Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Empainmálið fyr- ir dómstólana Empain-málið kom fyrir dómstóla í Frakklandi í gær þar sem sex menn og tvær konur hafa verið ákærð fyrir að ræna iöjuhöldinum og milljóna- mæringnum Edouard Jean Empain barón 1978. Hann var 63 daga á valdi ræningjanna. Baróninn var hafður í hlekkjum og marghótað dauða af ræningjunum, sem hjuggu einn köggul af fingri honum og sendu lögreglunni til að sýna að þeim væri fullkomin alvara. Honum var sleppt úr prísundinni án þess að lausnargjaldið væri nokkum tímagreitt. Ræningjamirhöfðukrafist 8,5 milljóna dollara í lausnargjald. Engu hinna ákæröu er gefið beinlínis að sök að hafa rænt baróninum en ýmist aö eiga hlutdeild í verknaðinum meö vitorði sínu eða að hafa haldiö honum föngnum. Empain-málið vakti meiri athygli í Frakklandi en nokkurt annað glæpa- mál síðan Ben Barka var rænt í París 1965. Barón Empain veitti forstöðu Empain-Schneider hringnum, sem hagsmuni átti í kjarnorku, stáliðju, verkfræði og fésýslu. Tók hann við því aöeins 30 ára að aldri. Meöan hann var fangi ræningjanna birtu dagblöðin ýmsar frásagnir úr einkalífi hans, þar sem hann var orðaður viö fjárhættu- spil og kvennafar. Síðar sagði hann sjálfur að allt umtalið og sú eldraun sem ránið var hefði eyðilagt líf hans. Eins hefði yfirheyrsla lögreglunnar, þegar hann loks kom fram, verið hon- um um megn því að um tíma lá grunur á því að mánnránið hefði verið sett á svið. Hann missti alla trú á mönnunum og vék úr forstjórastóli fyrirtækisms til bráðabirgða og flutti til Bandaríkj- anna, þar sem hann kom sér fyrir í afdölum. Skildi hann viö konu sína. Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna hefur fallist á að fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgeröum með því að de 'Cuellar framkvæmdastjóri hefur geng- ist inn á nokkrar kröfur þess. Aðrar kröfur heyra undir framkvæmdaráöið og fjárveitinganefndina og bíða ákvarðana þeirra. Edouard-Jean Empain barón: Mannránið var honum meiri eld- raun en hann fékk risið undir. Eftir nokkra mánuði tók hann aftur við fyrirtæki sínu en seldi það í heilu lagi frönskum banka 1981. Einn hinna ákærðu var handtekmn meðan Empain var enn á valdi ræningjanna og ekki fyrr en eftir skot- bardaga við lögregluna þar sem félagi hans féll. — Kviðdómurinn sem í mál- inu situr er skipaður 9 manns og ein kvennanna er dóttir De Gaulle hers- höfðingja. Framkvæmdastjóranum hefur veriö legið á hálsi fyrir vanefndir loforða um úrbætur í jafnréttismálum og mis- munun við mannaráöningar, en mest er óánægjan vegna þess aö ekki hafa náðst úr haldi 21 erindreki sameinuðu þjóöanna sem eru pólitískir fangar einræðisstjórna. Gervihjarta á síðustu stundu 61 árs gamall tannlæknir á nú lif sitt undir gervihjarta, sem læknar í Salt- vatnsborg í Utah græddu í hann í gær. Þar er fyrsta hjartaö úr gerviefnum sem sett er í mann og ætlað til varan- legrar lækningar. Tvívegis áöur hafa gervihjörtu verið sett í sjúklmga sem biðu eftir hjartagjafa. Nýja hjartað, sem Barney Clark tannlæknir fékk í gær, er pumpa úr plyurethane og áli. En sá galli er á að það er drifið áfram af útbúnaði sem tengdur er við Clark meö 1,8 metra löngum slöngum, en það hindrar að hann geti lifað eölilegu lifi, ef hann á annað borð hefur næstu tvo eða þrjá daga af, sem læknum þykir tvísýnast. Clark var í 