Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Blaðsíða 37
Sviðsljósið Sviðsljósið DV. MANUDAGUR 22. NOVEMBER1982. Hljómsveitín Air: Henry Threadgill, Frek Hopkins og Thurman Baker. AIR FÓR Á KOSTUM í GAMLA BÍÓI I Gamla bíói, óperuhúsi Reykvík-. inga, ómaöi annars konar tónlist en venja er síðastliöið þriðjudagskvöld. Þá lék ameríska tríóið Air kraftmikinn jass við góðar undirtektir áhorfenda. Hljómsveitina skipa þeir Henry Threadgill, sem blæs í ýmiss konar saxófóna og flautur, Frek Hopkins, sem plokkar bassa, og Thurman Baker, sem barði húðir i forföllum Steve McCall sem alla jafnan sér um trommuleik í sveitinni. Air byrjaði nokkuð rólega en sótti í sig veðrið er á leið og áður en yfir lauk var mikil stemmning í salnum og var hljómsveitin kölluð fram með áköfu lófataki í lok tónleikanna. Þrátt fyrir mikinn veðurham sóttu 260 manns tón- leikana. Hljómsveitin Air nýtur mik- illar viröingar meðal jass-geggjara og má sem dæmi taka að siöasta plata hennar, sem út kom árið 1980, var valin plata ársins í hinu virta jass- tímariti Down Beat. Auk þess hafa hljóðfæraleikaramir komist á topp-tíu í árlegum kosningum gagnrýnenda sama blaðs um bestu hljóðfæraleikar- ana síðustu ár. A tónleikum Air í Gamla bíói vakti frammistaöa trommuleikarans, Thurman Bakers, sérstaklega mikla athygli, enda fór hann á kostum. Til gamans má geta að i síðustu kosningum Down Beat um hljómsveit ársins höfðu listamenn í 4 af 6 efstu sveitunum heimsótt Island á því ári. I fyrsta sæti í þeim kosningum var Art Ensemble of Chicago, í öðru sæti var Art Blakey, í þriðja sæti Old and New Dreams (kjarninn í þeirri sveit er jaöi- framt í Charlie Haden’s Liberation Music Orchestra) og í sjötta sæti var Air. ás. Guinnes sagður frábær —í nýjum sjónvarpsþáttum eftir söguleCarré Þættirnir „Tinker, Taylor, Soldier, Spy” nutu mikilla vinsælda er þeir voru sýndir hér á landi fyrir nokkru. „Tinker..” þættimir eru sem kunnugt er byggðir á sögu meistara njósna- sagnanna, John Le Carré. Nú hefur BBC gert nýja þætti eftir annarri sögu John Le Carré sem heitir „Smiley’s people”. John Le Carré og John Hopkins sömdu þættina upp úr sam- nefndri sögu þess fyrmefnda en margar persónur, sem koma fyrir í „Tinker...”, em einnig í „Smiley’s people”. Alec Guinnes leikur Smiley sjálfan og fleiri leikarar skjóta upp kollinum í sínum gömlu hlutverkum úr „Tinker...”. Leikstjóri þáttanna er Simon Langton og framleiðandi Jonathan Powell. Þættimir hafa fengið góðar viötökur, t.d. segir sjónvarps- gagnrýnandi The New York Times að þetta sé þaö besta sem boðið sé upp á i sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna um þessar mundir. Sér í lagi fær Alec Guinnes frábæra dóma fyrir túlkun sínaáSmiley. m » Alec Guinnes þykir afspymu góður i Smiley's people rótt eins og i „Tinker . . ", 45 J. HINRIKSSON H/F vélaverslun Súðarvogi 4.105 R. S. 84677. mmiKBMi MIG/MAG RAFSUÐUVÉLAR 160—600 amp. Vandaðar iðnaðarvélar IMBUKDHI TRANSARAR OG J AFNSTRAUMSVÉL AR. 170-650 amp. IMBIIKBHI TIG-BOX Með eða án púls inEBUKDHI RAFSUÐUVÍRAR í pinnum og rúllum. IPEBUKOHI RAFSUÐUREYKEYÐARI Mjög meðfærilegir fyrir alla rafsuðuvinnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.