Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
3
Voru Helgi og Soffía „blokkeruð” í forvali
Alþýðubandalagsins nyrðra?
„Við viljum ekki
Akureyring
í efsta sætið”
„Þaö voru samantekin ráö okkar
alþýöubandalagsmanna í Þingeyjar-
sýslum aö kjósa Steingrím, en hvorki
Helga né Soffíu, einfaldlega vegna
þess aö viö viljum ekki Akureyring í
efsta sæti listans.”
Þannig skýrði þingeyskur alþýðu-
bandalagsmaöur, sem ekki vill láta
nafns síns getið, óvænt úrslit i forvali
Alþýðubandalagsins í Noröurlands-
kjördæmi eystra í samtali viö DV. Þar
uröu Steingrímur Sigfússon frá
Gunnarsstööum í Þistilfirði og Svan-
fríöur Jónasdóttir á Dalvík í efstu
sætunum en Akureyringamir, Soffía
Guömundsdóttir og Helgi Guðmunds-
son, uröu aö láta sér lynda 3. og 4.
sætiö. Fyrirfram var álitið að þau y röu
í baráttunni um efsta sætiö, „þing-
mannssætið”, sem Stefán Jónsson
gefur nú eftir. Soffía og Helgi skipuðu
2. og 3. sætiö á framboöslista banda-
lagsins í kjördæminu viö síðustu
alþingiskosningar en Steingrímur var
íþví4.
Þegar litiö er á atkvæöatölur þeirra
f jórmenninga í 4 efstu sætin kemur í
ljós fylgni meðSteingrími og Svanfríði
annars vegar en Helga og Soffíu hins
vegar. Steingrimur fékk 238 atkvæði,
Svanfríöur 207, en Helgi fékk 142
atkvæði og Soffía 147.
Einungis félagsbundnir alþýðu-
bandalagsmenn höfög atkvæöisrétt í
forvalinu. Þar af leiöandi m.a. varö
nokkur fjölgun í Alþýöubandalags-
félögunum í kjördæminu en langmest
varö fjölgunin í Þórshafnarfélaginu,
heimasveit Steingríms, þar sem
félagatalan tvöfaldaöist, samkvæmt
heimildum DV. Liö flokksbundinna
framsóknarmanna þynntist aö sama
skapi í þeirri sveit. Með hliösjón af því
óttast framsóknarmenn aö Stein-
grímur komi til meö aö saxa á fylgi
þeirra í Noröur-Þingeyjarsýslu í kom-
andikosningum.
„Akureyringar urðu undir í for-
valinu aö þessu sinni. Þaö er ekki um
annaö aö gera en taka því, við getum
engum öörum en sjálfum okkur um
kennt, því þátttaka félagsmanna hér
var lítil. En þaö koma tímar og koma
ráö,” sagöi einn af frammámönnum
Alþýðubandalagsins á Akureyri í sam-
taliviðDV.
Páll Hlööversson, formaöur uppstill-
ingamefndar bandalagsins í kjör-
dæminu, telur það siðferöislega skyldu
nefndarinnar að fara eftir úrslitum
forvalsins, þótt þau séu í sjálfu sér ekki
bindandi samkvæmt reglum flokksins
um forval. Samkvæmt því verður
Steingrímur í „þingmannssæti” fram-
boðslistans og Svanfríður í 2. sæti. En
tekur Helgi Guömundsson 3. sætið?
Því hefur hann ekki viljað svara í f jöl-
miðlum. Geri hann þaö ekki veröur
aöeins einn Akureyringur eftir í hópi
þeirra sem þátt tóku í forvalinu þar
sem Soffía gefur ekki kost á sér i 4.
sætiö.
Viö skulum leyfa Þingeyingnum
ónefnda að hafa lokaorðiö en hann
sagöi: „Eg tel aö þessi listi, með Stein-
grim og Svanfríði í efstu sætunum,
verði sterkur í komandi kosningum.
Hjá okkur eru ný andlit en hinir flokk-
amir bjóöa ekki annaö en mosavaxna
gæðinga.” -GS/Akureyri.
MIKIÐ ÚRVAL AF JEPPUM OG
FJÖLDI NÝLEGRA BÍLA
Lada Sport
Range Rover
Ford Bronco
Rússi, framb.
Willys
árg. '80
árg. '74
árg. 72- 74
árg. 78
árg. '55—'58—'64—74
Scout II
Rally '79
8 cyl. sjálfskiptur.
Verð kr. 265.000,-.
Dekurbíll.
Benz200
dísil '80
bíll í sérflokki.
Verð kr. 275.000,-
Bronco
8 cyl. '74
sjálfskiptur.
Verð kr. 110.000,-.
Góður staðgreiðslu-
afsláttur
VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ VANTAR NÝLEGA
BÍLA Á STAÐINN. - INNIAÐSTAÐA. - OPIÐ LAUGAR-
DAG 10-16.
BÍLASALAN BLIK s/f
SÍÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVÍK
SÍMI: 86477
á beínni línu
Olís hefur opnað glæsilega bensínstöð við
Hafnarfjarðarveg í Garðabæ. Stöðin er í
beinni aksturslínu milli Hafnarfjarðar,
Garðabæjarog Reykjavíkur.
Á Olís stöðinni í Garðabæ færðu bensín
og díesel olíu úr hraðvirkum dælum.
1. flokks smurolíur frá B.P. og Mobil.
Auk þess allskyns bílavörur og aðrar vörur.
Verið velkomin í nýju
Olís stöðina í Garðabæ, —
bensínstöd í beinni aksturslínu.