómvöld sem hefjast í dag. I þeirri beiðni hefði komið fram annar tónn en í þeim viðræðum sem fram fóra síðastliöinn vetur og vor, en að öðra leyti væri erindi Alusuisse Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins: „Við ætlum okkur ekkert að tapa í næstu kosningum” —sagði Svavar Gestsson og vísaði á fordæmi f ranska Sósíalistaf iokksins „Utanríkisráðherra Framsóknar- flokksins hefur gert þaö að meginverkefni sínu að koma áhuga- málum Bandaríkjahers í fram- kvæmd hér á landi,” sagöi Olafur Ragnar Grímsson á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins sem fram fór um helgina og lauk siðdegis í gær. Um 140 fulltrúar sátu fundinn. Fund- urinn var ekki opinn blaöamönnum og tillaga um að breyta því var felld meö 54 atkvæðum gegn 25, aðrírsátu hjá. Blaöamönnum var hins vegar boöið aö sitja hádegisverðarfund á laugardag en þar gafst fundar- mönnum kostur á að leggja spumingar fyrir forystumenn flokksins. Á þeim fundi kom fram hörð gagn- rýni á framkvæmdir Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli og í Helguvík og var að því spurt hvort Alþýðubandalagið hefði neitunar- vald í þessum efnum eða ekki. trúnaðarmál, sagöi Hjörleifur. Hjörleifur sagðist fagna því aö allir stjórnmálaflokkar væru nú sammála um aö þaö værí sanngirnis- krafa að orkuverð til Alusuisse yrði hækkað og það væri sér fagnaðarefni Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Þýðingarmikið prófkjör í Reykjavík Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna komandi þing- kosninga fer fram um næstu helgi, og hafa borgarbúar þegar orðið varir við töluverðan undirbúning vegna þeirra. Prófkjörum fylgir kosninga- barátta innan flokkanna, og geta deilur af þeim risnar orðið erfiðari ■ og hafa raunar leitt til umtalsverðs sundurlyndis. Það er því álitamál 'hvort prófkjör er heppilegasta aðferðin við að ákveða uppröðun á lista. Það er líka nokkuð breytilegt með hvaða hugarfari fólk tekur þátt í prófkjöri, hvort það berst einvörðungu fyrir eigin hag, eða hvort það hefur flokkshagsmuni í huga og vili jafnframt koma þeim á- fram, sem geta gert flokki sínum veralegt gagn með því að taka sæti framarlega á lista. Auðvitað tekur margt ágætt fólk þátt í prófkjöri eins og gengur, en gildi þess getur verið misjafnt þegar horft er í helld tíl landsmála. Má í því sambandi nefna, að sjónarsviptir var á sínum tima að Ragnhildi Helgadóttur, þegar hún hvarf af Alþingi. Nú tekur hún þátt í próf- kjöri Sjáifstæðisflokksins, og er óskandi, að kjósendur flokksins beri gæfu til að velta Ragnhildi verðugt fuiltingi í kjörínu. Það hefur verið lenska í íslenskri pólitík hin síðari ár að vilja ekki sterka einstaklinga, en leita í staðinn einhvers konar miðlunar, sem hefur leltt til þess að Alþingi nýtur ekki þeirrar virðingar sem skyldi. Ragnhildur Helgadóttir er sterkur og heiisteyptur ein- staklingur, sem Sjálfstæðisflokk- urinn þarf á að halda á erfiðleika- og umrótstímum. Sérstaklega er hennar þörf á sviði mennta- og menningarmála, sem flokkurinn hefur ekki haft nóg afskipti af að undanförnu með heldur bágum af- leiðingum. Niðurstaða prófkjörsins hvað varðar Albert Guðmundsson mun einnig vekja athygli. Akvarðanataka svonefnds Gunnars-arms í flokknum mun bíða þangað tU úrslit í prófkjöri hér og víðar liggja fyrir. Albert Guðmundsson hefur að undanförnu gert sitt tU að Sjálfstæðisflokkurinn kæmist heUI út úr þeim örðugleikum, sem veríð hafa á sambúðarmálum innan hans, og stofnað var tU af and- stæðingum flokksins. Hann hefur í raun aðhyUst þá stefnu, að flokkur-1 inn stæði ofar einstaklingum, og því bæri að stuðla að því eftir mætti að flokksmenn gætu gengið einhuga tU næstu kosninga. Þessa afstöðu hefur hann haft þótt ljóst sé, að töluvert af persónulegu fylgi Alberts hefur komíð frá svonefndum Gunnars- armi í fiokknum, eða þeim hópi manna, sem befur stutt Albert elnan og sér sem elnskonar „rebel”, sem gæti með gerðum sinum orðið Gunnarsarminum tU efllngar. Albert hefur látið þrýsting af þessu tagi lönd og leið, enda er honum meira í mun að efla Sjálfstæðisflokkinn en einstakar greinar innan hans. Ekki er ljóst hvort sjálfstæðismenn al> mennt skUja þessa afstöðu hans, en það kemur væntanlega í ljós í próf- kjörinu. Hægt er að ímynda sér hver viðbrögð Alberts Guðmundssonar yrðu, færi þannig að prófkjörið á- kvæði honum eitthvert hinna óæðrí sæta á Ustanum. Hinn svonefndi Gunnars-armur i flokknum bíður nú ótekta eftlr úrsUtum prófkjara. Fari þau ó þann veg, að sýnt þyki að hag- ur þess arms verði ekki nógu góður, mó aUt eins búast við framboði af þeirra háUu undir bókstöfunum DD eftir að tillaga um heimiid til þess hefur veríð samþykkt á Alþingi. Mundi þá endanlega kominn fram sá vísir að klofningi, sem andstæðingar flokksins hafa verið að vonast eftir. Aibert Guðmundsson liti eflaust svo ó að hann væri ekki hættur í pólitik, þótt hann kæmi Ula út úr próf- kjörinu. Hver sem ákvörðun hans yrði væri ekki hægt að ásaka hann. Það er í rauninni á valdi kjósenda í prófkjörinu að iýsa yfir að þeir taki flokkúm fram yfir einstaklinga meö sama hætti og Albert. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.