Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Side 25
DV. LAUGARDAGUR19. FEBRUAR1983.
25
Skák
Jón L Árnason
að Kasparov yrði heimsmeistari árið
1990. Sumir segja að ekki þurfi að
bíða svo lengi.
Við skulum líta á eina skák
Kasparovs sem ekki hefur birst víða.
Hún er tefld árið 1975 í keppni stór-
meistara gegn ungum skákmönnum.
Kasparov er 12 ára gamall og á í
höggi við Lev Poluga jevsky.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Lev Polugajevsky
Sikileyjarvörn.
1. e4 c52. Rf3e63.d3
Kasparov reynir í þessari skák að
víkja frá troðnum slóðum, enda
þekkir Polugajevsky vel innviði
Sikileyjarvamarinnar.
3. — d5 4. Rbd2 Rc6 5. g3 Bd6 6. Bg2
Rge7 7.0-0 0-0 8. Hel Bc7 9. De2
Að sögn Botvinniks er 9. a3 betra,
með hugmyndinni að leika c2—c3 og
síðan b2—b4.
9. — b610. h4 Rb4 ll.Rfl
Kasparov var lítt hrifinn af því að
hörfa á sínum yngri ámm og er hann
það enn. Betra er 11. Ddl! og síðan
a2—a3. Nú nær Polugajevsky
frumkvæðinu.
11. —dxe4!12. Dxe4
Með þessum leik býður Kasparov
Polugajevsky upp í dans, því að
hvíta staðan er slæm eftir 12. dxe4
Ba6 13. c4 Dd3! o.s.frv. En nú hefði
Polu átt að leika 12. — Hb8! og ef 13.
Rg5 þá 13. — Rf5! og síðan 14. — Bb7
meðbetratafli.
12. — Rxc2?! 13. Dxa8 Rxal 14. Re3!
Rf5 15. Rxf5 exfð 16. Bg5 f6 17. Hxal
fxg5 18. Rxg5 g6 19. Helh6
20. Dc6!
Snjall leikur, sem opinberar hæfi-
leika Kasparovs. Ef nú 20. — hxg5,
þá 21. Dxg6+ Kh8 22. Dh6+ Kg8 23.
Bd5+! Dxd5 24. Dg6+ Kh8 25. He7!
og mátar.
20. — Dd6 21. Re6 Dxc6 22. Bxc6 Bxe6
23. Hxe6Kg724.Be8!
Hvítur á nú mun betra tafl og nú,
átta árum síðar, væri Kasparov ekki
í vandræðum með að innbyrða
vinninginn.
24. —Í4!25.g4?
Nú leysist taflið upp í jafntefli.
Betra er 25. Hxg6+ Kh7 26. Hc6! Be5
27. Bg6+ Kg7 28. Be4 og hvítur
verður peði yfir með góðar vinnings-,
líkur.
25. —Bd8!
Ef nú 26. Hxg6+, þá 26. — Kh7 og
síðan 27. — Bxh4. Kasparov bauð því
jafntefli sem Polugajevsky þáði.
Bridgefélag
Selfoss og
nágrennis
Urslit í einmenningskeppninni
(firmakeppninni), sem lauk 27 jan.
1983.
stig
1. Vilhjálmur Þ. Pálsson 127
(Þórður Arnason) 332
2. Leif österby (109) 302
3. Gunnar Þórðarson 300
(Sundhöll Selfoss 77) 4. Kristmann Guömundsson 300
(Fossnesti 105)
5. Þorvarður H jaltason (Stefnirh/f 114) 298
6. Þórður SigurAsson (Vélgrafans/f 67) 295
7. Gestur Haraldsson 4 Ljósmst. Hauks Gisl.
93 ) 288
8. FriOrik Larsen (Fossvélarb/i 106) 287
9. Hrannar Eriingsson 283
(SuAurgarOur h/f 79)
10. lírynjólfur Gestss. (Rafveita Self. 98) 283
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Mánudagskvöld 17. 2. sl. laukButler
tvímenningskeppni félagsins og urðu
úrslit eftirfarandi:
1. Ásgeir Ásbjömsson/FriAþjAfur Einarss.208
2. GuAbr. Sigurbergg/Kristófer Magnúss 203
3. Georg Magnúss./Kristján Blöndal 187
4. Magnús Jóhannss./Bjami Jóhannss. 186
5. -6. Sverrir Jónss./Ölafur Ingimundars. 181
5.-6. Ölafur Gislas./Sig. ÁAalsteinss. 181
Alls tóku 20 pör þátt í keppninni og sá
Hermann Lárusson um keppnisstjórn
af röggsemi.
