Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 23
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. 23 Menning Menning Menning Næstum því heDt ár er liðið frá síðasta verkefni flokksins og er það mesta furða að dansaramir skuli ekki missa móðinn og gefast upp þegar þeir fá engin verkefni svo lengi. DV-mynd Bjarnleifur. Danssmiðjan: SANNIR ATVIMWMEM Listdanssýning íslenska dansflokksins. Fmmflutningur 4 bafletta eftír íslenska höf- unda: DANSBRIGÐI, tóniist eftir Elgar, Katsjatúrjan og Sibelius, dansar eftir dansarana í verkinu. 20 MÍNÚTNA SEINKUN, eftir Ingibjörgu Bjömsdóttur vifl tónlist Gunnars Reynis Sveinssonar. HVAR? Dansar eftir dansarana sjálfa vifl tón- Dst Þóris Baldurssonar. LARGO Y LARGO, eftir Nönnu Ólafsdóttur vifl tónfist Lerfs Þórarinssonar. Ef haft er í huga hve sjaldan Is- lenski dansflokkurinn fær tækifæri til sýninga er furöulegt að hann skuU geta sett upp eins góða sýningu og hér er á ferðinni. Næstum því heilt ár er Uðið frá síðasta verkefni flokksins og það er mesta furða að dansaram- ir skuU ekki missa móðinn og gefast upp þegar þeir fá engin verkefni svo lengi. Ennþá óskiljanlegra er að mn framför skuli vera að ræða hjá flokknum við þessar aðstæður. En þannig er það nú samt, — kjarni Is- lenska dansflokksins er ótrúlega góður, sannir atvinnumenn í besta skilningi þess orðs. Danssmiðjan er að því leyti mjög merkileg að hér er eingöngu um heimasmíðuð verk að ræða, fjóra baUetta eftir höfunda sem alUr starfa í Þjóðleikhúsinu. Islenskum höfundum hafa gefist fá tækifæri til að semja fyrir flokkinn, það virðist oftast hafa verið talið vænlegra upp á aðsókn að fá gesti til þeirra verka. Það má rétt vera að vert sé að vanda til vals á verkefnum þegar svo langt Uður á miUi þeirra, og sýningar verði heilsteyptari í höndum reyndra manna, en hitt má telja ömggt að þeir danshöfundar sem starfa hér heima komast aldrei til þroska ef þeir fá ekkert að gera. Verkin fjögur eru mjög ólík. Fyrst á efnisskránni em Dansbrigði, sem greinilega em samin til þess að dans- aramir fái tækifæri U1 að sýna hvers þeir eru tæknilega megnugir. Um það er svo sem gott eitt að segja þegar ekki er hægt að treysta því að sjá tækni dansaranna nýtta i uppsetmnguro klassískra verka. Hér sést að dansQokkurinn á góða og reynda klassíska dansara sem færir em í flestan sjó. TónUstin er sam- tíningur á segulbandi; svona sam- suða ber e.t.v. með sér dáUtinn keim af nemendasýningum, — sem annars er ekki á verkinu. Búningar dans- meyjanna, eftir Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur, eru alveg sérstak- lega klæðilegir og til mikillar fyrir- myndar þar sem þeir hæfa dönsurun- um og dönsunum mjög veL Ballett Kristín Bjsirnadottir Því miður finnst mér ekki hægt að segja það sama um búninga þriðja verksins á efnisskránni, Hvar? Þar eru búningar ákaflega skrautlegir, glampandi silfurUtaðir kjólar utan yfir svarta samfestinga. Kjólamir eru ekki ljótir, en óþjálir og mis- klæða dansarana sem sumir hverjir eru í þrýstnara lagi. Vegna þess að ljósin eru fremur dauf sjást svart- klæddir útUmimir illa og línur líkam- ans hverfa. Eftir verða silfurkjólar á ferð um sviðið. Kóreógrafían nyti sín áreiðanlega betur í einfaldari bún- ingi, verkið er hreinn dans sem þyrfti að sjást betur til þess að komast til skila. Það er eins og búningamir beri verkið ofurUði. Verk Ingibjargar Björnsdóttur, 20 minútna seinkun, sýnir ýmsar hliðar á fóUíi sem þarf að bíða eftir flugvél. Hópurinn á ekkert sameiginlegt nema þessa bið, og þama koma margar skemmtilegar persónur fram. Verkið er dálítiö sundurlaust, dans og látbragð skiptast á og kafl- amir eru mismikið stílfærðir, stund- um