Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 35
DV. MANUDAGUR 22. NOVKMBER1982. Sandkorn Sandkorn Sandkorn Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir HÁRSNYRTiNG VILL.A ÞÓRS ÁRMÚLA 26 - REYKJAVÍK PANTIÐ TÍMA í SÍMA 34878 FAM Haukur og Ölafur Ármúla 32 - Sími 37700. RYKSUGUK Rangt verkfæri Stebbi litli var mættur í tima í tónlistarskólanum. Kennarinn biður hann að taka upp fiðluna. Stebbi opnar fiðlukassann sinn en dregur upp úr bonum vélbyssu. Fer siðan að skeili- hlæja: — Ah, ha, ha, aumingja pabbi. Nú stendur hann inni í banka með fiðluna... Einráður hafnarstjóri Hafnarstjórinn i Njarðvík virðist ekki vera að ómaka sig með því að hafa hafnar- stjórnina með i ráðum þegar um mannaráðningar er að ræða, þrátt fyrir að reglugerð segi að svo skuli vera. Blaðið Víkurfréttir í Kefla- vík segir frá þvi fyrir helgi að þegar hafnarstjórinn hafi kynnt hafnarstjórn hverjir sótt hefðu um starf vigtar- manns við landshöfnina hafi hann um leið tllkynnt að hann væri þegar búinn að ráða i starfið. Vikurfréttir segja að hafnarstjórn sé ekki sátt við málsmeðferð þessa. Seglr blaðið að hafnarstjórn sé ekki að mótmæla þelm aðila, sem starfið fékk, heldur vinnu- brögðum og þvermóðsku hafnarstjóra. “ Knattspyrnu- menn laöaóir að Forráðamenn Skagaliðsins i knattspyrnu hafa látið það spyrjast út að þeir hyggist fara með meistaraflokksiiðið til Fílabeinsstrandarinnar í febrúar eða mars á næsta ári. Þetta þykja ótviræð merki þess að nú vanti mannskap i Uðið. Fyrir þremur árum gerðist það nefnUega að farið var með Uðið í langferð tU Asíu. Sú ferð var rækUega kynnt áður með þeim árangri að í SkagaUöiö bættust þrír góðir leikmenn. Þykjast menn vita að með fyrirhug- aðri Afrikureisu eigi að laða að nýja leikmenn. Enginn þorði að mæla gegn Friðjóni Kjördæmisþing Sjálfstæðis- flokksins á Vesturlandi fór fram um fyrri helgi. Akvað þingið að opið prófkjör skyldi háð 15. og 16. janúar næst- komandi. Lítið hefur verið sagt frá kjördæmisþinginu i Morgun- blaðlnu enda fór ekki mtkiö fyrir stjórnarandstæðhigum á þvi. Enginn þorði að mæla gegn Friðjóni Þórðarsyni og ekki varð vart við neina and- stöðu gegn ríkisstjórninni. Friðjón var enda mættur með mikið og vel skipulagt Uð til 'þingsins. Þeir sjáUstæðismenn á Vesturlandl sem eru í stjórn- arandstöðu eru sagðir ugg- andi. Þeir óttast að á væntan- iegum framboðsUsta verði stuðningsmenn stjórnarlnnar í miklum meirihluta. Akumesingar áfengisútsölu Ýmsir á Akranesi eru farn- ir að verða óþolinmóðir á bið- inni eftir áfengisútsölu. Kosið var um útsölu síðastUðið vor og vUdi meirihlutinn fá eina slíka í bæinn. Forstjóri Afengisverslun- arinnar hefur gefið þá skýr- ingu á drættinum að ekki hafi tekist að útvega heppilegt húsnæði undir áfengisversl- un. Akurnesingar eru farnir að halda að svæfa eigi mái þetta. Þeim virðist að minnsta kosti sem fjármálaráðuneytið sem hefur máUö undir höndum telji margt þarfara að gera en að koma á fót áfengisútsöi- unni. Haltu áfram — Pabbi, pabbi! Hvað erað vera peningafalsari? — Þegiðu, strákur! Og haltu áfram að prenta! Umsjón: Kristján Már! Unnarsson. Þeir sem vilja