Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Blaðsíða 10
10 DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. Blémin töfra! — nokkur or ð í tileffni konudags Jæja, karlar, þá er konu- dagurinn á morgun og komiö að ykkur að færa eiginkonunni smáglaðning. Hún á það áreiðanlega skilið. Með konudeginum byrjar góa. Samkvæmt fornu dagatali er hún næsti mánuöur á eftir þorra, sem er næsti mánuður eftir miðjan vetur! Það er siður allt frá heiðni að fagna komu þorra oggóu. Þær sky/du fara fyrstar á fætur fák/æddar góumorguninn fyrsta! Konudagur. . . . og bónda- dagur. .. kemur fyrst fyrir bók- fest í Þjóðsögum Jóns Arnason- ar. Þar segir: „Fomsögur segja frá því, hvemig mánuðir þessir fengu nöfn sín. Reyndar hefur dálítið boðorðaslangur komist á munnl mælin því þau gera Þorra og Góu að hjónum, þar sem þau eru talin feðgin í fomum sögum; er Þorri húsbóndinn en Góa hús- freyjan; þeirra börn em þau Einmánuður og Harpa (seinasti vetrarmánuðurinn og fyrsti sumarmánuðurinn). Þess vegna var það skylda bænda ,,að fagna Þorra”, eða „bjóða honum í garð”, með því að þeir áttu aö fara fyrstir á fætur allra manna á bænum, þann morgun sem Þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfætt- ir, en fara í aðra brókarskál- mina, og láta hina svo lafa eða draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðr- um fæti í kring um bæinn, draga eftir sér brókina á hinum, og bjóöa Þorra velkominn í garð, eða til húsa. Síðan áttu þeir að halda öðrum bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta Þorradag; þetta hét ,,að fagna Þorra”. Sumsstaöar er fyrsti Þorradagur enn í dag kallaöur „bóndadagur”; á þá húsfreyjan að halda vel til bónda síns, og heita þau hátíðabrigöi enn „Þorrablót”. Húsfreyjur áttu að fagna Góu á líkan hátt, og bændur fögnuöu Þorra, fara fyrstar manna á fæt- ur fáklæddar Góumorguninn fyrsta, ganga þrisvar í kring um bæinn, og gjóða Góu í garða, svo mælandi: „Velkomin sértu, Góa mín, og gakktu inní bæinn: vertu ekki úti í vindinum vorlangan daginn.” Svo segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Og auðvitað átti svo bóndinn að gera konunni eitthvaö vel til þann dag. „Góa kemur með gæðin rr sm Góa hefst sunnudaginn í 18. viku vetrar eða 18.—24. febrúar. Um hana er hið sama að segja og þorra, að alls er óvíst um merkingu þess. Helst hallast orðsifjafræðingar að því aö það eigi skylt við snjó eða aðra úr- komu eins og Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir í bók sinni, Saga daganna. Heimildir um eitthvert tilhald á heimilum á fyrsta degi góu eru jafngamlar og varðandi þorra eða frá því snemma á 18. öld. Á hinn bóginn er eftirtektar- verður sá munur sem menn gera á góu og þorra eins og hann birt- ist einkum í kvðlingum. Segja má að menn beri óttablandna virðingu fyrir þorra en reyni fremur aö vingast við góu og höfða jafnvel til kvenlegrar mildi, samanber kvðlinginn: Góa á til grimmd og blíðu. gengur í éljapilsi síðu. Og stundum er eins og verið sé að hnýta í þorra um leið og góu er gefið undir fótinn: Góa kemur með gæðin sín gefst þá nógur hitinn. Fáir sakna Þorri þín þú hefur verið skitinn. Haidið í gamlarhefðir Nú á dögum er konudagurinn og tilhald í kringum hann orðið nokkuð almennt, sem betur fer kannski, því enginn verður verri af því að halda í gamlar hefðir. Og þá er bara að hvetja alla karla til að muna eftir morgun- deginum! -KI> Ætlar þú að gef a konu þinnl blom á konudaginn? Birgir Hjaltacon verkamaður: Eg verö að gera það úr því að þú spyrð mig, reyndar gef ég henni stundum blóm. örlygur Háifdónarson bókaútgefandi: Það geri ég áreiðanlega. Kristinn Gestuoa skrifstofustjóri: Auðvitað geri ég þaö, mér finnst það alveg sjálfsagt. Pétur Slgurðsson, fyrrverandi forstjóri Landhelgisgæslunnar: Ef ég man eftir deginum. Hvenær er konudagurinn?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.