Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Page 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. Spurningin Telurðu dagana tiljóla? Hildur Bjarnadóttir, húsmóðir á Vest- fjörðum: Já, sérstaklega þegarmaður tekur upp á þvi aö detta á hausinn. Annars æsi ég mig ekkert upp út af jólunum. Þau koma bara og fara. Álfdis Gunnarsdóttir húsmóðir: Já, víst geri ég það og hef alltaf gert. Von- andi helst það meðan maöur hefur áhuga á lífinu, eins og maður á að hafa. Valdis Kjartansdóttir húsmóðir: Já, já, ég geri þaö. Eg hef alltaf hlakkaö til jólanna. Nei, ég opna ekki jóladagatal, bömin mín gera það. Eirikur Guðmundsson kennari: Neí, ekki ennþá. Ekki svona fyrr en rétt fyrir. Maður er önnum kafinn rétt framundir þaö siöasta. Jensina Waage kennari: Jahá, ég geri það. Eg mundi segja að ég hafi alltaf gert það. Nei, ég opna ekki dagatal, læt börninumþaö. Þorgrimur Guðmundsson lögregiu- maður: Já, það geri ég. Nei, ég opna ekki sjálfur jóladagatal. Reyndar læt ég þennan tíma líða eins og hvern ann- an. Maður byrjar snemma á aö drífa sig í jólainnkaupin. Lesendur Lesendur Lesendur Lesen Um kl. 18 30. nóvember sl. urðu telpa og tvær konur fyrir illskeyttri áreitni i strætisvagni — án þess að aðrir farþegar hreyfðu legg nélið. Vegna áreitni í strætisvagni: HVAÐ ER AÐ GERAST í OKKAR MÓDFÉLAGI? 7507—7270 skrifar: Þessu sinn get ég ekki á mér setið aö skrifa nokkrar línur, enda æriö tilefni: Makalaus ósvífni og áreitni unglings. Þannig atvikaöist að ég var á leið heim til mín upp í Breiðholt með stræt- isvagni, ki. rúmlega 18, þann 30. nóvember sl. I sætinu viö hliðina á mér sat eldri kona, en tvær á að giska 10— 11 ára telpur í sætinu fyrir framan okk- ur. A leiðinni komu inn í vagninn tvær stúlkur, um þaö bil 15 ára gamlar og vegna staðsetningar sætanna, gátu þær staðiö fyrir aftan sætið er ég sat í. Ekki höfðu þær veriö lengi í vagninum þegar önnur þeirra vatt sér fram, reif í hár annarrar telpunnar fyrir framan mig og hnykkti henni aftur á bak. Eins og vænta mátti varð telpan bæði undrandi og hrædd: Bað hina að hætta; sagðist ekkert hafa gert henni og ekkert þekkja hana. Stúlkan sagði þá: „Þegiðu helvítis fíflið þitt, eða þú hefur verra af.” Sleppti hún þó takinu. Augnabliki síðar teygði hún aftur höndina á milli mín og konunnar viö hlið mér og reif enn í hár telpunnar. Var með handfylli af hárum eftir verk- ið. Er þessi stúlka ætlaði enn aö teygja höndina á milli okkar, greip gamla konan í hönd hennar og skipaði henni að hætta. Stúlkan brást ókvæða við og kallaði gömlu konuna ýmsum ljótum nöfnum, svo sem mellu, hóru og annaö í þeim dúr; sagöi henni jafnframt að halda kjafti og reyndi að rífa af henni húfuna. Er fólk almennt dofið fyrir hvers konar ofbeldi? I þriðja sinn gerði stúlkan tilraun. Þá gripum við báðar í hönd hennar. Sagði ég henni að ef hún léti ekki segjast, léti ég vagnstjórann henda henni út. Auðvitað fékk ég minn skerf af ókvæðisorðum, ásamt tilraunum til þess að rífa húfuna af mér eöa háriö. Og þegar ég síðan var aö fara út var þessi stúlka bæði með viöbjóöslegar svívirðingar og reyndi aö varna mér útgöngu. Það versta er þó sennilega að í vagninum var hópur fulloröins fólks sem hvorki sagði né gerði neitt til þess að koma í veg fyrir áfásir þessarar stúlku. Hvað er að gerast í okkar þjóð- félagi? Er fólk almennt orðið svo dofiö fyrir ruddaskap og hvers konar ofbeldi — eða háir kjarkleysið því? Og er það ekki einmitt vegna afskiptaleysis á borð við þetta að unglingamir vaða uppi með hvað sem er? Eða er það kannski vegna innrætingar sál- fræðinga og félagsfræðinga um bann við hegningum að unglingarnir verða aðagalausumlýð? * Ætli það sé samt ekki mergurinnn málsins að dómsvaldið bregst okkur. Vegna sinnuleysis þess veit fólk ekki hvar þaö stendur gagnvart ofbeldis- seggjum; gerist áhorfendur fremur en að reyna aö hindra áreitni. Við skulum muna að ekki er langt í kosningar til Alþingis. Eða hvað finnst ykkur, borgarar góðir, eruð þiö ánægðir meðnúverandiástand? Fangamálin: HAFÐU SKÖMM FYRIR — þú sem ert sjálfur fyrrverandi fangi 0955—1638 skrifar: Eg get ekki látið hjá líða að svara bréfi sem einhver ósiöaöur mddi , er kallar sig fyrrverandi fanga, skrifaði lesendadálki DV, 22. þ.m. Eg er eiginkona manns sem er fangi á Litla-Hrauni og fer ég því í heimsókn til hans á hverjum sunnudegi. Þaö kallar þessi fyrrverandi fangi „til- hleypingadaga.” Þvílíkur dónaskapur og óþverrahugsunarháttur sem sá maður elur með sér. „Ég veit að maðurinn minn og margir fiairi iðrast sárlega afbrota sinna" — Litla-Hrauni. segir i bréfi eiginkonu fanga á Hann ræðst að fyrrverandi sam- föngum sínum með rógi og níði, dregur fram verstu glæpi, sem framdir hafa verið, og dæmir síðan alla eftir því. Maðurinn minn, er þama dvelur sem refsifangi, hefur frá byrjun unnið baki brotnu við að steypa gangstéttar- hellur þannig að við höfum getaö staðið við skuldbindingar okkar við lánardrottna. Þetta kallar fanginn fyrr- verandi dútl og afslöppun. Eg veit aö maðurinn minn og margir fleiri iðrast sárlega afbrota sinna. Em þeir allir af vilja gerðir aö ráða bót á sínum vandamálum (þá á ég við alkóhólisma) fái þeir frið til þess fyrir ofstækisfullu fólki meö miðalda- hugsunarhátt. Ég hef komið inn í nokkra klefa á Litla-Hrauni en hvergi hef ég séð þessi margumtöluðu stereotæki, sem eiga aö vera þar uppi um alia veggi, svo að ég veit að þar er farið með rangt mál. Fanginn fyrrverandi sýnir og sannar sitt rétta innræti meö því að ráðast að samföngum sínum með ósmekklegum lygum. Ég á bágt með að sætta mig við að heimsóknum mínum til eiginmanns míns sé líkt við tilhleypingastand dýra. Haf ðu þess vegna skömm fyrir, þú sem ertsjálfurfyrrverandi fangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.