veita mér aðstod og upplýsingar vegnaprófkosninganna eru beðnir um að hafa samband í síma 24340 eða 24079. Ellert B. Schram. Stjörnubíó, Nágrannarnir: DULARFULL FYNDNI Stjörnubíó, salur A; Nógrannar (Neighborsh Stjórn: John G. A vildsen. Handrit: eftir sögu Thomas Bergers. Kvikmyndahandrit: Larry Gelbart. Aöalhlutverk: John Belushi, Kathryn Walker, Cathy Moriarty, Dan Aykroyd, Lauren-Marie Taylor. TónUst Bill Conti. Framleiðandi: Richard D. Zanuck £r David Brown. Fátt er leiöinlegra en að horfa á gamanmyndir sem taka sig alvar- lega. Vellanverðursvomikil, kimnin svo aum og stígandin svo slök að leiðindin vaxa með hverjum filmu- bút sem ber fy rir augun. Sagt er í kynningu að kvikmyndin Nágrannamir sé stórkostlega fyndin og dularfuU. Raunar stendur á einum staö að hún sé „dásamlega fyndin og hrikaleg.” Fyrir hvað þessi orð standa er erfitt aö gera sér grein fyrir. Hitt er ljósara, fyndnin er mjög dularfull í þessari gaman- mynd og dulin á köflum. John Belushi er þekktur grinleik- ari og hefur gert marga góða hluti á hvíta tjaldinu. Sem húmoristi nær hann sér þó aldrei á strik í þessari mynd. Kvikmyndin er of mikil endemis vitleysa til þess að hægt sé að hafa gaman af leik hans. Það hlutverk sem honum er ætlað að túlka, það handrit sem honum er ætlað að fylgja og sú útfærsla á því sem notuð er stendur þar í vegi. Myndin segir frá Earl nokkrum Keese (Belushi) sem býr ásamt konu sinni í rólegu úthverfi. Þau hafa verið gift í sextán ár og eiga eina dóttur, Elaine. Kvöld eitt verða þau þess vör að fólk er að flytja inn í næsta hús við hliðina á þeirra. Fylgjast þau spennt með ferðum grannanna og eru forvit- in. Skyndilega hringir dyrabjallan. Fyrirutanstendur Ramóna, íturvax- in ung kona með glampa í augum. Nýr kafli í lífi Earl Keese er að hefjast ef marka má þær augna- gotur er hann sendir þessum granna sínum. Vic, maður Ramónu, birtist í húsi Earls. Enif, kona Keese, verður strax hrifin af honum. Framundan er örlagarik og ógleymanleg nótt sem breytir framtið Keese svo um munar, enda hefur hann lifað næsta fábreyttu lifi fram til þessa. Söguþráðurinn er ekki beysinn og erfitt að finna ástæðuna fyrir því að hann hafi yfirleitt verið kvikmyndað- ur. Það vantar mikið inn í hann svo að úr verði heilsteypt verk með réttri stígandi eins og góðar grínmyndir þurfa að eiga. Þessi tilbúningur líöur fyrir það, eins og svo margar aðrar kvikmynd- ir i likum stíl, að of mikiö er reynt á sama leikarann. Atburðarásinni er stefnt á einn og sama manninn og honum reynist skylt að halda uppi .húmomum og svip myndarinnar. Þrátt fyrir hæfileika er John Belushi hefur sýnt í fyrri myndum veldur hann ekki þessari ábyrgð sem honum er ætlað aö axla í Nágrönn- unum. Því fer sem fer. Kvikmyndin fellur um sjálfa sig, húmorinn nær aldrei aðkitla... -Sigmundur Emir Rúnarsson. Rakarastofan Klapparstíg Sími 12725 j Tímapantanir 13010 LADA þjónusta Almennar viðgerðir og stillingar. BÍLAVERKSTÆÐIÐ -= BÍLTAK =- Skemmuvegi 24 - Kópavogi Simi 7-32-50 RYÐVÖRN sf. SMIÐSHOFÐA 1. S 30945 BÍLARYÐVÖRN UNDIRÞVOTTUR MÓTORÞVOTTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.