Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 9
ÐV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. 9 | | ' wm Tl 1 m 8 v IH T[ | Til tíðinda hefur dregið í sölum al- þingis undanfarna daga. Fyrir hið fyrsta fór það svo aö stjórnarand- stöðuflokkur sjálfstæðismanna sat hjá við afgreiðslu bráðabirgðalag- anna. Það var skynsamleg niður- staða, en óneitanlega neyðarleg eftir öll stóru oröin. Þeir hefðu betur séð þaö fyrir að hörð andstaða gegn bráðabirgðalögunum hlyti að orka tvímælis, ekki síst fyrir þá sök aö stjómarliðinu hefði verið gerður stærsti greiðinn meö því að fella lög- Á pólitíshu markaðstorgi Þaö verður hinsvegar að teljast nokkuð tvíblendin framkoma hjá for- sætisráðherra að veitast harkalega að flokksbræðrum sínum í sjónvarp- inu fyrir ósæmileg vinnubrögð í mál- inu því að ekki er hann sjálfur hvít- þveginn englabossi þegar kemur að bragðaklækjum á þingi. Nema Gunn- ar sé aö hugsa til framboðs? En þá þarf hann heldur ekki að vera hissa á því þótt tekið sé á móti honum. Sögu/eg tíðindi Stjómarandstaðan slapp fyrir horn vegna bráöabirgðalaganna með því að vísa til samkomulags um kjör- dæmamálið. Það bjargar aö nokkru andliti stjómarandstöðunnar, enda ekki seinna vænna. Framsóknarflokkurinn varð síðast- ur til aö kyngja kjördæmamálinu. Mest fyrir þá sök að afturhaldið í þeim flokki hamaðist gegn lagfær- ingum af ótta við að einhverjar þing- mannsnefnur kæmust ekki lengur að í skjóli ranglátrar kjördæmaskipun- ar. Það er Framsóknarflokknum og Steingrími Hermannssyni til hróss að hafa samflot með hinum stjóm- málaflokkunum i þessu hagsmuna- máli kjósenda, enda eru mannrétt- indi ekki til hrossakaupa. Það em söguleg tíðindi þegar allir stóm flokkarnir sameinast um breytingar í kjördæmamálinu. Betur væri að slík samstaða næðist í fleiri málum í stað þess sundurlyndis- fjanda sem leikur lausum hala á vettvangi stjórnmálanna þegar efna- hagsmál og verðbólga em annars vegar. Mótmæli Sá sundurlyndisfjandi hefur nú herleitt Alþýðubandalagið í þessari lotu. Hávaðinn vegna vísitölumáls- ins er af þeim rótum runninn. Þar gætir ómerkilegs tvískinn- ungs. Á sama tíma og alþýðubanda- lagsmenn greiða atkvæði með bráða- birgöalögunum, sem fela í sér meiri- háttar kjaraskerðingu, þykjast þeir vera á móti breyttri vísitöluviðmið- un vegna kjaraskerðingar! Þetta gengur flestum illa að skilja enda er tvöfeldni og ábyrgðarleysi af þessu tagi helsta ástæðan f yrir þvi að i skoöanakönnun DV fær Bandalag jafnaðarmanna, sem algjörlega er óskrifað blað, umtalsvert fylgL Ef þau atkvæöi ásamt með þeim kjótv endum sem lýsa sig óákveöna em talin saman, blasir við að almenn- ingur er að mótmæla frammistöðu flokkanna, stjórnar sem stjórnar- andstöðu. Þetta er því ískyggilegra þegar þess er gætt að skoðanakönnunin er framkvæmd áður en bein útsending af blaðskellandi þingmönnum lækk- aði enn risið á pólitíkinni. Orslit skoðanakönnunarinnar eru áminning og aðvörun um vantrú og fyrirlitningu kjósenda á máttleysi og tvískinnungi stjómmálamanna. Flautaþyrlar draga ekki til sín at- kvæði í skoðanakönnun nema vegna þess að eitthvað mikið er að. Ekki hjá kjósendum — heldur flokkum. Ápólitísku markaðstorgi Nú ætti ég sem frambjóðandi í kosningum og stuðningsmaður eins flokksins ef til vill að tala varlega og taka upp hanskann fyrir hagsmuni flokkanna. En kann það góðri lukku að stýra fyrir flokka eða frambjóð- endur að loka augunum fyrir veru- leikanum og hundsa almenn viðhorf meðal kjósenda? Er von til þess að ástand lagist eða hlutur flokkanna réttist ef skellt er skolleyrum við niðurstöðum skoðanakannana um stöðu stjórnmálaflokkanna? Jafnvel þótt stjórnmálamenn gætu sýnt fram á, meö rökum, að flokka- veldið og frammistaða þess sé öll með sóma verða menn að skilja að Laugardags- pistill Ellert B. Schram ritstjóri skrifar almenningsálitið segir annað og meöan það ræður straumunum í póli- tíkinni og gengi flokkanna þá verður að hlusta á það, taka tillit til þess. Skýringarnar á lágu gengi flokk- anna eru margar. Þeir hafa reynst vanmáttugir í baráttunni gegn verð- bólgunni. Þeir