Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982. íþróttir Sænskir þjálfarar steyma til Noregs Hinn nýi olíuauður Norðmanna er farinn að segja til sin í íþróttunum þar eins og annars staðar. Þar fá nú menn sem skara fram úr í íþróttum greiddar góðar peningaupphæðir undir borðið og nú er ekki lengur ncitt mál hjá Norðmönnum að fá dýra og góða þjálfara til landsins. Kemur þetta m.a. fram í knattspyrnunni, en þar hafa Norðmenn nú þegar yfirboðið aila aðra á markaðnum. Hafa þeir sóst mjög eftir sænskum þjálfurum nú i haust og orðið vel ágengt á þeim miöum. Hafa a.m.k. fjórir þekktir sænskir þjálfar- ar skrifað undir samninga við félög, eins og Valerengen, Porsgrunn, Odd og Bryne, og fleiri eru sagðir á leiðinni. Svíar eru allt annað er hrifnir af þcssu. Þeir öfund- ast mikið út í oiiuauð Norðmanna, og það er eins og salt í sárið hjá þeim þegar þeir eru farnir að yfir- bjóða þá sjálfa i launum og greiðslum til þjáifara og íþróttamanna. .. -klp- Litli munaöar- leysinginn var hættulegastur Bandaríkjamenn sigruðu i úrslitaleiknum i Davis Cup í tennis en það er hin óopinbera heimsmeistara- keppni iandsliða í íþróttinni og stendur hún yfir allt árið. Frakkar voru mótherjar Bandarikjamanna í þessum úrsiitaleik en áttu aidrei möguleika enda Kanarnir með kappa eins og John McEnroe og Pet- er Fleming í sinu liði. í liði Frakklands kom mjög á óvart binn þeldökki Yannick Noah, sem er fæddur og uppab'nn í Kamerún. Fyrir nokkrum árum var bandariski Wimbledon meistarinn þeidökki, Arthur Ashe, á ferð í Kamerún og sá þá Noah vera að slá tennis- bolta í vegg. Var hann svo hrifinn af stráknum, sem var munaðarlaus, að hann kom honum i skóla til Frakklands og í hendurnar á bestu tenniskennurum þar. Noah er nú orðinn einn besti tennisleikari Frakka og hafði Ashe, sem var fyrirliði bandaríska Uðsins i úrsUtaleiknum, mjög gaman af að hitta hann aftur og sjá til hans — sérstaklega i leikjunum við McEnroe sem er taUnn sá besti í heiminum í dag. -klp- Greenwood ætlar að hjálpa Reading til að lifa! Ron Greenwood, stjóri enska landsUðsins í knatt- spyrnu, er ekki aldeilis hættur afskiptum af knatt- spyrnu cins og hann lofaði þegar hann hætti með enska liðið eftir HM á Spáni í sumar. Hefur hann nú tekið að sér að hjálpa 3. deildarlið- inu Reading, sem er í miklum f járhagslegum vand- ræðum og vafasamt að „lifi” lengur en til vors. Greenwood hefur tekið að sér að vera í stjórn fé- lagsins og gefa ráðleggingar um kaup á leikmönn- um, leikskipulagi og öðru. Nálægt æfingunum viU hinn liðlega sextugi Greenwood ekki koma sjálfur. Hann segist vilja hjálpa Reading til að lifa því fé- iagið hafi verið eitt af sínnm uppáhaldsfélögum i gamla daga. -klp- Byrjaði á „holuíhöggi” Hinum merka klúbbi, EINHERJA, sem er fé- lagsskapur íslenskra kylfinga er vinna það afrek að fara „holu í höggi”, er sífeUt að bætast liöstyrkur. Sá síðasti sem bættist í hópinn var Guðjón Guðjóns- son skipstjóri sem er búsettur i Seattle í Bandarikj- unum. Hann brá sér þar á Woodland-goUvöllinn á dögunum með lánskylfur frá Eiríki Þ. Jónssyni, landsliðsmanni í golfi, sem er við nám i Seattle. SIó Guðjón „meistarahögg sitt” þar á einni brautinni og fór hana í einu höggi i votta viðurvist. Er það vel gert hjá honum því hann hefur sama og ekkert leikið golf. Kynntist því fyrst á íslandi í sumar J>egar bróðir hans, Kjartan Guðjónsson, fyrr- um