7 1/2 klukkustund á skurðarboröinu og sögðu læknamir að aðgeröin hefði tekist vel. Þó haföi sjúklingurinn nær gefið upp öndina þegar hann var losaður úr tengslum við hjarta- og lungnavél til þess að ganga úr skugga um hvort gervi- hjartað starfaöi rétt. Hann hafði verið fluttur á skurðar- borðið 9 stimdum fyrr en ráðgert hafði verið, því að líðan hans hafði hrakað og gamla hjartað hafði hætt að slá í nokkur andartök. Enda hÖfðu læknar sagt að því aðeins yrði gripið til þessa ráðs að Clark væri annars ekki hugað líf, svo illa sem gamla hjartað væri farið. Gervihjartað gengur fyrir loftdælu sem er á hjólum og á stærö við ferða- sjónvarp. Tvær slöngur tengja það við Ioftdælima. Umsjón: Guðmundur Pétursson FUNDU FJARSJOD í HLÖDUNNI Þórir Guðmundsson, fréttaritari í Kmhöfn: Tvö tíu og ellefu ára gömul systkini fundu nýlega allt að milljón danskra króna í hlöðunni heima hjá sér. Þau voru að leik þegar þau ráku augun í gamlan verkfærakassa á plötu milli tveggja hanabjálka uppi undir hlöðuloftinu. 1 kassanum voru peningar að upphæð milli einnar og tveggja milljóna króna íslenskra í dönskum seðlum. Ef eigandinn gefur sig ekki fram eiga bömin rétt á þriðjungi upphæðarinnar, eða annars 10% fundarlaunum. Afgangurinn fer í ríkissjóð. Systkinin búa í Hörsholm á Norður-Sjálandi og það tók lögregl- una þar heilan dag að telja pening- ana. Lögreglustjóri bæjarins varar við að það þýði ekkert að brjótast inn hjá sér til að ná í séðlana. Þeir séu vel geymdir í banka. HÆTTA VK> VERK- FALLIÐ HJÁ SÞ The Mad Bomber PANTIO STRA.9S BBTA, ©G VHS World Famous Fairy Tales 1. Last Train to Berlin Striðsmynd, 86 min. 2. Stuntsthe Deadly Game Hasarmynd, 89 mín. 3. Bloodlust Hryllingsmynd, 86 min. 4. Cannibal Hryllingsmynd, 88 min. 5. 40 Million Bucks Glæpamynd, 82 min. 6. Hell is Empty Glæpamynd, 105 min. 7. Northeast of Seoul Glæpamynd, 100 min. 8. Psychopath Glæpamynd, 93 min. 9. Rock, Rock, Rock Söngvamynd, 84 min. 10. Devils of Darkness Hryllingsmynd, 90min. 11. Freelance Glæpamynd, 95 min. 12. Journeytothe Centre of Time Ævintýramynd, 82 min. 13. The Mad Bomber Glæpamynd, 100 min. 14. The Thirsty Dead Hryllingsmynd, 82 min. 15. Let Me Die a Woman 72 min. 16. Dogs Hryllingsmynd, 91 min. 17. The Witchmaker Hryllingsmynd, 100 min. 18. The Comeback Hasarmynd, 100 min. 19. The Pilot Hasarmynd, 91 min. 20. Licensed to Kill Glæpamynd, 96min. 31. Leopard in the Snow Ástarsaga, 94 min. 22. The Redeemer Glæpamynd, 83min. 23. The Fiend Glæpamynd, 87min. 24. Night of the Big Heat Hryllingsmynd, 90min. 25. TheConArtist Giæpamynd, 89mín. 26. Tales of Magic Teiknimynd, 56min. 27. World Famous Fairy Tales Teiknimynd, 56 min. SIMI 92:3822 28. GroundZero Glæpamynd, 87min. 29. Find a Place to Die Kúrekamynd, 96 min. 30. Cartoon Wonderland Teiknimynd, 56 min. 31. Bombat 10:10 Striðsmynd, 87min. 32. Haunts Glæpamynd, 85min. 33. Drummer of Vengeance Kúrekamynd, 73 min. 34. Island of Terror Hryllingsmynd, 89 min. 35. The House of the Seven Corpses Hryllingsmynd, 89 min. 36. The One-Eyed Soldiers Glæpamynd, 89 min. 37. Vengeance of the Barbarians Hasarmynd, 89 min. 38. Carvan to Vaccares Glæpamynd, 98 min. The Con Artist TBIRNIMVNÐIR RR.1.750.- Óskum einnig eftir umboðsmönnum um aiit land. . MYNDB0ND A RVNNINGA.RVBRÐI AOBINS K?R. 1.99Q.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.