Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Page 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Fyrstu verðlaurt ijólagetrauninni verða eitt Samsung ferðakassettutæki frá Sjónvarpsbúðinni, Lágmúla 7. Sauðkindin sigraði í prófkjörínu Lesendur DV eiga þess kost aö fá glæsilegar jólagjafir í ár, taki þeir þátt í jólagetraun blaösins, sem mun hefjast í blaðinu á morgun, laugar- dag. Ekki fá allir jólagjafir að vísu en fimmtán þó og glæsilegar allar saman. Fyrsti vinningur er Samsung ferðakassettutæki, frá Sjónvarps- búðinni, Lágmúla 7 en þetta tæki kostar „aðeins” 6950 krónur út úr búð. Vinningar tvö og þrjú eru Bina- tone sjónvarpsspil, með kassettu, frá versluninni Radíóbæ, Ármúla 38, en Fjórðu til fimmtándu verðlaun verða svo hljómplata að eigin vali frá Skifunni, Laugavegi 33. þessi tæki fást þar yfir afgreiðslu- borðið fyrir „litlar” 2140 krónur stykkið. Svo eiga tólf aörir þátt- takendur í getrauninni kost á því að fá hver um sig eina hljómplötu að eigin vali fyrir 299 krónur hver en plötumar geta hinir heppnu valið sér í hljómplötuversluninni Skífunni, Laugavegi33. Gott og vel, segja glaðir lesendur en hvað skal þá til vinna? Jú, mikið sked til mikils vinna og lesendur sem óska sér þessara höföinglegu jóla- gjafa verða að leysa nokkrar þrautir áður en hinir heppnu verða útvaldir. Þannig er að jólasveinn nokkur leggur á morgun upp í heimsreisu, ekki aðeins til að útdeila jólagjöfum (enda ekki upprunninn hinn hefð- bundni ferðatími jólasveina) heldur einnig til að komast að því hver er heimsins mesti þjóðhöfðingi. Sem sagt, hver þjóðarleiötoga heimsins á helst skiliö sæmdarheitið „lands- faðir”. Eða „landsmóöir”, því við lif- um nú á jafnréttisöld og systkinalag- ið allsráðandi. Ekki er það ætlunin að biðja lesendur aö skera úr um þaö, hver þjóðhöföingja heimsins á titilinn aö réttu skilinn, en hins vegar spyrjum við í hvaða löndum jólasveinninn kemur við á ferð sinni en það á að vera auðsætt af myndunum hverju sinni hvert leiðin hefur legið. Þessar myndagátur munu nú birtast á hverjum degi fram til 16. des. og þann 17. des. mun síðan birtast í blaðinu eyöublað þar sem þátttakendur skulu færa inn nöfn sín og heimilisfang og senda, ásamt lausnunum öllum, á ritstjómarskrif- stofur DV, Síðumúla 12—14 og skulu lausnir ekki berast seinna en 23. des. Takið eftir að ekki skal senda lausnir jafnóðum, heldur klippa þrautina út úr blaðinu, skrá lausnina, og halda úrklippunni síðan til haga, þar til allar þrautirnar hafa birst. Þá eiga þátttakendur aö senda lausnir sínar inn, ásamt útfylltu eyðublaði sem birtist í lok þrautarinnar, þann 17.des. Or réttum lausnum verður svo dregiö 28 .des. og reynt að koma vinn- ingum til hinna heppnu fyrir áramót. Á morgun birtist sem sagt fyrsta spumingin og hvar haldiö þiö svo aö gólasveinninn komi fyrst við? Það veröið þið að finna út sjálf. Það er verið áð reyna að hægja á margvíslegum skrúfum í efnahags- lífinu um þessi mánaðamót en land- búnaðarvörur fá að hækka óátalið um allt að tuttugu prósent. Á sama tíma vinnur landbúnaðarráðherra umtalsverðan sigur í prófkjöri í kjör- dæmi sinu fyrir norðan. Hann boðaöi í þingræðu fyrir skömmu að nú skyldi selja kindakjöt til Hollands fyrir verð sem nemur rúmlega sláturkostnaði. Allt kemur þetta heim og saman. Norðurland vestra býr ekki að fjölþættum atvinnuveg- um. Sauðkindin er þar enn helsta framleiðsla og viðurværi kjördæmis- ins. Það