Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 6
6 DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Ferðamál Ferðamál Ferðamál ______Best ad haf a allt á hreimi:_ Ferðaskllmálar sem gilda í hðpferðnm Ferðaskrifstofurnar eru nú sem óöast aö kynna ferðir ársins til allra átta og kennir þar margra grasa. Viðskiptavinir velja sér ferðir með tilliti til þess hvaöa staði þeir vilja heimsækja, hvaö ferðin kostár, hvemig aöbúnaður er og svo fram- vegis. Hins vegar eru ekki allir sem athuga aö lesa smáa letrið, það er að segja hina almennu ferðaskilmála Félags íslenskra ferðaskrifstofa. Það eru til dæmis ekki allir sem vita þaö að ef farþegi í hópferð veikist ber hann sjálfur ábyrgð á öllum kostnaði sem kann að verða af veikindunum og verður sjálfur að borga fyrir heimferö ef svo ber undir. Farþegi á ekki neinn rétt á endurgreiöslu þótt hann veikist á fyrsta degi þriggja vikna ferðar og þurfi að snúa heim. Ef farþegi sefur yfir sig daginn sem ferðin hefst og verður strandaglópur á hann ekki rétt á endurgreiðslu. Hér á eftir fara ferðaskilmálar Fé- lags íslenskra ferðaskrifstofa i heild svo að hver og einn geti gert sér grein fyrir þeim skilmálum sem í gildi eru. Pöntun og greiðsla: Pöntun á þátttöku í hópferð er bindandi fyrir ferðaskrifstofuna, en þó því aðeins að staðfestingargjald, allt að 10% af áætluðu verði ferðar- innar sé greitt innan viku frá því að pöntun barst, kr. 2.000,- á farþega, og að áætlaö verö ferðarinnar, eins og það er á greiðsludegi, sé greitt eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför. Slík greiðsla útilokar þó ekki breytingu á verðinu sbr. loka- málsgrein 2. gr. Verð og verðbreytingar: I ferðaáætlun er tekið fram, hvaöa þjónusta er innifalin í verði, enda staöfest í pöntunarviðurkenningu, er farþegi fær afhenta við greiðslu stað- festingargjalds. Uppgefin verð í verðskrám, bæklingum og á pöntunareyðublaði þessu eru áætluð verð og breytast í samræmi við þær verðbreytingar, sem kunna aö verða fram til brottfarardags á seldri þjón- ustu, hvort sem verðbreyting stafar af breytingu á fargjöldum, elds- neytishækkun, gengi íslenskrar krónu, eöa þeirrar þjónustu, sem innifalin er í áætluðu verði ferðarinn- ar. Þó ber ferðaskrifstofan hugsan- legar hækkanir á heiidarverði ferðar er kunna að veröa frá greiðsludegi til brottfarardags ef áætlað veró er BANDITTAR Flugfélagið Singapore Airlines hefur komið fyrir spilavítisköss- um, einhentum ræningjum, um borð í vélum sínum á flugleiðinni Singapore—Tokyo—Los Angeles. Sagt er að spilakassar þessir njóti vinsælda meðal farþega og flugfé- lagið íhugi að koma þeim fyrir á fleiri Ieiðum. Samkvæmt óáreiðanlegum heimUdum, sem Feröasíðan hefur aflað sér, mun Landsbanki íslands nú vera í þann veginn að kaupa svona spilavítiskassa og er ætlunin að setja hann niður í DC-6 flugvél sem stendur á Reykjavíkurflug- veUi og er i eigu bankaus. INVERNESS Breska flugfélagiö Dan-Air hefur fengið heimUd tU áætlunarflugs mUli London og Inverness, en Brít- ish Airways hættir flugi á þessari leið 27. mars. Dan-Air mun fara tvær ferðir á virkum dögum. greitt að fuUu mánuöi fyrir brottför, eins og skilmálamir kveöa