hafa stundað lágkúru- legt karp. Þeir hafa verið tvöfaldir í roðinu, þeir hafa selt stefnumál sín á pólitisku markaðstorgi í skiptum fyr- ir völd og vegsemdir. Galgopaskapur Sjálfstæðisflokkurinn lýsir bráða- birgðalögum sem ógnvekjandi efna- hagsaðgerð og hamast gegn þeim í marga mánuði. Endar síðan með því að versla með þau í baktjaldamakki og situr hjá við lokaafgreiðslu. Formaður Framsóknarflokksins afgreiðir frá sér mál framhjá öllum reglum og mannasiöum og tilkynnir síöan sér til afsökunar ,,aðhann hafi verið plataöur”. Alþýðubandalagið hefur látið and- stöðu sína gegn her í landi lönd og leið og svikið kröfuna um „samninga í gildi” svo oft að ekki verður þar tölu á komið. Alþýðuflokkurinn liðast upp í frumeindir sínar og má sín lítils þeg- ar fyrrverandi lukkutröll lýsir hann beöi óalandi og óferjandi. Alþingi allt lætur hræða sig með hótunum í hvalamálinu og selur æru aina fyrir baunadisk. Kórónar síöan atarfsbtið þinghald með galgopa- akap og aulafyndni i beinni útsend- ingu frá þingfundi. Einstakir þingmenn eru staðnir að því að versla með fyrirgreiöslu í skjóli opinberra stofnana. Deilur loga í tengslum við prófkjör og forvöl og klíkuskapur verður flokksheill yfirsterkari. Brestur trúnað Þessari upptalningu mætti lengi fram halda, en þá almennu einkunn má gefa að alþingi og stjómmálin brestur trúnað gagnvart fólkinu sem bæði er orsök og afleiðing þess þjóð- félagsástands sem við nú búum við. Fólk er þreytt á leikaraskap og tví- skinnungi. Það vill ekki að eitt sé sagt í dag en annaö á morgun. Olafur Ragnar getur ekki búist við því að honum sé vel tekið niður í Sunda- skála þegar hann mætir þar loks í lok kjörtímabilsins tU að segja verka- mönnunum að Alþýðubandalagið standi vörð um kaupmáttinn. Sjálf- stæðisþingmaðurinn getur ekki vænst að hann sé tekinn alvariega ef hann ætlar að bjóða guU og græna skóga í stað núverandi stjómar- stefnu. Alþýðuflokkurinn getur ekki taUst líklegur til afreka meðan hans eigin liösmenn yfirgefa skútuna meö skömmá flokknum. Framsóknarmenn verða aö aöhlát- ursefrii þegar þeir bjóða kjósendum upp á framhald niðurtalningar í 70% verðbólgu. Listhins mögulega En hvað er þá til bjargar? Kjósa VUmund til valda? Er þar ekki enn einn flokkurinn sem sækist eftir völd- um valdanna vegna ? VUmundur Gylfason er um margt ágætur maður meö stórar og heil- brigðar hugsanir. Hann getur orðið þarfur þingmaður ef og þegar stjórn- málaflokkarnir og alþingi gengur í gegnum sinn hreinsunareld. En hann er offari sem gengur á veggi og hefur ekki tileinkað sér það boðorð að póU- tíkin er list hins mögulega. Alvitrir messíasar hafa aldrei þrifist í lýð- ræði ef þeir kunna ekki að taka tiUit til annarra. VUmundur situr og uppi með þann myUustein um hálsinn að hafa setið í ráðherrastóU án þess svo mikið sem blaka við möppudýrun- um. Og jafnvel þótt VUmundur ætli sér stóra hluti verður hann seint svo áhrifamikill með Bandalagið sitt að hann leggi aUar aðrar stjórnmála- hreyfingaraðvelU. Flokkaskiptingin á Islandi kann að einhverju leyti að vera tímaskekkja, en þeir, flokkamir, eru engu að síður staðreynd sem halda áfram að lifa og starfa og hafa áhrif. Innan þeirra verður endurhæfingin að eiga sér stað. Þar þarf sjálfsgagn- rýnin og „menningarbyltingin” að eiga sér upptök. Hlutverk fíokkanna Og þegar aUt kemur til aUs, þá eru þeir sameiningartákn hinna óhku stjómmálaskoöana. Grundvallar- stefnum .í þjóðmálum verður aldrei vikið til hUðar með einföldum lausn- um nýrra flokka. Það skiptir máli hvort þjóðfélaginu er stýrt til hægri eða vinstri, til miðstýringar eða valddreifingar, í þágu atvinnurekst- urs eðagegnhonum. Flokkarnir þurfa að breyta vinnu- brögðum, en þeir þurfa ekki og geta ekki breytt um grundvallarlífsvið- horf. Að því leytinu gegna þeir óhjá- kvæmilegu og lýðræðislegu hlutverki og af þeim sökum skiptir sköpum hvaða flokki vegnar vel í kosningum, hvaða stefna verður ofan á. Þessu má enginn gleyma þrátt fyrir öngþveiti og upplausn á þessari stund. Ellert B. Schram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.