Nk. mánudagskvöld 21. 2. hefst
firmakeppnin eða einmenningur eins
og þetta keppnisfyrirkomulag er oftast
kallað. Spilað verður í íþróttahúsinu
við Strandgötu og hefst spilamennskan
stundvíslega kl. 19.30. Allir sem áhuga
hafa á að vera með eru boðnir vel-
komnir og ja&iframt bent á að þátt-
tökuréttur fer eftir skráningarröð spil-
ara og er því vissara að mæta vel
tímanlega.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriöjudaginn 15. febrúar lauk aðal-
sveitakeppni deildarinnar. I síöustu
umferð spiluðu tvær efstu sveitimar
innbyrðis og lauk þeim leik með sigri
sveitar Guðrúnar Hinriksdóttur gegn
sveit Lárusar Hermannssonar, 19—1.
Auk Guðrúnar spiluöu Ármann Lárus-
son, Bjami Pétursson, Haukur
Hannesson, Ragnar Bjömsson og
Sævin Bjarnason.
Efstu sveitir urðu sem hér segir:
stig
1. sveit GuArúnar Hinriksdóttur 129
2. sveit Lámsar Hermannssonar 117
3. sveit Tómasar SígurAssonar 101
4. sveit Sigmars Jónssonar 96
5. svcit Baldurs Ásgeirssonar 93
Þá var spiluð stutt tvímennings-
keppni með rúbertuformi, efstir urðu:
1. Jón Hermannsson/Ragnar Hansen 16
2. SigurAur Sigurjónss./Sveinn Sveinss. 12
3. Sævin Bjamason/Ármann Lárnss. 11
Næsta þriðjudag mæta félagar I
Bridgefélagi Keflavíkur til árlegrar
keppni milli félaganna.
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35, að
þessusinni.
Bridgefélag
Breiðholts
Nú er aöalsveitakeppni félagsins lok-
ið með sigri sveitar Rafns Kristjáns-
sonar sem hlaut 151 stig. Auk Rafns
voru þeir Árni Guömundsson, Bragi
Jónsson og Þorsteinn Kristjánsson í
sveitinni.
önnur röð sveita var þessi:
2. sveit Gisla Tryggvasonar 133
3. sveit Baldurs Bjartmarssonar 120
4. sveit Gunnlaugs Bjólu 104
Nasstkomandi þriðjudag hefst
þriggja kvölda Butler tvímenningur og
eru spilarar beðnir um að mæta tíman-
lega til skráningar. Spilað er í Félags-r
miðstöðinni Gerðubergi v/Austurberg
kl. 19.30. Allt spilafóik er velkomið.
Keppnisstjóri er Hermann Lárusson.
Bridgeklúbbur
Akraness
Staðan í Akranesmótinu í tvímenn-
ing þegar fimm kvöld af sex eru búin
erþessi:
stig
1. Oliver Kristólerss./Þérir Leifsson 264
2. Ölafur Gr. Ólafss./GuAjón GuAmundss. 250
3. Karl ÁlfreAsson/ÞórAur Eliass. 234
4. Eirikur Jónsson/ÁlfreA Viktorss. 224
5. Skúli Ketilsson/Vigfús SigurAss. 199
Laugardaginn 12. febrúar var spiluö
hin árlega bæjarkeppni milli Akurnes-
inga og Hafnfirðinga og var spilaö á
Akranesi í ár. Fimm sveitir frá hvor-
um aðila spila í aðalkeppninni en sjötta
sveitin spilar um sérstakan bikar. Ur-
slit urðu sem hér segir og eru sveitir
Akumesinga taldar upp á undan.
stig
1. borA
Sveit ÁilreAs Viktorssonar 11
Sveit ÁAalsteins Jörgensens 9
2. borA
Sveit Halldórs Sigurbjömssonar 3
Sveit Sævars Magnússonar 17
3. borö
Sveit Guömundar Sigurjónssonar 0
Sveit Kristéfers Magnússonar 20
4. borö
Sveit AlfreAs Þ. AifrcAssonar 20
Sveit Jóns Gíslasonar 0
5. borö
Svcit Búa Gislasonar 9
Sveit Kristjáns Haukssonar 11
Hafnfirðingar bára því sigurorð af
Akumesingum í aðalkeppninni þetta
árið með 57 stigum gegn 43 stigum.
6. borA
Sveit Björgvins Bjarnasonar 10
94IPM stig
Sveit Ernu Hrólfsdóttur 10
93IPM stig
Eins og sjá má sigruöu Akurnesing-
ar á sjötta borði en naumari gat sigur-
inn ekki orðið.
Háaloftið
VIÐ
HÆFI
BARM
Nú hefur góa tekið við af þorra að
koma okkur á óvart með veður og
þótt þeir hafi hvorki þorra né góu á
Spáni las ég þaö í blaðinu um síðustu
helgi að hitinn væri helmingi hærri á
Akureyri en Mallorca og vantaöi þá
ekkert nema bjórinn til að það yrði
helmingi notaiegra að vera fyrir
norðan en á sólgylltri strönd þar sem
menn kjaga á barinn, tilbiðja guð
sinn og deyja svo sem eins og
hundrað sinnum á hálf um mánuði.