á um, þó ekki yfir 5%. Hækkanir umfram 5% af áætluðu verði ferðar við greiðslu- dag ber farþega að greiða. Afturköllun eða breytingar á pöntun: Heimilt er að afturkalla farpöntun án kostnaðar, sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð. Berist afpöntun síðar en með meira en fjög- urra vikna fyrirvara, áskUur ferða- skrifstofan sér rétt til að halda eftir 5% af veröi feröarinnar. Sé pöntun afturkölluð meö minna en 30 daga en meira en 15 daga fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir 10% af verði feröarinnar. Berist afpöntun með skemmra en 15 daga fyrirvara á ferðaskrifstofan kröfu á 50% far- gjaldsins, en sé fyrirvarinn aðeins tveir virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft. Ef þátttakandi mætir ekki tU brott- farar á réttum tíma eða getur ekki hafið ferðina vegna skorts á gUdum ferðaskUríkjum, svo sem vegabréfi, áritun þess, vottorðs vegna ónæmis- aögeröa eða af öðrum ástæðum, á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar. HeimUt er að breyta pöntun án aukagreiöslu ef hún á sér stað meira en mánuði fyrir brottför. Sé þaö gert eftir þann tíma skoðast það sem afpöntun og ný pöntun og áskUur ferðaskrifstofan sér rétt tU greiðslu samkvæmt því, sbr. afpöntunarskUmála hér að ofan. Aflýsing ferðar og breytingar á ferðaáætlun: . Feröaskrifstofan ber enga ábyrgð Venjulegt fargjald aðra leið verður 75 pund og þætti dýrt hérlendis. GRÆNTÁ KENNEDY Fram tfl þessa hafa farþegar er- lendis frá sem lenda á Kennedy- flugvelli í New York mátt standa langtímum saman í biðröð eftir tollskoðun. Á þessu er nú að verða breyting til batnaðar. Innan skamms verða komin græn og rauð toUhlið á JFK og þeir sem eru með allt á hretnu geta komist fljótt og vel í gegnum toUinn. NEW YORK Á síðasta ári komu 18,9 mUljónir ferðamanna til New York, en árið áður voru þeir 17 mUljónir talsins. TaUð er að feröamenn eyði um 2,1 mllljarði Bandaríkjadala á ári i heimsborginni og munar um minna. Meðalnýting á hótelum í New York á siðasta ári er taUn vera 70% en var 72,9% árið 1981. á breytingum eða töfum, sem kunna að verða vegna óviðráðanlegra ástæðna (force majeure), svo sem vegna náttúruhamfara, verkfalla, umferöarslysa, borgarastyrjalda, styrjalda eða annarra þess háttar viðburða, né ef pöntunarloforð^gisti- húsa eöa samgöngutækja bregöast og er ferðaskrifstofunni á grundvelh þess heimilt að breyta eða aflýsa feröinni með öllu, enda verði farþeg- um tUkynnt þar um tafarlaust. Einn- ig er feröaskrifstofunni heimilt að af- lýsa ferð, ef í ljós kemur, að þátttaka sé ekki næg, en tilkynna ber þátttak- endum um það eigi síðar en tveimur vikum fyrir áætlaöan brottfarardag. Sé ferö aflýst, endurgreiðir ferða- skrifstofan það, sem greitt hefur verið upp í ferðakostnaðinn, en eigi er ferðaskrifstofan skaðabótaskyld að öðru leyti. Ferðaskrif stofan ber ekki áb)Tgð á breytingum eða seinkunum sem verða kunna á áætlunum farartækja sem notuð eru. Beri nauðsyn tU af ástæðum, sem að framan greinir eða öðrum að breyta áætlun ferðar, áskilur feröaskrifstofan sér rétt til þess, svo og aö nota önnur gistihús og farartæki en upphaflega var ráð fyrir gert. Heimilt er aö krefja þátt- takendur um greiðslu auka- kostnaðar ef breytingin stafar af ástæðum sem ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgðá. Skyldur þátttakanda: Farþegar eru skuldbundnir að hlita fyrirmælum fararstjóra eöa MALLORKA Árlega koma um þrjár milljónir ferðamanna til Mallorka.