frjálsíþróttakappi, dró hann út á golfvöU. Þar smitaði hann Utla bróðir svo, að hann er nú kominn i golf um leið og bann kemur í land af krabbamiðun- um i Alaska. fþróttir (þróttir Motherwell vill koma til íslands Óskalandið hjá f ramkvæmdastjóranum iock Wallace og leikmönnum hans í Skotlandi „Ég kann mjög vel við mig hérna hjá MotherweU og hef aldrei komist í kynni við annan eins þjálfara og karakter og Jock WaUas, framkvæmdastjóra okkar og er ég þó búinn að kynnast þeim mörgum góðum um dagana,” sagöi Jóhannes Eðvaldsson knatt- spyrnukappi er við slógum á þráðinn tU hans í Skotlandi i gær. „WaUace hefur gert alveg ótrúlega hluti með þetta lið en það vakti mikið umtal á sínum tíma þegar hann sagði upp öruggu starfi sém stjóri hjá Leicester á Englandi tU að taka viö Motherwell í Skotlandi. Það bjuggust fæstir við aö liöiö næði sér í stig í úrvalsdeildinni skosku í vetur. Hann hefur sýnt og sannað annaö, því við erum núna um miöja deildina og aUtaf að bæta okkur. Hann gerði mig aö fyrirUða liðsins og lætur mig leika sem aftasta menn í vöm. Ég kann vel við mig þarna og finnst ég vera miklu öruggari og betri en þegar ég var með Celtic. Eini gall- inn á þessu liöi okkar er sá aö okkur vantar mann eða menn sem geta skorað. Við eigum ekkert síöri tækifæri en mótherjamir í leikjunum en það eru ansi fáir þama frammi sem geta og kunna að skora mörk. Það er mikill áhugi meðal strákanna hjá Motherwell að komast til Islands næsta vor eða sumar. Jock Wallace hefur sjálfur mikiö talaö um að hann vilji fara þangaö með liöið en til Islands hefur hann sjálfur aldrei komiö. Ef einhver félög eða knatt- spyrnuráö á Islandi hafa áhuga á að fá félag í heimsókn með litlum tilkostnaöi ættu þau endiiega að láta í sér heyra.” Jóhannes sagði aö hann gæti ekki tekið tilboði Isfirðinga um aö koma og þjálfa og leika með þeim í sumar. ,,Ég er bundinn hjá Motherwell þar til í júní. Aftur á móti hefði ég gaman af aö komá heim í sumar og aðstoða eitt- hvert lið í sambandi við þjálfun og skipulagningu bæði á eldri og yngri flokkunum. Takmarkiö er aö gera það þegar ég hætti í atvinnumennskunni, sem ég vona þó aö verði ekki fyrr en eftir 3 til 4 ár,”sagði Jóhannesaðlokum. -klp- Ralf Edström til ðrgrvtc! Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni DV í Svíþjóð. — Sænski landsliðsmaðurinn í knatt- spyrnu, Ralf Edström, sem leikur nú með Monaco í Frakklandi, befur ákveðið að enda knattspyrnuferil sinn í Svíþjóð. Sænska blaðið Expressen sagði frá því í gær að Edström myndi leika með Gautaborgarliðinu Örgryte næsta keppnistímabilið, en félagið hefur að undanförnu fengið til sín marga nýja leikmenn og þá hefur hinn gamalkunni sænski landsliðsmaður, Agnes Simonsson, gerst þjálfari £ RalfEdström. liðsins, en hann var þjálfari Gauta- borgarliðsins Hácken sl. keppnistíma- bil og kom því upp í Allsvenskan. Það er greinilegt að örgryte ætlar sér stóra hluti og ekki að vera eftir- bátur „stóra bróður”, IFK Gauta- borg. Eins og menn muna þá lék öm Oskarsson með örgryte og félagið vildi fá hann aftur til sín, en öm vildi ekki til Svíþjóðaraftur. Edström, sem er 30 ára, er ekki dauður úr öllum æðum. Hann var t.d. valinn í lið vikunnar í Frakklandi um sl. helgi. Edström hefur orðið meistari í f jórum löndum. Með Atvitaberg í Sví- þjóð, Eindhoven í Hollandi og Monaco í Frakklandi og þá var hann bikar- meistari með Standard