Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Page 19
• DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983. 19 Það má kalla mig mlan tslandsvfn" sem er þekkt nafn í sænskum tónlistar- heimL” íslenskt tónlistarlíf óformlegra en sænskt — Telur hann að sænskir tónlistar- menn geti lært eitthvað af íslenskum kollegumsínum? „Já, tvímælalaust. Þar má fyrst nefna einlægnina í islensku tónlistinni sem ég nefndi áðan. Svo hefur tekist að varðveita þennan sérstaka frískleika í íslenskri tónlist sem ég sakna annars staðar. I samfélagi eins og til dæmis í Svíþjóð verður tónlist mjög auðveld- lega framleiösla framleiðslunnar vegna, en er hér meira lifandi, nær fólkinu. Islenskt tónlistarlíf er mun óformlegra en það sænska. Tónlistarlíf í Svíþjóö er svo stofnanabundið, þetta er heilmikið bákn,” segir Göran með áhyggjusvip. Andleg fjarlægð milli Norðurlandanna — Hvað um tónlistarlegt samstarf milli Norðurlandanna y firleitt? „Það er hreinasta hneyksli. Allt fullt af stofnunum sem eiga að stuðla að norrænu samstarfi, en ekkert gerist. Tökum sem dæmi Sinfóniuhljómsveit Islands. Ekki eitt einasta norrænt verk á efnisskránni í vetur. Svipaða sögu er að segja af öðrum sinfóníuhljómsveit- um á Norðurlöndunum. Það er ótrú- lega mikil andleg fjarlægð milli Norð- urlandanna, því miður,” segir Göran raunalegur á svip. „Það ætti í raun og veru ekki aö þurfa aö gera sérstakar kynningarherferðir á norrænni tónlist á Norðurlöndunum, þetta á að vera s jálfsagður hlutur. ’ ’ — Hverjar telur hann ástæðumar fyrir þessari andlegu fjarlægð á tón- listarsviðinu? „Þær má fyrst og fremst rekja til þess að stóru tónlistarstofnanirnar á Norðurlöndunum einbeita sér að gam- alli tónlist. En á Norðurlöndunum er ekki svo mikið til af gamalli konsert- tónlist. Konserttónlistá Norðurlöndun- um er frekar ný. Svo er einnig um áhugaleysi og skilningsleysi aö ræða. Það finnst mörgum í Svíþjóð ég vera eitthvað skrýtinn að vera að standa í því að kynna íslenska tónlist. Ég læt það sem vind um eyru þjóta, enda bæði sé ég og f inn áhugann.” Bók um íslenska tónlist í smíðum — Hvaðumframhaldið? „Ég er búinn að taka að mér að skrifa bók á ensku um íslenska tónlist, en frumkvæðið að þessu hafa Tónskáldafélag Islands og Islenska tónverkamiöstöðin haft. Þessi bók verður framhald þeirrar bókar sem ég minntist á hér að framan. Hvenær hún kemur út vil ég engu lofa um. Ég þekki það af gamalli reynslu að lofi maöur einhverjum ákveðnum tíma tekst yfir- leitt aldrei að standa við hann,” segir Göran og kímir á ný. „Svo vonast ég til að geta haldið áfram að kynna íslenska tónlist í Svíþjóð, ef þess þarf þá með. Ég held að stærstu hindrununum hafi þegar verið rutt úr vegi.” -SþS Þaö fínnst mörgum í Svíþjóö ég vera eitthvaö skrýtinn aö vera aö fást við kynningará ísienskri tónlist. DV-ÁSKRIFENDUR r/ lllDJMfEPD með kostakjömm 13.—20. mars. /^s. POLARIS Innifalið er flug, gisting og morgunverður, flutningur af og á flugvöll í London, fararstjórn, aðgöngumiði á ,,Cats”-söngleikinn og ferð á enskan , ,pub”. FERÐASKRIFSTOFA Nánari upplýsingar Bankastræti 8, símar 28622 og 15340. Af ððrum viðburðum i London þsssa viku má nefna: leikhúsverk (m.a. Evita, Guys and Dolls) og hljómleika (t.d. London Symphony Orchestra meö Rudolf Serkin sem einleikara). Fyrir knattspyrnuunnendur: Arsenal — Luton í 1. deild 19. mars. — Auk þess er hœgt að út- vega aðgöngumiöa að ýmsum sýningum, söfnum og skoðunarferðum. ÁSKRIFENDAÞJÓNUSTA DV í samvinnu við FERÐASKRIFSTOFUNA POLARIS býður vikuferð til London 13. mars nk. á ótrúlegum kostakjömm. VERÐ FRÁ KR. 7.900,- (gengi 15.2. ’83).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.