- Svíar voru farnir að draga úr ferðum til MaUorka og þótti ekki lengur fínt að heimsækja eyna. Stærsta ferða- skrifstofa Svíþjóðar, Vingresor, segir að nú sé þetta að breytast aft- ur. í fyrra fóru 40 þúsund manns á vegum Vingresor til MaUorka en 1979 og 1980 aðeins 20 þúsund. SVÍAR Ferðafrömuöir í Sviþjóð segjast reikna með 20—25% samdrætti í ut- anferðum landsmanna á þessu ári. Helstu ástæður eru taldar vera gengisfeUing sænsku krónunnar, góða veðrið í fyrrasumar sem muni hvetja fleiri tU að vera hcima í sumar i von um áframhaldandi veðursæld og siðan er hækkun á söluskatti einnig nefnd tU rökstuðn- ings þessum svartsýnisspám. Á siðasta ári fóru 1,1 milljón Svía i starfsfólksþeirra aðila er ferðaskrif- stofan skiptir við. Farþegi er skuld- bundinn að hUta lögum og reglum opinberra aðila í þeim löndum sem hann ferðast um, taka fullt tiUit til samferðamanna sinna og hlíta þeim reglum er gilda á flutningatækj- um, áningarstöðum (flughöfnum o.þ.u.l.), gisti- og matsölustöðum o.s.frv. enda ber hann ábyrgð á tjóni því er hann kann aö valda með framkomu sinni. Brjóti farþegi af sér í þessum efnum eða gefi við upp- haf ferðar tUefni til þess að ætla að hann verði samferðafólki sínu til ama meða framkomu sinni, er ferða- skrifstofunni heimilt aö hindra hann í að hefja ferð sína eða halda henni áfram og veröur hann þá aö ljúka henni á sinn kostnað, án endurkröfu- réttar á hendur ferðaskrifstofunni. Ýmislegt: Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgðá tjóni sem þátttakendur í ferðum hennar kunna að verða fyrir á lífi sínu, líkama eða farangri. Þátttak- endur eiga þess kost að kaupa á sinn kostnað ferða-, sjúkra- og farangurs- tryggingu fyrir miUigöngu feröa- skrifstofunnar eða hjá trygginga- félögum. Ferðaskrifstofan gerir ráö fyrir, að þátttakendur í hópferðum séu heUir heUsu, þannig að ekki sé hætta á aö þeir valdi öðrum óþægindum eða tefji ferðina vegna sjúkdóms. Ef farþegi veikist í hópferð, ber hann sjálfur ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast sem og kostnaði við heimferðina. Farþegi á ekki rétt tU endurgreiðslu þó að hann ljúki ekki ferð af þessum ástæðum eða öðrum sem ferðaskrifstofunni verður elcki umkennt. Hugsanlegar kvartanir vegna ferðarinnar skulu berast fararstjóra strax. Kvörtun skal síðan berast ferðaskrifstofunni skriflega eins fljótt cg viö verður komiö og í síðasta lagi innan mánaöar frá því aö viðkomandi ferð lauk, að öörum kosti verða hugsanlegar bótakröfur ekki teknar til greina. Ferðaskrifstofan vekur athygli á að í öðrum ferðum en þeim sem hún skipuleggur sjálf er hún aðeins um- boðsaðUi þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem hún skiptir við og ber því ekki ábyrgð á vanefndum þeirraaðila. hópferðir með leiguflugi og var það 7,2% aukning frá árinu áður. LUFTHANSA Um þessar mundir heldur þýska flugfélagiö Lufthansa