Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. 3 Formaður bankaráðs, Albert Guðmundsson, býður forseta íslands valkominn. Jónas Rafnar bankastjóri tiihægri. DV-myndir: GVA. Vigdís forseti heim- sækir Útvegsbankann Starfsmenn Utvegsbanka Islands viö Lækjartorg fengu góöan gest í heimsókn í gærmorgun, nefnilega engan annan en forseta Islands. For- ráöamenn bankans höfðu boöiö for- setanum, Vigdísi Finnbogadóttur, að ky nnast sta rfseminni. Það var ekki langt fyrir forsetann aö fara, aöeins Lækjartorgiö og Lækjargatan skilja að Stjómarráðið, þar sem forsetaskrifstofan er, og Utvegsbankann. Formaöur banka- ráös, Albert Guðmundsson, bauðfor- setann velkominn í anddyri bankans um klukkan hálfellefu. Einnig tóku á móti forsetanum bankastjórarnir Jónas Rafnar, Ármann Jakobsson og Olafur Helgason og formaður starfs- mannafélagsins, Jóhannes Magnús- son. Vigdís forseti gekk um deildir bankans, heiisaöi hverjum starfs- manni og ræddi viö þá. Deildar- stjórar kynntu henni starfsemina. Vigdís forseti er reyndar ekki alveg ókunn bönkum. Svo skemmti- lega vill til aö á menntaskólaárum sínum vann Vigdis einmitt í Útvegs- bankanum viö sumarafleysingar. Hitti hún nokkra af fyrri samstarfs- félögum í bankanum í gær. Þegar deildir bankans höföu verið skoðaöar, þáöi forseti Isiands há- degisverðíboðibankans. -KMU. Vigdis forseti fór um allar deiidir og heiisaði starfsmönnum. Hár heiis- ar forsetinn Sigriði Theodórsdóttur i vixladeild. Vesturland: Sex taka þátt í slagnum — í próf kjöri Sjálfstæðisf lokksins Framboðsfrestur til prófkjörs Sjálf- stæðismanna vegna komandi alþingis- kosninga í Vesturlandskjördæmi rann út á þriðjudagskvöld. Sex hafa þegar boöiö sig fram en að sögn Guöjóns Guö- mundssonar, formanns prófkjörs- nefndar, er hugsanlegt að einhver framboö séu í pósti og hafi ekki borist á réttum tíma vegna samgönguerfið- leika. Þausem boðiö hafa sig fram eru eftirtalin: Friðjón Þóröarson, dóms- málaráöherra Stykkishólmi, Inga Jóna Þóröardóttir, Akranesi, Kristjana Ágústsdóttir, Búöardal, Sturla Böövarsson, Stykkishólmi, Kristófer Þorleifsson, Olafsvík og Valdemar Indriöason, Akranesi. Jósef H. Þorgeirsson, annar þing- manna Sjálfstæðisflokks í kjör- dæminu, hefur ákveöið að gefa ekki kost á sér. Oðinn Sigþórsson bóndi sem skipaði 4. sæti á lista flokksins í síðustu kosningum hefur heldur ekki skilað inn framboði. Prófkjörið sem er öllum opið mun fara fram dagana 15,—16.janúar. ás. Flauelsbuxur stráka, kr: 474,- Vestikr: 298,- Leöur- og rúskinnsslifsi, kr: 148,- Hnébuxur m/belti, kr: 465,- Blússur frá kr: 283,- VERSLUNIN WMM Sendum í póstkröfu. Strandgötu 34, Sími 52070. ii að notaðir VOLVO bílar > séu betri en nýir bflar af ódýrari gerðum R VOLVO 244 GL '81 EKINN 40.000 GRÆNN, SJALFSK. VERÐKR. 218.000. VOLVO 244 GL '81 EKINN 31.000 BLAR, SJALFSK. VERÐKR. 220.000. VOLVO 245 GL '80 EKINN 60.000 ;BLAR, BEINSK., LÆST DRIF. VERÐ 200.000. VOLVO 244 GL '80 EKINN 31.000 GRÆNN, SJALFSK. VERÐKR. 185.000. VOLVO 245 GL '80 EKINN 48.000 RAUÐUR, BEINSK. VERÐKR. 190.000. VOLVO 244 GL '79 EKINN 57.000 RAUÐUR, BEINSK. VERÐ KR. 155.000. VOLVO 245 DL '78 EKINN 55.000 GRÆNN, BEINSK. VERÐKR. 138.000. VOLVO 244 DL '78 EKINN 72.000 RAUÐUR, BEINSK. VERÐKR. 130.000. ib Opið laugardaga frá kl. 13—16 VELTIR SUÐURLANDSBRAUT16 Sólarhrings tónleikar í Langholtskirkju frá kl. 19.00 föstudaginn 3, des. til kl. 19.00 á laugardeginum 4. des. Þar verða flutt um 70 mismunandi tónlistaratriði og flytjendur eru yfir 250, allt fremsta listafólk þjóðarinnar. Aðgangur er ókeypis. v KÓR LANGHOLTSKIRKJU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.