Manni finnst vera vor í lofti því að
grasið kemur grænt undan snjónum
og malbikið sem einu sinni var á
Miklubrautinni er farið veg allrar
veraldar og hefur skiliö eftir sig
holur sem maður ekur ofan í á leið-
inni vestur í bæ að flytja fyrir fólk
sem maður þekkir. Og vegna þess að
fólkið ætlar aö flytja inn á fyrstu
hæðina fyrirgefur maður holunum að
vera svona margar og svo veit
maöur að borgarstjórinn verður
búinn að fækka þeim um allan
helming áöur en maður fer að ganga
um göturnar með lúðrasveit í broddi
fylkingar á sumardaginn fyrsta og
veifa íslenska fánanum.
Þegar ég var í skóla mátti maður
aldrei skrifa maður í íslenskum stíl
því að það þótti ekki fínt en nú töltir
maður með sófasett og isskápa og
sjálfvirkar þvottavélar upp þennan
eina stiga og finnur ekki fyrir því og í
leiðinni les maður fallega innramm-
að skjal þess efnis að lóðin við húsið
sé við hæfi baraa og auövitað ekki
nokkurt kvikindi á lóðinni því að það
er búið að finna upp vídíó og
tölvuspil.
En það er fleira við hæfi barna en
lóöirnar í vesturbænum og má þar
nefna foreldra, ríkisstjómir og bíó-
myndir svo ekki sé minnst á afa og
ömmur sem hafa verið við hæfi
baraa frá ómunatíð og tekist að gera
barnabömin sín vitlaus í frekju á
mettíma og nú eru sum þessara
barnabarna komin á Alþingi og í
Benedikt Axelsson c
stjórn og eiga kannski bamabörn
sjálf sem þau eru að búa undir það að
erfa heiminn.
Okkur hefur sem sagt tekist að
þreyja þorrann og hver veit nema
okkur takist líka að þreyja góuna og
láglaunabæturnar sem eru farnar að
taka til máls í sjónvarpi rétt eins og
þær hafi eitthvað aö segja þótt búiö
sé að lýsa því yfir margoft og
næstum því sanna aö þær hafi það
ekki.
En það gerist alltaf eitthvað
skemmtilegt á vorin.
Viðskiptavinir
Um daginn fór ég niður að Tjörn
því að þótt þessi bleyta í hjarta
borgarinnar sé svo sem ekkert
augnayndi í sjálfu sér er alltaf jafn-
gaman að heimsækja endurnar sem
eru eins og skatturinn, rífa allt af
manni til að byr ja með og heimta svo
meira að því loknu.
En það eru fleiri en skatturinn sem
vilja sitt þessa dagana og man ég
ekki til þess að bréfalúgan min hafi
verið notuð annaö eins og undan-
famar vikur. Það er engu líkara en
hún sé komin í vinnu hjá öllum opin-
berum stofnunum í iandinu og af því
að ég er viðkvæmur að eðlisfari finn
ég stundum til með henni þegar mest
er að gera og hún alveg að gefast upp
á reikningaflóðinu.
Eg hef stundum verið að velta því
fyrir mér hvort rétt sé að kalla okkur
viðskiptavini þeirra stofnana sem
selja okkur vatn, rafmagn, simtöl og
sænska skemmtiþætti því að ef við af
einhverjum ástæðum borgum ekki er
umsvifaiaust sendur maður til okkar
að loka fyrir vatnið, rafmagnið og
sænsku þættina en fyrir símtölin er
skrúfað niðri í bæ og ekki opnað aftur
fyrr en óvinurinn hefur borgaö
reikninginn með áföllnum kostnaði
og á ég ekki við þann kostnað sem við
höfum af því að leita um allan bæ að
banka sem þóknast að hafa opið
þegar venjulegt vinnandi fólk hefur
frí.
Þótt það komi kannski ekki málinu
við þá er ég hreint og beint skít-
hræddur við allar opinberar stofn-
anir í landinu og þori ekki annað en
sitja og standa eins og þær bjóða
hverju sinni því að ef ég stend ekki í
skilum þegar þeim þóknast koma
þær æðandi og hirða af mér það sem
ég á vegna þess að ég er hvorki
togari né frystihús og get ekki fengið
lán úr Bjargráðasjóði jafnvel þótt ég
sé afskaplega mikiö lamb að leika
sér við.
En svona er lífið og það býður
einnig upp á reikningslausa daga og
hver veit nema fuglamir komi frá
heitu löndunum í vor með sólskin og
birtu og sænskan skemmtiþátt
nefinu og við getum í rólegheitunum
hlustað á þá syngja fyrir utan
gluggann á meðan einhver skrúfar
fyrir símann okkar niðri í bæ.
Kveðja
Ben. Ax.