Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 5
DV. MÁNUDAGUR 22. NOVEMBER1982. 5 að Morgunblaðið hefði gagnrýnt hann fyrir að b jóöa of lágt orkuverð í samningaviðræðum. Taldi hann að Islendingar ættu aö beyta neyðar- rétti og stiga einhliða skref ef fyrir- tækið yrði ekki við lögmætum kröfum. Forystumenn Alþýðubanda- lagsins voru spurðir álits á flugmála- stefnu Steingríms Hermannssonar, sem hefði gert sameiningu Flug- félagsins og Loftleiða að engu. 'Olafur Ragnar Grímsson svaraöi að það væri erfitt að fylgja Steingrími í þessum efnum þar sem hann hefði margar stefnur. Fyrst hefði hann viljað samkeppni flugfélaga á sömu leið en nokkrum mánuðum síðar hefði hann mælt með samkeppni, en ekki á samu leiðum. Steingrimur hefði ákveðið þetta einhliöa, sagði Olafur. 1 þeim drögum að stjómmálaá- lyktun sem Jágu fyrir fundinum segir að Alþýðubandalagið stefni að því að vera baráttutæki virkrar fjölda- hreyfingar og taki því starfsstíl sinn og starfsaðferðir óhikaö til gagngerrar endurskoðunar þegar á það er kallaö. Spurt var hvort þetta þýddi að flokkurinn væri að biðla til annarra samtaka um stuðning í kosningunum. Olafur Ragnar svaraði að verið væri að leita leiða til að Alþýöubandalagið gæti orðið sam- fylkingarvettvangur fyrir hina fjöl- skrúðugu fýlkingu sósialista. Þeir vildu gefa ýmsum hópum tækifæri til að ganga til samstarfs við Alþýðu- bandalagið. Því væri nauðsynlegt að gera ýmsar skipulagsbreytingar á flokknum til að hann gæti orðið vax- andi afl, jafnvel meirihlutaafl í þjóð- félaginu. Svavar Gestsson tók undir þetta. Hann sagði að íslenska flokkakerfið væri staðnaö og til að stokka þaö upp vildi Alþýðubandalagið fara franska leið að fordæmi franska Sósialista- flokksins. Honum hefði tekist á nokkrum árum að vinna sig upp úr því aö hafa 5 til 10% fylgi í að vera ráöandi afl í frönskum stjórnmálum. Vísaði hann þar til víðtækrar sam- fylkingar franskra sósíalista. „Við ætlum okkur ekkert að tapa í næstu kosningum,” sagöi Svavar í svari sínu. Svavar sleit siðan fundinum með því að tilkynna að næst á dagskránni væri skoðunarferð í flokks- miðstöðina, sem væri eins og menn vissu á milli lögreglustöövarinnar á Hverfisgötu og skermsins sepa tæki á móti sendingum frá sovéska sjón- varpsgervihnettinum og þangað yrði auðvitað farið í Ikarus-vögnum. En þegar til kom reyndust vagnarnir úr hinu víðkunna sænska gæðastáli frá Volvoverksmiðjunum. -ÓEF. Nýr tón- listar- skóli í Reykjavík Nýr tónlistarskóli í Reykjavík hefur nú hafið starfsemi sina. Hann nefnist Tónlistarskóli Ragnars Jónssonar og skólastjóri hans er Ragnar^ Jónsson tónmenntakennari. Skólinn er til húsa að Hraunbergi 23 í Breiðholti. Ragnar Jónsson sagöi í samtali viö DV að þessi nýi skóli væri sérstæður að því leyti að hann nyti ekki ríkisstyrks. Skólinn hefði reyndar verið starfrækt- ur sl. vetur en var þá aðeins í bráöa- birgðahúsnæöi. Nú er hins vegar búið að útvega varanlegt húsnæöi. Að sögn Ragnars er kennt á píanó, gítar, blokk- og þverflautu, orgel og ásláttarhljóðfæri. Nemendur eru á bil- inu 35—40. Auk Ragnars eru þrír kenn- arar viö þennan nýja tónlistarskóla. PA Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. nóv. 1982. Sjálfstæðismenn kjósum Bessí Jóhannsdóttur formann Hvatar á þing! Kosningaskrifstofa að Suðurlandsbraut 14,2. hæð. Sími 38636. Opið frá kl. 17.00—22.00 alla daga. Kjósandigóður! ^ jvertumedi STUÐNINGSMENN BESSÍAR JOHANNSDOTTUR |»U ni’1 t>»r Uíl>r s rtU*,lv S iii rí ci u c/ 11 /s inr/ri- iiiiiini er 27022 / # FULLKOMINHUTIM AVAKTÞJONUSTA: ÖRYGGISMIDSTÖD * t # ÖRYCGISMIÐSTÖÐIN tekur við boðum frá sjálfvirkum, tölvustýrðum tækjum um hvaðeina sem skiptir máli: t.d. innbrot, eld, rafmagnstruflanir og vélabilanir. Boð frá næturvörðum og heimaliggjandi sjúklingum sem barfnast aðstoðar berasteinnig til öryggismiðstöðvar- innar á fáum sekúndum. #■ ÖRY GGISMIÐSTÖÐIN bregst strax við: gerir lögreglu eða slökkviliði aðvart, kallar út viðgerðarmenn eða sendir sérstaka ön/ggisverði á staðinn til aðstoöar - allt eftir þörfum hverju sinni. ♦ ÖRYGGISMÐSTÖÐIN þjónar stofnunum, fyrirtækjurr: og einstaklingum um land allt. Ekkert verkefni er of stórt eða of Irtið. Boðin berast um símakerfið, þannig að ekki er þörf á sérleigðum línum. # ÖRYGGISMIÐSTÖÐIN þyggir á meira en áratugs reynslu VARA í öryggismálum og rafeindatækni ásamt ráðgjöf erlendra sérfræðinga. Lágur tilkostnaður gerir það jafnframt að verkum að tenging við miðstöðina er sjálfsagður valkostur i öryggismálum stofnana og fVrirtækja. * ÖRYGGISMÐSTÖÐIN er opin allan sólahringinn, allt árið og veitir því raunhæfa vöm. Hafðu samband i síma 91-29399, við erum alltaf á vakt — alltaf. w//11 VARI .ORYGGI YÐAR ER SERGREIN OKKAR' -HIN EINA A ISLANDI -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.