upp á 30 ára afmæU sitt. Félagiö var stofnað í ársbyrjun 1953 og hét þá Luftag. Stofnsjóður nam sex mUIjónum marka, f jórum Convair 340 og f jór- um Super ConsteUation L-1049. Lufthansa nafnið var tekið upp i ágúst 1954. Núna á félagið 102 þotur og flýgur mUli 121 borgar í 70 lönd- um. BOEING 757 Brítish Airways hefur fengið af- henta fyrstu Boeing 757 þotuna sem félagið hefur keypt. Þá mun Air Europe fá fyrri vélina af gerðinní Boeing 757 sem félagið hefur pant- að þann21. aprU. Golfferdir á nýjar og gamlar slódlr: Með kylf ur og kiílur til Skot- landseda Portiigal í vor Nú, þegar daginn fer að lengja og snjór að hverfa, fara golfarar aö hugsa sér tU hreyfings bæði hér heima og erlendis. Fjölmargir golf- arar fara utan á hverju ári með kylf- ur sínar og kúlur og berja þar á völl- um bæði vestan hafs og austan. Ekki er mikið um skipulagðar golfferðir héðan til útlanda en þeim er þó alltaf að fjölga enda fjölgar golfurum hér á landi ört á hverju ári. Nú eru þeir á mUU 2000 og 2500 talsins og stóri draumurinn hjá þeim öllum er að leika á hinum glæstu golfvöllum sem nú er að finna í flestum löndum heims. Til þessa hafa verið skipulagöar ferðir fyrir golfara á hverju ári tU Skotlands, Irlands og Spánar. Skot- lands- og írlandsferðirnar hafa verið vorferðir en ferðin tU Spánar, sem er á vegum Utsýnar, hefur veriö farin á haustin. Sú ferð verður á boðstólum í haust en einnig tvær vorferðir. Mjög trú- legt er að ekkert verði af páskaferð Samvinnuferða til Irlands að þessu sinni og fellur þá af sjálfsdáðum niður golfferðin þangaö um páskana. Til Skotlands í 14. sinn önnur vorferðin í ár veröur á hefö- bundnar slóðir. Er það til North Ber- wick í Skotlandi. Veröur farið 6. maí og dvalið í 8 daga í North Berwick og 2 daga í Glasgow. Kostar sú ferð á mUU 15 og 16 þúsund krónur. Islenskir golfarar hafa farið til North Berwick á hverju vori síðan 1970 og sér ferðaskrifstofan Urval um þær ferðir. Auk feröarinnar 6. maí hefur iandsliðunum í golfi boöist 7 daga ferð til Glasgow um páskana á hag- stæðu verði. Ekki er vitað hve marg- ir úr landsliðshópnum fara þangað, en sú ferð mun einnig verða opin öðrum en landsUðsfólkinu. Frítt golf í Portúgal Hin vorferðin í ár er á nýjar slóöir. Verður hún til Algarve í Portúgal á vegum ferðaskrifstofunnar Utsýnar. Er sú ferð um páskana og mun kosta á mUU 16 og 17 þúsund krónur. Þetta er 10 daga ferð og er hægt að fram- lengja dvöUna í London ef óskað er. I Portúgal verður dvaUö í Penina hóteUnu en við það hótel er að finna 3 golfvelU, tvo 9 holu velU og einn 18 holu völl. Green-fee, eöa vallargjald, á þessa veUi er innifalið í verðinu en einnig er hægt aö leika á öðrum völl- um í nágrenni hótelsins. Mjög mikU aðsókn er að Algarve- golfsvæðinu í Portúgal enda talið eitt dýrlegasta golfsvæði í aUri Evrópu. I þessari golfferð tU Portúgal verða því ekki nema um 20 sæti að þessu sinni. Það er því rétt aö panta sér miða í tíma og það á raunar einnig við umgolfferðina tilSkotlands. FRÉTTIR í STTTTU M ÁLI Munið að kynna ykkur skUmála ferðaskrifstofanna um hópferðir. Faríð ekki ótryggð í f eröalag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.