Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982.
5
\
Formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja:
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ
HEFUR LÉLEGA YFIRSÝN
HUSGOGN
Dugguvogi 2 sími 34190 Reykjavík
Stjórn sparísjóósins Pundsins ásamt sparísjóðsstjóra, taiiö frá vinstri:
Eiður Árnason, Þuríður Vigfúsdóttir, Sveinn H. Skú/ason og Garðar
Jóhannsson.
Sparisjóðurinn Pundið
f lytur í nýtt húsnæði
Sparisjóðurinn Pundið í Reykjavík
flutti nýverið í eigið húsnæði að Hátúni
2. Áður var sjóðurinn í leiguhúsnæöi í
Nóatúni 17.
Hið nýja hús er samtais um 700 ferm
og var teiknað af teiknistofunni Arko.
Sparisjóðurinn mun aðeins taka hluta
hússins til eigin nota um sinn en hinn
hlutinn verður leigður út.
I samþykktum fýrir sjóðinn segir að
ábyrgðarmenn geti þeir einir oröið
sem séu meðlimir í Fíladelfíu-
söfnuðinum í Reykjavík eða öðrum
hliðstæðum söfnuðum hvitasunnu-
manna utan Reykjavíkur. Aðalhvata-
maður að stofnun hans árið 1958 var
þáverandi formaður Fíladelfíu-
safnaðarins, Ásmundur Eiríksson.
Núverandi stjóm sparisjóðsins
skipa Eiöur Ámason formaður,
Þuríður Vigfúsdóttir og Sveinn H.
Skúlason. Fastir starfsmenn eru f jórir,
auk sparisjóösstjóra, Garðars
Jóhannssonar.
Jafnréttisráð skipað
Jafnréttisráö hefur nú veriö skipaö,
skv. lögum, til næstu þriggja ára.
Ráðið skipa nú, Guðríöur Þorsteins-
dóttir lögfræðingur, skipuð af Hæsta-
rétti, formaður. Vilborg Harðardóttir
útgáfustjóri, skipuð af félagsmála-
ráðherra. Lilja Ölafsdóttir, deildar-
stjóri, skipuð af BSRB. Ragna Berg-
mann, form. Verkakvennafélagsins
Framsóknar, skipuð af ASI og Einar
Árnason héraðsdómslögmaður,
skipaðurafVSI.
Varamenn era Guðjón Steingríms-
son hæstaréttarlögmaður, Stella
Stefánsdóttir verkakona, Ágúst Guð-
mundsson landmælingamaöur,
Jóhannes Siggeirsson hagfræðingur og
Kristján Þorbergsson lögfræðingur.
á Kef lavíkurf lugvelli gerist ýmislegt sem er h.reint lögbrot
„Þeim útlendingum sem vinna viö
þjónustustörf á Keflavíkurflugvelii án
þess að hafa atvinnuleyfi fer stöðugt
fjölgandi. Þeim hefur f jölgaö mikið frá
því að við lögðum fram kæru okkar. Eg
gæti trúað að þetta væru yfir 350
manns,” sagði Magnús Gíslason for-
maður Verslunarmannafélags Suöur-
nesja í samtali við DV. Eins og greint
var frá í DV í fyrradag hefur félagiö
óskað eftir rannsókn á því hve margir
erlendir rikisborgarar ynnu við
þjónustustörf hjá bandaríska hernum
ánatvinnuleyfis.
„Yfirsýn utanríkisráðuneytisins
yfir það sem gerist á Keflavíkurflug-
velli er svo léleg að þar getur ýmislegt
gerst sem er hreint lögbrot,” sagði
Magnús ennfremur. Hann sagði að
utanríkisráðuneytið og varnarmála-
deild hefðu aldrei viljað gefa skýr svör
við þeirri spurningu hvort erlendir
þegnar í borgaralegum störfum hjá
bandaríska hernum þyrftu atvinnu-
leyfi. Hins vegar væri Utlendingaeftir-
litið þeirra skoöunar að umrætt fólk
þyrfti atvinnuleyfi til að sinna hér
störfum.
I bréfi sem Páll Pálsson lögmaður
Verslunarmannafélags Suðurnesja
hefur sent ríkissaksóknara , þar sem
óskaö er opinberrar rannsóknar á máli
þessu, er varpað fram þeirri spumingu
hvort sömu lög gildi hvar sem er á
landinu, Hvort svo sé þurfi þjóðin að fá
að vita. Bréf þetta var sent til varnar-
máladeildar utanrikisráðuneytisins til
álits og umsagnar en svar hefur ekki
borist til ríkissaksóknara enn. Helgi
Ágústsson deildarstjóri vamarmála-
deildar sagði að verið væri aö vinna að
atbugun máisins. ÓEF