talsvert raunsæislegir, — stund- um hrein fantasía. Sumir kaflamir eru bráðfyndnir og á köflum em dansarnir góðir, (sérstaklega tví- dans Guðmundu Jóhannesdóttur og Arnar Guðmundssonar) en heildar- svipur mætti vera sterkari. Að ein- hverju leyti má e.t.v. kenna búning- unum um, þeir sýnast hver úr sínu hominu. Mér er ekki ljóst að hve miklu leyti þeir em verk Guðrúnar Svövu, sumir búningarnir líta frek- ar út fyrir að vera afrakstur sam- skota. Hins vegar er sviðið gott, á einfaldan hátt er sköpuð trúverðug flugstöö. Meðal búninga má nefna flugfreyjubúning sem bersýnilega er aflagður (eða afturgenginn) ein- kennisbúningur starfskvenna í and- dyri leikhússins, er það ekki dálítið kreppulegt? Ástæðulaust er að nefna einn dansara öðmm fremur, hópur- inn stendur sig allur með prýði, enda er einkenni á sýningunniallri hve vel æfð og dönsuð hún er. I Dansbrigðum sýndi verkið dans- arana. I Largo y largo Nönnu Olafs- dóttur sýna dansaramir verkið. Nanna nýtir dansarana, bæði böm og fullorðna, til hins ýtrasta án þess að ofbjóða nokkmm. Hún lætur bestu kosti dansaranna koma fram í þágu verksins í heild. Það þarf kjark til þess að ráðast til atlögu við þessa tónlist og semja við hana ballett. Það er heldur ekki víst aö öllum sem venjulega sækja ballettsýningar líki Largo y largo Leifs Þórarinssonar. En sem betur fer er ekki allur ballett tjull og pallíettur. Nönnu hefur tekist meistaralega vel, tekist að skapa verkinu sterkan og einfaldan stíl sem ekki kiknar undir tónlistinni. Kóreógrafían er f águð, verkið er eins og ljóð sem hver áhorfandi verður að túlka á sinn hátt, skilja sínum skiln- ingi. Reyndar eiga orð ekki við Largo y largo, og best að hafa þau sem fæst. Mér finnst verkið stórkost- legt. Það eru nokkur vonbrigöi fyrir þá sem áhuga hafa á listdansi hér á landi hve dræmar undirtektir áhorf- enda virðast nú þegar loksins er efnt til sýninga. Ekki svo að skilja að undirtektir þeirra sem í leikhúsið koma séu dræmar, öðm nær, — sýningunum hefur verið ákaft og lengi fagnað. Aðsóknin hefur hins vegar verið of lítil og það lítur út fyr- ir að sýningar á Danssmiðjunni verði aðeins fjórar, hin síöasta á sunnu- dag. Ég vil hvetja alla sem áhuga hafa á dansi og leikhúsi y firleitt til að missa ekki af henni. Á NÆSTA blaðsolu- STAÐ FRÁ BLÓÐGJAFAFÉLAGI ÍSLANDS Aðalfundur Blóðgjafafélags Islands verður haldinn mánu- daginn 28. febrúar nk. kl. 21 í kennslusal Rauða kross Islands að Nóatúni 21 Reykjavík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fræðsluerindi um blóðsöfnun. 3. Önnurmál. STJORNIN. ÚTBOÐ — BÚNINGSHERBERGI Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í viðbyggingu sundhallar við Herjólfsgötu. Um er að ræða 134 ferm sem skila á fullbúnum. Botnplata er þegar tilbúin. Utboðsgögn verða afhent á skrif- stofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, gegn 1500 kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað 3. mars kl. 10. BÆJARVERKFRÆÐINGUR. • FLISAR • HREINLÆTISTÆKi • • BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI • • BAÐTEPPI • BAÐMOTTUR • MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI • • HARÐVIÐUR • SPÓNN • • SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI • VIÐARÞILJUR •: • PARKETT • PANELL • EINANGRUN • ÞAKJÁRN '• ÞAKRENNUR • • SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O.FL. Merzedes Bens 181 Uþplýsingar í síma 16188 mánudaga — Föstudaga kl. fimmtudaga kl. 8—18. 8—19. Laugardaga 9—12. mBYCGIHGflWÖBUBl Hringbraut 120 — simi 28600 Jll (aðkeyrsla frá Sólvallagötu). * Ótrúlega hagstæðir greiðs/uskilmálar Allt niður ,20%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.