Liege í Belgíu. -GAJ/-SOS. DVkynnir J Watford | Spútnikarnir frá London — leik- . menn Watford, verða kynntir í | j Helgarblaði DV á morgun. Eins og ■ | fram hefur komið þá er DV byrjað I Iað kynna fræg knattspyraulið frá I Englandi og um sl. helgi var * Manchester United kynnt. Það er Hjörtur Harðarson frá J I Seyðisfirði sem kynnir ensku liðin | J fyrir lesendum DV. Hann segir á ■ | morgun frá Watford, sem hefur * vakið mikla athygli í Englandi í I a vetur. Félagið hefur náð athyglis-! | verðum árangri síðustu ár undir | . stjórn söngvarans Elton John, sem ■ I erstjórnarformaðurféiagsins. L__________________________10SJ I I íþróttir íþróttir Danski landsliðsmaðurinn Anders Dahl Nielsen hefur ekki enn tapað heim hann ætlar sér heldur ekki að gera það með sínu islenska félagi, KR, í leikjt KR-INGAR SAF SÉR UPPLÝSI — um júgóslavnesku snillingana se Evrópukeppninni á sunnud KR-ingar undirbúa sig nú vel fyrir Evrópuleikina gegn júgóslavneska lið- inu Zeljeznicr sem verða í Laugardals- höllinni á sunnudags- og á þriðjudags- kvöld. Anders Dahl Nielsen, hinn danski þjálfari liðsins, er að vinna úr upp- lýsingum sem hann hefur fengið frá félaga sínum Leif Mikkelsen, þjálfara danska landsliösins. Hann á í fórum sínum upplýsingar um alla helstu handknattleiksmenn í heimi og er það safn sem ekki allir fá aö komast í. Þá hefur Jóhann Ingi Gunnarsson, sem nú þjálfar hjá Kiel í Þýskalandi, gefið KR-ingum upplýsingar um júgó- slavneska liðið. KR-ingamir vissu lítið um það þar til núna að upplýsingarnar streyma að. „Ánægður með stigin tvö” — sagði Stefán Gunnarsson, þjátfari Vals, eftir að Valurvann Fram 17:16 „Ég er ekki ánægður með þennan leik hjá okkur. En ég er mjög ánægður með stigin tvö sem við hlutum i kvöld,” sagði Stefán Gunnarsson, þjálfari Vals í handknattleik, eftir að Valur hafði sigrað Fram i Laugardalshöll með 17 mörkum gegn 16, eftir að staðan í leik- hléi hafði verið 10—5 Val í vU. Valsmenn voru sterkari í fyrri hálf- leik en í þeim síðari tóku Framarar sig saman í andlitinu og unnu síðari hálf- leikinn 11—7 þannig aö miklar sveiflur voru í leiknum. Framarar voru oft miklir klaufar undir lok leiksins og sigurinn heföi aUt eins getað orðið þeirra. „Það er eins og við getum ekki barist nema að við séum fimm mörkum und- ir. Við vorum miklir klaufar i lokin,” sagði Hermann Bjömsson, Fram, en hann skoraöi tvö síðustu mörk Fram í leiknum á glæsUegan hátt. „Við höfum meðbyr, á því er enginn vafi,” sagði Jón Pétur Valsmaður eftir leikinn. „Hvað mig varðar þá er ég ekki ánægður með mína frammistöðu í leiknum. Ég skaut kolvitlaust á markmanninn hjá Fram í leiknum,” sagöi Jón. Markhæstur hjá Val var Jón Pétur meö 5 mörk en Gunnar LúðvUtsson skoraöi 4. Hjá Fram voru það þeir Herinann Bjömsson og Hannes Leifsson sem skoruöu mest eða 4 mörk hvor. Leikinn dæmdu þeir Ingvar Viktorsson og Hjálmur Sigurðsson. -SK. Gunni Gunn frá keppni „Eg leik ekki meiri handknattleik það sem eftir er af þessu keppnis- tímabili,” sagði Gunnar Gunnarsson, handknattleiksmaður úr Fram og knattspyraumaöur úr Víkingi, í sam- tali við DV í gærkvöldi. „Það slitnuðu liðbönd í ökkla og ég verð lengi aö jafna mig eftirþetta,” sagöi Gunnar. Gunnar meiddist í leiknum við Val í gærkvöldi og var fluttur í snatri á slysavarðstofuna. Er þetta mikið áfall fyrir Framara. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.