Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Síða 32
VELDU
ÞAÐ
RÉTTA —
FÁÐUÞÉR
CLOETTA
(ourjsbertj
umboðiö
Sími 20350.
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1982.
Fangelsisstjóri
Litla-Hrauns:
Sagði upp
vegna ágrein-
ings við ráðu-
neytismenn
Fangelsisstjóri Litla-Hrauns, Helgi
Gunnarsson, hefur sagt upp starfi
sínu. Hætti hann 1. desember síöastliö-
inn.
„Við höfum ekki verið sammála um
rekstur þessa fangelsis, dómsmála-
ráöuneytiö og ég,” sagði Helgi.
„Þaö var meiningamunur um þetta.
Ég er ekki aö tíunda þaö nánar. En þaö
var sýnilegt aö viö vorum ekki sam-
mála og þá vitaskuld sagði ég upp.”
Helgi Gunnarsson kom fyrst til
starfa á Litla-Hrauni áriö 1973. Frá
1974 hefur hann veriö fangelsisstjóri.
Aö sögn Þorsteins Jónssonar í dóms-
málaráöuneytinu mun Jón Böövars-
son, deildarstjóri í fjárlaga- og hag-
sýslustofnun, stjórna fangelsinu næstu
fjóra til sex mánuði eða þar til nýr
fangelsisstjóri hefur veriö fenginn.
Þorsteinn sagði aö ráöuneytiö og
Helga Gunnarsson hefði greint á um
f jölmörg atriöi varöandi stjómun fang-
elsisins, bæöi varöandi fangana og
kannski frekar reksturinn. Þorsteinn
tók þó skýrt fram aö mál þetta snerist
ekki um neina misnotkun fjármuna.
-KMU.
Búnaðarbank-
inn kaupir
,,Já, þaö er búiö aö ákveöa aö bank-
inn festi kaup á húseign aö Austur-
stræti 7,” sagöi Magnús Jónsson,
bankastjóri Búnaöarbankans, í sam-
tali viö DV. „Þaö er verið aö ganga frá
kaupunum um þessar mundir en okkur
vantar húsnæöi vegna opnunar gjald-
eyrisdeildar,” sagöi Magnús.
Austurstræti 7 er viö hliö aöalbanka
Búnaöarbankans. ás.
Báturinn Ýr
sökk í morgun
Vélbáturinn ÝR SU 15 frá Þórshöfn
sökk á Þistilfirði tuttugu mínútur yfir
sjö í morgun. Einn maöur var í bátnum
og bjargaðist hann um borð í vélbátinn
Val ÍS 59, sem einnig er gerður út frá
Þórshöfn.
Orsakir óhappsins eru ekki aö fullu
kunnar, en taliö er aö skyndilegur leki
hafi komiö aö bátnum og hann sokkið á
skömmum tíma. Vr var níu tonna tré-
bátur. -JGH
LOKI
Er ekki þjóðhagslega hag-
kvæmast að selja Stá/fé-
laginu Hólmavíkurtogar-
ann?
grípur Þjóðminjasafns
„Skipiö er stórhættulegt héma.
Fólk fer í þaö, sérstaklega unglingar
á haustin og vorin og koparþjófar.
Viö höfum miklar áhyggjur af því,"
sagöi Einar Stefánsson, forstööu-
maöur hjá Vita- og hafnamálastofn-
un í Kópavogi. Orö hans áttu viö
dýpkunarskipið Gamla Gretti sem
þar liggur, en er í eigu Þjóöminja-
safnsins.
Skipiö hefur legiö þarna hálft upp í
land síöustu fimm ár. Þjóðminja-
safniö ætlaði því hlutverk í fyrirhug-
uðu sjóminjasafni við Hafnarfjörð.
Þór Magnússon þjóöminjavöröur
sagöi viö DV að varðveita ætti aftur-
liluta skipsins sem sýnishorn af út-
búnaði gufuskipanna. Safniö fæddist
á hinn bóginn hægt og líklega liðu
enn nokkur ár þar til skipshlutinn
yröitekinn þangað.
,Jí meöan Vita- og haframála-
stofnun rekur okkur ekki burtu meö
Gretti veröur hann þarna,” sagöi
Þór, „enda höfum viö ekki annan
geymslustað og stofnunin tók aö sér
aö sjá um hann þangaö til viö gætum
tekið skipiö á fyrirhugaöan staö
þess.”
