Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 11
DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. 11 Útlönd Útlönd Johnson með Roosevelt 1937. löggjafarsamkomuna. Þegar Caro rannsakaði nær tólf ára langan þing- feril Johnsons komst hann að raun um að Johnson hafði einungis komið fimm frumvörpum til lögleiðingar varðandi landsmálapólitík. „Eg hélt ég hefði gert mistök og margspurði sjálfan mig hvort ég hefði leitað á réttum stöðum. Aðrir þingmenn höföu á sama tíma komið í gegn allt aö 168 frumvörpum. Mér datt þá í hug að hann hefði látiö nægja að afla frumvörpum annarra fylgis en ekki troðið nafni sínu sem meöflutningsmaður á þingskjölin. En þegar ég fór á milli samtíma þing- manna fræddu þeir mig á því að LBJ, sem ávallt hafði óbeit á því aö láta þröngva sér til afstöðu, hefði ekkert verið fjarlægara en berjast fyrir ann- arra frumvörpum. Þegar ég fann að hann hafði ekki kynnt ný þingmál, ekki barist fyrir nýjum lagasetningum og aö lítiö lá eftir hann fór að brenna á mér spumingin um hvaðan hann hefði sótt sér áhrifin og völdin, sem hlóöust á hann í Washington,” segir Caro, sem átti viðtöl við suma af mjög nánum vinum Johnson. ,,Ég heföi aldrei fundiö svarið ef þeir hefðu ekki verið enn lífs, því að allir sögöu þeir mér það sama. Þaö voru peningar, sögðu þeir, en bættu við: Þú getur aldrei skrifaö þaö, því aö þú færð engan til að vitna um það og finnur þaö auðvitað hvergi skjalfest. — Framan af trúði ég því sjálfur að þeir mundu sannspáir um þaö, og ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð, þar til ég komst í bókhald kosningasjóðs demó- krata frá 1940. Þar var allt aö finna: Hverjir höfðu gefiö Johnson peninga í sjóðinn, hvaða dag og hverjum hann hafði úthlutað og til hvers.” Spurt / þaula tí/ að hnekkja /ygunum Þannig gróf Caro upp falda hluti. Fyrst átti hann viðtöl við menn og með- tók blekkingar og lygar. Síðan grúsk- aði hann í skjölum og skrám, sneri svo aftur til viötalenda og hrakti ósannsöglina.Hann ók umTexas þvert og endilangt, fram og til baka, og bætti stykki og stykki í púsluspilið. Hann gróf upp gamla skólafélaga Johnson og fékk hjá þeim aðra mynd af skóla- félagsformanninum Johnson en stjóm- málamaðurinn hafði sjálfur haldiö á lofti. Fyrst vildi hann ekki trúa, en þegar æ fleiri gáfu æ meira í skyn tók fortíðin að rísa upp úr blekkingarhul- unni. Caro segir að í heimahéraði John- son hafi menn enn beyg af áhrifum hans, þótt hann sé löngu kominn undir græna torfu. Þeir sem í fyrstu voru samvinnuþýðir urðu síðar tregir þegar þeir fundu aö hverju rannsóknir hans vorufarnaraðsveigjast. Einn þeirra sem hafði veitt Caro rangar upplýsingar um Johnson var yngri bróðir hans, Sam Houston John- son, sem um tíma var áfengissjúkling- ur en frelsaðist. Caro, sem vissi að upplýsingar Sam Houstons voru falsk- ar, fékk bróðurinn meö sér til æsku- heimilis þeirra, sem er nú friðað sem safn. „Við sátum einir í húsinu og ég lét hann setjast viö borðstofuborðið þar sem hann haföi setið drengur og unglingur og sagði viö hann: Jæja. Pabbi ykkar hefur setið þama og Lyndon þarna og reynum nú að rif ja þetta upp. — Eftir smástund hafði Sam Houston gjörsamlega gleymt sér í minningunum og lék fyrir mig samtöl- in, þar til ég sagöi: Nú vildi ég að þú færir aftur fyrir mig yfir þessar ágætu sögur sem bróðir þinn var vanur að segja af uppvexti sínum og helst að þú farir ítarlega í þær meö smáatriðum. — „Þaö get ég ekki,” svaraöi Sam Houston. — ,,Hví ekki?” spurði ég. — „Af því að það átti sér aldrei stað,” svaraði bróðirinn. (endursagt úr Newsweek) Yngri bróðirinn, Sam Houston, faðirinn Sam Ealey Johnson jr. og LBJ sjálfur, sem skirrðist ekki við að Ijúga á móður og föður til að afla sór samúðar og koma ár sinni fyrir borð, eftir þvi sem bókarhöfundur segir. Þettaeru mjúku klossamir, sem Náttúrulækningabúðin mælir með ÞETTA ERU HELSTU KOSTIRNIR: • Þeir eru með 5 mm þykku viðar-innleggi. • Þeir eru léttir sem fis, með mjúkum sóla. Það dregur úr slysahættu. • Þeir mynda enga smelli eða skelli þegar þú gengur á þeim á stein- gólfum, þeir eru alveg hljóðlausir og það kunna sjúklingar á sjúkra- húsum að meta. • Þeir fara betur með hrygginn og fæturna en aðrir skór, þannig draga þeir úr þreytu og auka vinnuafköst. • Þeir endast og endast og spara því peninga. • Þeir eru stöðugir á hálum gólfum. • Þeir eru til í mörgum gerðum og litum. • Ein gerðin er með stálfóðrari tá og verndar þannig fætur þeirra, sem vinna með þunga hluti. • Þeir eru til í númerum 35—46. Þeir fást í Náttúrulækningabúðinni að Laugavegi 25, sími 10262 og 10263. • Við sendum þá í póstkröfu hvert á land sem er, eins og aðrar vörur okkar. • Starfshópar, sem kaupa mörg pör, fá afslátt. NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN Laugavegi 25, símar 10262 og 10263

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.