er því eðlilegt að hún eigi sín atkvæði í prófkjörum. Á sama tima og vegur hennar vex í verðlagningu sem annarri hind, eins og útflutningi á slátrunarverði, hljóta helstu for- ustumenn hennar mikla umbun fyrir það góða atgervi að afla henni jóturs í peningaseðlum. Á það hefur verið bent hér í DV að allt sé í lagi að skammast út í sjávarútveg, hvenær sem honum er liðs vant, því hann eigi að bera sig. Aftur á móti þoli sauðkindin ekki nokkurn minnsta gjóst, þá séu um- ræður um leið farnar að snúast um föðurlandið og aðrar hugsjónir sem ekki verða metnar til f jár. Sauðkind- in verður að hafa sinn fjárstuðning og sínar föstu og afdráttarlausu afurðahækkanir. Vegna kjördæma- skipunar þorir enginn þingmaður að andmæla þeim gífurlegu f jármunum sem hún tekur til sín eða leggja til að hún verði felld inn í önnur stjórnunarumsvif þjóðfélagsins, og taki t.d. verðlækkunum eins og annað. Vegna þessa kjarkleysis vinnast nú stórir sigrar í prófkjörum þar sem sauðkindin ræður húsum og selst til útlanda fyrir það sem svarar sláturkostnaði. Það fer saman að Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra vinnur stóran sigur í prófkjöri í Norðurlandi vestra og landbúnaðarvörur hækka um 20%. Af einskærri skyldurækni hefur ætíð verið bagað svo tU við stjómar- myndanir að landbúnaðarráðherrar hafa þeir einir orðið sem annað tveggja voru framsóknarmenn og því skyldugir tU að þjóna af rétt- trúnaði undir sauðkindina eða sveitavargar í Sjálfstæöisflokknum. ÚUum þessum landbúnaðarráðherr- um hefur verið það sameiginlegt að sækja fé í sameiginlega sjóði lands- manna handa sauðkindinni. Aldrei hefur neinum dottið í hug að gera einhvem Reykvíking að landbúnaðarráöherra eða einhvera þann annan sem annað tveggja á ekki tvö hundmð roUur eða hefur átt þær. Þetta væri svona ámóta eins og aldrei mætti gera neinn að sjávarút- vegsráðherra nema hann ætti togara eða frystihús eða værl teklnn frá stjóra LÍU. Þetta hefur nú ekid verið gert. Þeir Matthias Bjaraason og Steingrímur Hermannsson hafa verið sfðustu sjávarútvegsráðherrar og enginn telur að þeir hafi staðiö í útgerð, nema hvað Matthfas rak flóabát um sinn. Þetta þýðir auðvitað ekki að Matthías og Steingrímur hafi verið slæmir sjávarútvegsráðherrar, síöur en svo. En við neytendur höfum ekki lengur ábuga á því gegndarlausa onaní, sem á sér stað í landbúnaðar- málum. Hin heUaga hjörð hefur þegar kostað aUtof mikið, heldur þjóðfélaginu á því stigi járabænda áfram, sem það gerði tilraun til að brjótast út úr í byrjun þessarar aldar og eflir ófrið og misrétti sem er óþol- andi. í raun réttri ber að leggja landbúnaðarráðherraembættið niður og setja á stofn atvinnumálaráðu- neyti þar sem fulltrúi fyrir iðnað, sjávarútveg og landbúnað sæti. Þá minnkaði kannski pappfrsflóð, þorskaleit og jarmur. Eyjólfur Konráð Jónsson nýtur sýnilega ekki sambærUegrar hylli og landbúnaðarráðherra. Hann hefur líka reynt að halda uppi skynsam- legri stefnu í landbúnaði, eitt af því sem ekki má í Norðurlandi vestra. Hann hefur barist gegn sláturkostn- aði með eftirminnUegum hætti og annarri óáran í afurðamálum. Verk hafa skipast þannig að Pálmi sigUr hraðbyri á sauðkindinni en Eyjólfur skaut hrútinn. Svarthöfði Önnur og þriðju verðlaun i getrauninni verða svo Binatone sjónvarps- leiktæki frá Radióbæ, Ármúia 38. JólaleikurDV: Jólasveinninn leit- ar að landsföður —(eða móður)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.