Sjóminjasafni er ætlaður staöur á
Skerseyri. Síöustu misseri hefur hins
vegar veriö unnið aö viögerðum á
gamla pakkhúsinu næst húsi Bjarna
riddara í Hafnarfirði, sem bráöa-
birgöaskýli. Þeim er ekki lokiö.
Gamli Grettir á sér merkilega
sögu. Smíöi hans lauk 1947, en
teikning hans var þá 96 ára gömul, af
Indlandsskipi, sem reynst haföi af-
burðavel. Vélbúnaöurinn er kola-
kynnt gufuvél. Rekstrarsaga skips-
ins er nátengd atvinnusögu lands-
manna í 30 ár og það opnaði margar
hafnir sem nú eru meö helstu fiski-
höfnum landsins, svo sem í Vest-
mannaeyjum og Grindavík.
Nú er Gamli Grettir hins vegar i
hálfgeröu reiöileysi og áhyggjuefní
sem slysagildra.
HERB
Þarna liggur gamli Grettir með
skutinn i sjó. Þótt logsoðið sé i
dyr hafa koparþjófar sótt i skipið.
Og unglingar leita þangað i ærsl-
um. DV-mynd: BB.
Beðið
ræðu
Geirs
— á flokksráðsfundinum
ídag
Ræöu Geirs Hallgrimssonar, for-
manns Sjálfstæöisflokksins, á flokks-
ráðs- og formannaráöstefnu í dag, er
beðið meö eftirvæntingu. Ráöstefnan
hefst klukkan 15 á Hótel Sögu meö
ræðu formannsins.
Fastlega er reiknað meö aö hann gefi
þar persónulega yfirlýsingu í kjölfar
prófkjörs flokksins í Reykjavík. I
morgun var Geir á fundi með öörum
helstu stjómendum flokks og þing-
flokks.
I samtölum viö nokkra forystumenn
Sjálfstæöisflokksins í morgun töldu
sumir líklegt aö Geir lýsti því yfir í dag
aö hann gæfi ekki kost á sér til endur-
kjörs í formannssæti á næsta lands-
fundi. Aðrir töldu líklegast aö í yfir-
lýsingu hans myndi ekki felast nein
ákvöröun af því tagi.
Ráðstefnan mun standa fram á
kvöld og síöan fram eftir degi á
morgun.
HERB
Hólmadrangur á
flot á háflæðinu
— dreginn til Hafnarf jarðar í morgun
„Jú, þetta gekk alveg skínandi vel.
Viö náðum skipinu á flot í fyrstu til-
raun á háflæöinu kl. rúmlega hálfátta í
morgun og Goðinn er nú aö draga það
til Hafnarfjaröar,” sagöi Jón Sveins-
son, forstjóri skipasmíöastöövarinnar
Stálvíkur, er DV spuröi hann hvort tek-
ist heföi aö ná Hólmavíkurtogaranum
Hólmadrangi á flot í morgun. En eins
og DV skýrði frá í gærstrandaöi togar-
inn viö sjósetningu í gærmorgun.
, ^Skipiö er óskemmt aö allra mati. Á
fjörunni í gær grandskoöaöi til dæmis
kafari skipið og taldi hann þaö óskadd-
aö eftir strandiö,” sagöi Jón ennfrem-
ur.
Hann sagöi aðspuröur aö leki heföi
komiö í ljós í svokallaðri sjókistu, þar
sem gleymst heföi aö sjóöa í tvær rifur
á samskeytum, um tveggja til þriggja
sentimetra langar. „Þaö var gert við
rifumar á hálftíma í gær og ég vil taka
þaö sérstaklega fram aö þaö eru engin
tengsl á milli strandsins og þessara
rifa en maöur hefur heyrt hjá fólki aö
svo hafi veriö,” bætti J ón viö.
Jón sagði aö lokum aö skipasmíöa-
stööin myndi ljúka viö allan frágang á
togaranum í Hafnarfjarðarhöfn og aö
hann færi í slipp til skoöunar áöur en
hann yröi afhentur eigendum sínum í
janúarlok. -JGH
Hólmadrangur ST 70 ó strandstað við Skipasmiðastöðina Stálvik i gær-
dag. DV-myndS
I
i
i
i
i
i
I
I
I
I
I
I
I
I
í
I